Morgunblaðið - 10.03.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Landfylling og höfn fyrir efnisvinnslusvæði
Björgunar á Álfsnesi, Reykjavík
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Björgunar ehf. er einnig
að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Landmótun og stækkun Jaðarsvallar, Akureyri
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Akureyrarbæjar er einnig
að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Félagsstarf fellur niður næstu daga. Nánari upplýs-
ingar í síma 411 2701 og 411 2702.
Árskógar 4 LOKAÐ - neyðarstig almannavarna.
Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili
Áskirkju kl. 20. Allir velkomnir. Safnaðarfélag Áskirkju.
Bústaðakirkja Félagsstarf eldri borgara fellur niður miðvikudaginn
11. mars, það verður því ekki farið í ferð á Akranes að þessu sinni.
Ekkert félagsstarf verður heldur í safnaðarsalnum þennan dag í ljósi
aðstæðna vegna covid-19 veirunnar. Við munum auglýsa um fram-
haldið síðar, Hólmfríður djákni.
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Opið hús félagsstarfs aldr-
aðra fellur niður Í ljósi tilmæla landlæknis.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Lýst hefur verið yfir neyðarstigi
almannavarna vegna COVID-19 smits innanlands. Félagsmiðstöðin í
Hæðargarði er því lokuð um óákveðinn tíma
Garðabær Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á
vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti, íþróttahús-
inu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið. Starfsemi hjá
FEBG og FEBÁ falla einnig niður.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-15.30. Starfið
hefst á samsöng og helgistund. Þá er boðið upp á kertagerð, spil og
handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15.
Grensáskirkja Kl. 12 á þriðjudögum er boðið upp á kyrrðarstund í
Grensáskirkju. Stundin hefst með orgelleik og síðan er nærandi orð
og kyrrðarbæn. Eftir samveruna í kirkjunni er samfélag yfir léttri
máltíð gegn vægu gjaldi.
Guðríðarkirkja. Í ljósi aðstæðna vegna Covid-19 veirunnar fellur
félagsstarf aldraðra niður næsta miðvikudag og verður því ekki farið í
ferð í Morgunblað þann 11. mars. Við metum stöðuna um framhaldið
í næstu viku og munum auglýsa um framhald starfsins nánar síðar.
Starfsfólk Guðríðarkirkju.
Korpúfar Allt félagsstarf Korpúlfa fellur niður í ókákveðinn tíma
vegna kórónaveirufaraldurs
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, t résmiðja kl.
9-16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
kaffihúsaferð kl. 14, Bónusbíllinn kl. 15, Hugleiðslan kl. 15.30. Uppl. í
síma 4112760.
Seltjarnarnes Samkvæmt tilmælum Landlæknis og Almannavarna
hefur fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjar ákveðið að loka öllum starfs-
stöðvum félags- og tómstundastarfs eldri bæjarbúa vegna COVID 19.
Fylgst verður með öllum tilkynningum og tilmælum og skilaboðum
komið á framfæri um leið og eitthvað breytist.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl.
13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn. Aðalfundur
Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn fimmtu-
daginn 12. mars 2020 og hefst kl. 14 í Ásgarði, Stangarhyl 4. Dagskrá
samkvæmt lögum félagsins. Félagsmenn hafi með sér félagsskíteini
fyrir árið 2019.
Reglulegum fundum
SES frestað
Reglulegum fundum SES í hádeginu á miðviku-
dögum er frestað um óákveðinn tíma.
Um leið og reglulegir fundir hefjast að nýju verða
þeir auglýstir sérstaklega.
Stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna.
Fundir/Mannfagnaðir
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
með
morgun-
Smá- og raðauglýsingar
✝ Guðmunda S.Sveinsdóttir
fæddist á Núpi,
Vestur-Eyja-
fjallahreppi, 8.
október 1927. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir
fimmtudaginn 27.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Sveinn
Sigurðsson, bóndi á
Núpi, f. 1886, d. 1947, og kona
hans Ólöf Ólafsdóttir, húsmóðir
á Núpi, f. 1892, d. 1955, þau
bjuggu allan sinn búskap á Núpi.
Þau eignuðust fjórar dætur, Sig-
ríði, f. 1922, d. 2003, Guðmundu
sem hér er kvödd 1927, Ólafíu, f.
1928, d. 2014, og Guðrúnu, f.
1933. Eiginmaður Guðmundu
Svanur, f. 1990, unnusta Am-
anda Ósk Min, f. 1994, dóttir
hans er Ísey Carmen. Börn Ólaf-
ar og Grétars, e) Anna Þóra, f.
1994. Vilmundur, f. 1996 unn-
usta hans Guðrún Bóel Jóns-
dóttir, f. 1996, sonur þeirra er
Grétar Leó. 2) Guðbjörg María,
f. 1960, gift Jóni Hauk Valssyni,
f. 1955, börn þeirra a) Jón Vil-
berg, f. 1988, unnusta hans Anna
Elísabet Jóhannsdóttir. b) Sig-
urbjörg Ólína, f. 1990, sambýlis-
maður hennar er Eggert Hólm
Pálsson, dætur þeirra Guðbjörg
Lísa og Kristín Lea. 3) Svanhild-
ur, f. 1961, gift Þorleifi Kjartani
Kristmundssyni, f. 1952, d. 2018,
sonur þeirra Kristmundur
Sverrir, f. 1995, sambýliskona
hans Laufey Sverrisdóttir, f.
1993, sonur þeirra er Þorleifur
Kjartan.
Guðmunda eða Munda eins og
hún var ávallt kölluð vann lengst
sem saumakona.
Útför Guðmundu verður gerð
frá Seljakirkju í dag, 10. mars
2020, og hefst athöfnin kl. 13.
var Ólafur Sæ-
mundsson frá
Stóru-Mörk, Vest-
ur-Eyjafjallahreppi,
f. 15. október 1918,
d. 23. febrúar 2009.
Dætur Guðmundu
og Ólafs eru 1) Ólöf,
f. 1956, gift Grétari
Karlssyni, f. 1964.
Synir hennar eru a)
Ólafur, f. 1978,
hann á enn son,
Jakob Dag, b) Jóhann, f. 1981,
sambýliskona hans er Guðrún
Guðjónsdóttir, f. 1981, þau eiga
tvö börn, Andra Snæ og Heiðu
Diljá. c) Guðmundur, f. 1987 gift-
ur Auði Sif Sigurðardóttir, f.
1989, eiga þau þrjár dætur: Rak-
el Emmu, Rebekku Ýri, f. 2010,
d. 2010, og Alexöndru Ýri. d)
Elsku mamma mín, nú kveð
ég þig með sárum söknuði. Ég
mun ávallt minnast þeirra góðu
stunda sem við áttum saman.
Minningarnar um ferðirnar í
sveitina þína sem var þér svo
kær. Eftir situr stórt skarð sem
enginn mun fylla. Ég veit að
það mun taka tíma að sætta sig
við það þegar svo kær mann-
eskja er tekin burt frá manni en
við getum huggað okkur við að
þú ert komin í faðm pabba. Ég
veit þú munt lifa með okkur í
anda og fylgja okkur um
ókomna tíð. Þakka þér fyrir allt
sem þú varst mér. Þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig og fyrir að vera ávallt til
staðar elsku mamma mín.
Ég veit að Guð mun styrkja
okkur og við munum öll styrkja
hvert annað í sorg okkar.
Ég bið Guð að gæta mín,
góða anda að hugga mig.
Sama ósk er eins til þín:
Almættið það sjái um þig.
(Leifur Eiríksson)
Þín dóttir,
Ólöf.
Elsku langamma.
Við kveðjum þig með söknuði
og minnumst allra góðu stund-
anna með þér og langafa. Að
koma til ykkar á ástríkt og hlý-
legt heimili með nóg af góðum
mat sem langamma vildi alltaf
raða ofan í okkur. Það var alltaf
nóg að gera og dekrað vel við
okkur og svo voru það líka ófá
samtölin sem við áttum saman
við langömmu og langafa þegar
við vorum í pössun hjá ykkur.
Við munum ávallt sakna þín,
elsku langamma, og okkur þyk-
ir gott að vita að þú ert á góð-
um stað.
Þú ert amman sem allir þrá,
alltaf munum við elska þig og
dá.
Lífið þú gerir betra fyrir okkur, hepp-
in vorum við að eiga þig.
(Höf. óþekktur.)
Andri Snær og Heiða Diljá.
Elsku amma, nú þegar þú
hefur skilið við þetta jarðlíf er
mikið gat í tilveru okkar. En
minningarnar eru ótal margar
og allar eiga þær það sameig-
inlegt að vera fullar af kærleik
og gleði. Tárin renna niður
kinnar mínar nú þegar ég sit og
skrifa þessa minningargrein,
elsku amma, og veit ég ekki
hvar ég á að byrja. Efst í huga
mér er þakklæti fyrir allt sem
þú og afi gerðuð fyrir mig og
kennduð mér í gegnum tíðina
og ekki síst eftir að við Gugga
byrjuðum saman og ólum upp
krakkana okkar, þar voruð þið
alltaf tilbúin til að hjálpa. Þú
varst það sem ég kalla ekta
ömmu, alltaf baksturslykt á
heimilinu. Þú hafðir yndi af
börnum og það var þér alltaf
kappsmál að enginn færi svang-
ur úr heimsókn frá þér og afa.
Mér er það minnisstætt þegar
ég hugsa til baka hvað þér þótti
mikilvægt þegar ég var krakki
að ég lærði faðirvorið og léstu
mig ósjaldan fara með það á
kvöldin, mér þykir svo vænt um
það í dag því það er akkúrat
það sem hjálpar mér núna í
sorginni við að kveðja þig, það
er trúin og sú fullvissa sem ég á
í dag að þú og afi séuð sam-
einuð á ný.
Takk, elsku amma, fyrir allt.
Mikið á ég eftir að sakna þín en
er um leið farinn að hlakka til
næsta hittings með þér og afa.
Elsku besta amma,
nú hvílir þú,
að sjá þig falla úr landi,
er nú rosa sárt.
Ég sit og hugsa,
hve margt við gerðum saman,
hugur minn stöðvar aldrei,
það hefði verið svo gaman.
Kannski er gott að þú fórst,
ég veit að guð er góður,
þú varst orðin veik,
ég er samt alveg óður.
Ég græt og læt,
fella niður tár,
ég er voða sár,
mig langar til þín.
Þegar ég er orðinn gamall,
og hverf út úr heimi,
kannski sé ég þig,
ef þú verður ekki komin aftur
í heiminn.
Það er ekki hægt að eiga góða
ömmu,
góða ömmu eins og þig,
margar ömmur veit ég elskaði þær,
af öllum reit míns hjarta,
og þú ert ein af þeim.
(Úlfar Viktor Björnsson.)
Jóhann Kristinn
Guðrún Guðjónsdóttir.
Elsku amma okkar, nú hefur
þú kvatt okkur og þið afi eruð
saman á ný.
Það var ótrúlega sárt að
kveðja þig og munum við ávallt
hafa þig hjá okkur í minningum.
Við munum aldrei gleyma
heimsóknunum til ykkar afa í
Stífluselið og alltaf varst þú
með nóg af bakkelsi og mat í
boði fyrir okkur krakkana. Við
vorum alltaf velkomin til ykkar
og komum við oft í hádeginu
þegar það var vondur matur í
skólanum. Þá varst þú ekki
lengi að redda málunum og gefa
okkur eitthvað gott og senda
okkur aftur í skólann.
Minnumst við þess einnig
hvað það var gott að koma í
dekur og láta stjana við sig hjá
þér þegar maður var veikur.
Stjanað var við mann eins og
höfðingja og alltaf svo gott að
koma til ykkar afa.
Heimsins þegar hjaðnar rós
og hjartað klökknar.
Jesús gefðu mér eilíft ljós
sem aldrei slökknar.
(Höfundur ók.)
Guð geymi þig, elsku amma,
takk fyrir allar góðu stundirnar
og erum við viss um að þér líður
betur núna og ert sameinuð
elsku afa.
Anna Þóra, Vilmundur
Grétar og Svanur.
Elsku langamma, það var
alltaf svo yndislegt að hitta þig,
svo hlýja og glaða. Þín verður
sárt saknað.
Ísey Carmen, Rakel
Emma, Alexandra Ýr
og Grétar Leó.
Elsku besta amma mín, það
er sárt og næstum ótrúlegt að
þurfa kveðja þig.
Þið afi voruð lengi stoð mín
og stytta, tíminn minn hjá ykk-
ur er ógleymanlegur og mun ég
varðveita minningarnar okkar
ævina alla. Betri manneskjur
var vart hægt að finna.
Ekki var brosið langt undan
hjá ykkur þegar strákurinn
minn hann Jakob kom til pabba
og fékk í leiðinni dekur frá
langömmu og langafa.
Minningarnar okkar eru
endalausar og allar jafn góðar,
gæti ég líklega samið heila bók
með þeim einum. Það vantar
mikið að geta ekki heimsótt
þigr elsku amma.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Guð veri með þér, elsku
amma mín.
Ólafur og Jakob Dagur.
Elsku amma.
Þrátt fyrir að við vissum að
stundin væri að koma þá er
ekkert sem undirbýr mann fyrir
að kveðja, þín veður sárt sakn-
að en minningarnar mun ég
alltaf hafa. Hvort sem minning-
arnar eru úr Stífluselinu þar
sem ég heimsótti ykkur svo
mikið, frá ættarmótunum undir
Eyjafjöllum eða úr Þingásnum
þar sem þið komuð svo oft þá
eru minningarnar með ykkur
afa allar svo kærar og góðar.
Með ykkur afa var auðvelt að
láta sér líða vel og betri mann-
eskjur er ekki hægt að finna.
Eitt er víst, elsku amma, að
mér líður betur að hugsa til
þess að þú ert komin á góðan
stað til hans afa og trúi því að
hjá ykkur sé hún Rebekka litla,
í öruggum höndum.
Elsku amma Munda, minning
þín verður alltaf ljós í lífi okkar.
Guðmundur (Gummi)
og Auður.
Guðmunda Sigur-
björg Sveinsdóttir