Morgunblaðið - 10.03.2020, Blaðsíða 25
samkomur en mér hefur ekki tekist
að koma honum í Heimsmetabók
Guinness sem stærsta leikfanga-
traktor heims. Að auki hef ég smíðað
ýmsa minni hluti, svo sem hjóla-
statíf, dósagám, tunnulaga garðhýsi
og fleira.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Oddný
Sólveig Jónsdóttir, f. 10.12. 1952, rit-
ari. Þau eru búsett á Hvanneyri.
Foreldrar Oddnýjar voru hjónin Jón
Kristinn Guðmundsson, f. 2.3. 1923,
d.19.5. 2004, pípulagningameistari í
Borgarnesi, og Oddný Kristín Þor-
kelsdóttir, f. 18.8. 1920, d. 12.3. 2017,
píanóleikari.
Börn Guðmundar og Oddnýjar
eru 1) Oddný Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 11.10. 1973, viðskiptafræð-
ingur. Maki hennar er Borgar Páll
Bragason fagstjóri, búsett á Hvann-
eyri. Börn þeirra eru Guðmundur
Bragi Borgarsson, f. 2007 og Sólveig
Kristín Borgarsdóttir, f. 2007; 2) Jón
Kristinn Guðmundsson, f. 18.7. 1979,
vélvirki. Maki hans er Valdís Ás-
geirsdóttir verkstjóri, búsett á
Grundarfirði. Börn þeirra eru
Bjargey Jónsdóttir, f. 2004 og
Fanney María Jónsdóttir, f. 2009.
Systkini Guðmundar eru Kristín
Hallgrímsdóttir-Grassl, f. 18.1. 1942,
búsett í Þýskaland, Jónas Bergmann
Hallgrímsson, f. 13.5. 1945, d. 3.5.
1992, bóndi á Helgavatni; Eðvarð
Sigmar Hallgrímsson, f. 22.1. 1948,
húsasmíðameistari, búsettur í
Garðabæ.
Foreldrar Guðmundar voru hjón-
in Hallgrímur Eðvarsson, f. 14.3.
1913, d.18.11. 2000, bóndi á Helga-
vatni, og Þorbjörg Eðvarðsdóttir, f.
31.5. 1917, d.11.10. 2005, húsfreyja á
Helgavatni.
Guðmundur
Hallgrímsson
Elínborg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Syðri-Völlum
Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Syðri-Völlum á Vatnsnesi
Guðrún Kristín Bergmann Guðmundsdóttir
húsfreyja á Marðarnúpi og Stóru-Giljá á Ásum
Jónas Bergmann Björnsson
b. á Marðarnúpi og trésmíðameistari á Stóru-Giljá
Þorbjörg Jónasdóttir
húsfreyja á Helgavatni
Þorbjörg Helgadóttir
húsfreyja og ljósmóðir á Marðarnúpi
Björn Leví Guðmundsson
bóndi á Marðarnúpi í Vatnsdal
Elínborg Kristín Tómasdóttir
húsfreyja á Skarði
Böðvar Guðmundsson
bóndi á Skarði í Haukadal
Signý Böðvarsdóttir
húsfreyja á Helgavatni
Eðvarð Hallgrímsson
bóndi á Helgavatni
Sigurlaug Guðlaugsdóttir
húsfreyja á Snæringsstöðum
og í Hvammi
Hallgrímur Hallgrímsson
bóndi á Snæringsstöðum í Svínadal
og í Hvammi í Vatnsdal
Úr frændgarði Guðmundar Hallgrímssonar
Hallgrímur Eðvarðsson
bóndi á Helgavatni í Vatnsdal
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
veita náttúrulega vörn
gegn bakteríum í munninum
Tvíþætt sink
og arginín
Dregur úr
tannskán
Styrkir
glerunginn
Dregur úr
tannskemmdum
Frískari
andardráttur
Dregur úr
blettamyndun
Dregur úr
viðkvæmni
Dregur úr
tannsteini
Fyrirbyggir
tannholdsbólgu
NÝTT
Veruleg fækkun baktería á
tönnum, tungu, kinnum og
gómi eftir samfellda notkun
í fjórar vikur.
BYLTING FYRIR
ALLANMUNNINN
Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold
Frábær
vörn í
12
tíma
„JÓNFRÍÐUR, HVAÐ ER BEST AÐ NOTA Á
KLOFNA ENDA?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... þegar við söknum
þín öll.
VÁ… ÉG HEYRI
SJÁVARNIÐ
NETTENGINGIN Á
STRÖNDINNI ER
FRÁBÆR
SVO LENGI SEM ÉG ÞARF EKKI AÐ REYTA ARFANN!JÚ!!SJÁÐU FALLEGA GRÆNMETISGARÐINN
OKKAR! FYLLIR HANN
ÞIG EKKI GLEÐI?
BIRGIR VAR HRIFINN AF
LAUSAGÖNGUHÆNUM – BARA EKKI ÞEIM
SEM VORU SNARAR Í SNÚNINGUM.
ÞETTA ER
EKKI BÚIÐ
Sigurlín Hermannsdóttir yrkirog kallar „Vetrarhremmingar“
– segir að athygli sín hafi verið vak-
in á því hvernig íslenskun ’covid’
gæti verið:
Þótt kafald og kuldi’ á mig skelli
og kófið mig bíti í eyra
held ég samt enn meira hrelli
helvítis kófid-veira.
Ingólfur Ómar skrifaði í Leirinn
á sunnudag: „Vaknaði snemma í
morgun, dreif mig út í göngu og
virti fyrir mér fegurð himins í
þessu heiðskíra veðri þó að kalt sé
en sú gula bætir úr því fljótt enda
er daginn farið að lengja og þá lifn-
ar yfir sálartetrinu:
Himinskálann björt og blíð
birtu málað getur.
Geislum strjálar glóey fríð
glæðir sálartetur.
Jón Gissurarson skrifaði í Leir-
inn á laugardag:
Fönnum skrýdd er fjallabrún
fellur skuggabandið.
Gefur okkur geislarún
glit á föðurlandið.
„Frostið er nú um fimm gráður
hér á Víðimýrarseli, var um átta-
leytið í morgun níu gráður. Á því
getum við séð hvað sólin er farin að
hafa mikil áhrif. Daginn er nú
mikið farið að lengja og birtan því
óðum að víkja myrkrinu til hliðar
og þrátt fyrir nokkurn vindstrekk-
ing með skafrenningi af suðri er
Skagafjörður fagur yfir að líta í
birtunni frá geislum sólarinnar!“
Á sunnudaginn bætti Jón við:
„Þegar ég leit út um gluggann um
hálfáttaleytið í morgun kom þetta
upp í hugann:
Lít ég yfir landið frítt
lýðum frá því segi.
Fjallkonunni förlast lítt
farið að birta af degi.
Hér er hæglætisveður með sjö
gráða frosti. Vel sést til allra átta.
Sólin roðar skýjaslæðu himin-
hvolfsins.“
Ekki er gott hljóðið í Magnúsi
Halldórssyni:
Þjóðarinnar þyngist ok,
við þurfum ekki fleira.
Söngvakeppni, sífellt rok
og síðan þessi veira.
Ekki er útlitið gott. Sigurður
Óttar Jónsson yrkir:
Kraumar víða kjarastríð
kuldatíð og hríðir.
Víst um síðir valdsins níð
verkalýðinn hlýðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vetrarhremmingar
og fegurð himinsins