Morgunblaðið - 10.03.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2020
England
Leicester – Aston Villa ............................ 4:0
Staðan:
Liverpool 29 27 1 1 66:21 82
Manch.City 28 18 3 7 68:31 57
Leicester 29 16 5 8 58:28 53
Chelsea 29 14 6 9 51:39 48
Manch.Utd 29 12 9 8 44:30 45
Wolves 29 10 13 6 41:34 43
Sheffield Utd 28 11 10 7 30:25 43
Tottenham 29 11 8 10 47:40 41
Arsenal 28 9 13 6 40:36 40
Burnley 29 11 6 12 34:40 39
Crystal Palace 29 10 9 10 26:32 39
Everton 29 10 7 12 37:46 37
Newcastle 29 9 8 12 25:41 35
Southampton 29 10 4 15 35:52 34
Brighton 29 6 11 12 32:40 29
West Ham 29 7 6 16 35:50 27
Watford 29 6 9 14 27:44 27
Bournemouth 29 7 6 16 29:47 27
Aston Villa 28 7 4 17 34:56 25
Norwich 29 5 6 18 25:52 21
Rússland
Rostov – CSKA Moskva .......................... 3:2
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór
Sigurðsson léku allan leikinn með CSKA og
Arnór skoraði fyrra markið.
Spartak Moskva – Krasnodar ................ 0:1
Jón Guðni Fjóluson kom inn á hjá Kras-
nodar á 90. mínútu.
Ítalía
Sassuolo – Brescia ................................... 3:0
Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Brescia.
Danmörk
Silkeborg – AGF ...................................... 2:1
Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á sem
varamaður á 57. mínútu hjá AGF.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
AIK – Kalmar........................................... 3:1
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi AIK.
Hvíta-Rússland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Dinamo Minsk – BATE Borisov............. 1:2
Willum Þór Willumsson lék fyrstu 73
mínúturnar með BATE.
Vináttuleikur U19 kvenna
Þýskaland – Ísland .................................. 0:2
Ída Marín Hermannsdóttir 32., Barbára
Sól Gísladóttir 76.
SheBelieves-bikar kvenna
Japan – England ...................................... 0:1
Ellen White 83.
Bandaríkin – Spánn................................. 1:0
Julie Ertz 87.
Bandaríkin 6 stig, Spánn 3, England 3,
Japan 0. Lokaumferð annað kvöld.
Danmörk
Nordsjælland – Bjerringbro/Silk ..... 30:34
Þráinn Orri Jónsson skoraði 3 mörk fyr-
ir Bjerringbro/Silkeborg.
Aarhus – Ribe-Esbjerg ....................... 20:16
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg en Daníel Þór Ingason og
Gunnar Steinn Jónsson skoruðu ekki.
Svíþjóð
Malmö – Alingsås ................................ 19:29
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Svíþjóð
Luleå – Borås ....................................... 84:78
Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig,
gaf 7 stoðsendingar og tók 1 frákast hjá Bo-
rås á 32 mínútum.
NBA-deildin
Brooklyn – Chicago.......................... 110:107
Minnesota – New Orleans ............... 107:120
LA Clippers – LA Lakers................ 103:112
Boston – Oklahoma City .................. 104:105
Phoenix – Milwaukee ....................... 140:131
Washington – Miami .......................... 89:100
Dallas – Indiana................................ 109:112
Houston – Orlando ........................... 106:126
Cleveland – San Antonio ......... (frl.) 132:129
New York – Detroit.............................. 96:84
Sacramento – Toronto ..................... 113:118
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Hveragerði: Hamar – Selfoss.............. 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
KR-völlur: KR – Leiknir R....................... 19
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – SR................................ 19.30
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik mætir Tyrkjum í tveimur
leikjum síðar í mánuðinum í und-
ankeppni Evrópumótsins þar sem
leikið er um sæti í lokakeppninni
sem fer fram í Danmörku og Noregi
í desember á þessu ári.
Ísland fékk skell í Osijek gegn
Króatíu í fyrsta leik, tapaði 29:8, en
stóð svo lengi vel í heims- og Evr-
ópumeisturum Frakka í síðari leikn-
um á Ásvöllum. Leikurinn tapaðist
þó engu að síður, 23:17, en aðeins
efstu tvö sæti riðilsins gefa sæti á
EM. Ísland mætir Tyrkjum heima
og að heiman með nokkurra daga
millibili og ættu þar að vera auknir
möguleikar á úrslitum. Tyrkland var
styrkleikaflokki ofar en Ísland þeg-
ar dregið var í riðlana en Ísland
vann hinsvegar stórsigur, 36:23,
þegar liðin mættust í undankeppni
HM á síðasta ári.
Leikirnir í haust svart og hvítt
Morgunblaðið heyrði í Arnari Pét-
urssyni landsliðsþjálfara sem til-
kynnti í gær leikmannahópinn sem
mætir Tyrkjum. Hann er vongóður
um góða frammistöðu sem og úrslit í
leikjunum tveimur eftir að hafa séð
bestu og verstu hliðar liðsins í fyrra.
„Leikirnir í haust voru svart og
hvítt. Við sáum miklar framfarir í
seinni leiknum og spiluðum ágæt-
lega við Færeyinga í þessum æf-
ingaleikjum. Við erum alltaf að bæta
við okkar leik, bæði í vörn og sókn,“
sagði Arnar.
„Tyrkirnir eru í styrkleikaflokk
fyrir ofan okkur, við erum að spila
við lið sem er hærra skrifað en við.
Þannig að við þurfum að eiga góða
leiki til að vinna þá, sem við ætlum
okkur klárlega að gera.“
Arna með á nýjan leik
Nokkrar breytingar eru á hópn-
um frá því í haust, Andrea Jacobsen,
leikmaður Kristianstad í Svíþjóð,
sleit krossband nýlega og Ester
Óskarsdóttir í ÍBV er í barneign-
arleyfi. Hin margreynda Arna Sif
Pálsdóttir úr Íslandsmeistaraliði
Vals kemur inn í hópinn ásamt
Sunnu Jónsdóttur úr ÍBV en Hafdís
Renötudóttir verður ásamt Elínu
Jónu Þorsteinsdóttir í marki.
„Arna er margreynd, hefur verið
að glíma við meiðsli en hún er að
komast í betra og betra stand. Ég
hef fylgst vel með henni og það var
eðlilegt að hún kæmi inn. Sunna hef-
ur verið að spila frábærlega, sér-
staklega eftir áramót, og hefur ekki
verið í ósvipuðu hlutverki en hún
mun vera í hjá okkur með landslið-
inu.“
„Ester er í barneignarfríi og
Andrea sem var að leysa hana af
framar í vörninni sleit krossband.
Við þurfum að fara í taktískar breyt-
ingar og færa til leikmenn.“
Markmiðið er framfarir
Möguleikar Íslands á að komast
áfram eru litlir eftir tapið slæma
gegn Króötum í fyrsta leik en Arnar
segir það aldrei hafa verið sitt mark-
mið að koma liðinu strax á stórmót.
„Markmiðið var að taka fram-
förum, verða betri. Eftir tapið gegn
Króatíu í fyrsta leik og verandi í riðli
með heims- og Ólympíumeisturum
Frökkum, var nokkuð ljóst að það
yrði erfitt að fara upp úr þessum
riðli. En það var aldrei markmiðið
hjá mér, heldur að bæta okkar leik
og setja upp strúktúr og skipulag
sem hægt væri að byggja ofan á.“
Þá segir hann leikina gegn Tyrkj-
um gott tækifæri til að sjá hvar
landsliðið stendur í dag. „Hvar við
getum staðsett okkur upp á framtíð-
ina og hvernig við horfum á komandi
verkefni veltur auðvitað dálítið á
þessum leikjum.“
Tækifæri til að
sjá hvar liðið
stendur í dag
Arnar valdi 18 manna landsliðshóp
fyrir EM-leikina gegn Tyrkjum
Morgunblaðið/Eggert
Reynd Arna Sif Pálsdóttir er í landsliðinu á ný en hún er næstleikjahæsta
landsliðskona Íslands frá upphafi með 150 landsleiki að baki.
Leicester vann sinn fyrsta sigur í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síð-
an 22. janúar er liðið keyrði yfir
granna sína í Aston Villa á heima-
velli, 4:0, í gærkvöld. Jamie Vardy
og Harvey Barnes skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Leicester. Sigurinn
var mikilvægur í baráttunni um
Evrópusæti og er Leicester nú með
53 stig í þriðja sæti, fimm stigum á
undan Chelsea í fjórða sæti og átta
stigum á undan Manchester United
í fimmta sæti. Aston Villa er í næst-
neðsta sæti með 25 stig, tveimur
stigum frá öruggu sæti.
Styrktu stöðuna í
Evrópubaráttunni
AFP
Evrópa Leicester ætlar sér sæti í
Meistaradeild Evrópu.
Keilarinn Arnar Davíð Jónsson
tryggði sér um helgina keppnisrétt
í World Series of Bowling-
mótaröðinni í Bandaríkjunum með
því að lenda í 2. sæti í undankeppni.
Mótin fara fram í Las Vegas og þar
munu 120 bestu keilarar heims
keppa um fjóra titla á bandaríska
atvinnumannatúrnum. Arnar er
annar Íslendingurinn sem hefur
fengið þátttökurétt á WSOB-mótinu
og sá þriðji sem keppir á PBA-
túrnum en Stefán Claessen keppti á
PBA-móti 2009 og Hafþór Harð-
arson á WSOB fyrir nokkrum árum.
Arnar keppir við
þá allra bestu
Ljósmynd/KLÍ
Fella Arnar Davíð Jónsson mun
spila við bestu keiluspilara heims.
MARKVERÐIR:
Hafdís Renötudóttir, Fram .................................................................. 28/1
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel................................................ 25/0
AÐRIR LEIKMENN:
Arna Sif Pálsdóttir, Val.................................................................. 150/282
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram ................................................... 106/309
Karen Knútsdóttir, Fram............................................................... 102/369
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Esbjerg.................................................... 94/191
Birna Berg Haraldsdóttir, Neckarsulmer ..................................... 58/118
Sunna Jónsdóttir, ÍBV ........................................................................ 56/42
Thea Imani Sturludóttir, Oppsal....................................................... 40/54
Helena Rut Örvarsdóttir, SönderjyskE............................................ 37/77
Eva Björk Davíðsdóttir, Skuru.......................................................... 36/28
Steinunn Björnsdóttir, Fram ............................................................. 35/27
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Bourg-de Péage ...................... 34/66
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram ......................................................... 26/27
Perla Ruth Albertsdóttir, Fram ........................................................ 24/30
Díana Dögg Magnúsdóttir, Val ......................................................... 22/19
Lovísa Thompson, Val ........................................................................ 19/28
Sigríður Hauksdóttir, HK .................................................................. 16/34
Hópurinn fyrir Tyrkjaleikina
Helgi Sveinsson, einn fremsti spjótkastari heims í röðum
fatlaðra, keppir að óbreyttu á kastmóti í Danmörku um
næstu helgi og fær þar tækifæri til að tryggja sér þátt-
tökurétt á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, sem fram
fer í Tókýó dagana 25. ágúst til 6. september.
Stóru frjálsíþróttamóti fatlaðra sem fram átti að fara í
Dubai um næstu helgi var frestað á dögunum og þar með
er fjöldi íþróttamanna í vandræðum með að komast á
mót til að ná tilsettum lágmörkum fyrir leikana í Tókýó
en frestur til að ná þeim rennur út 1. apríl. Um 700 kepp-
endur voru skráðir til leiks í Dubai, fjórir þeirra frá Ís-
landi.
Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri hjá Íþróttasambandi fatlaðra,
staðfesti að verið væri að ganga frá lausum endum til að Helgi gæti farið til
Danmerkur og unnið væri að því að finna mót fyrir aðra íslenska íþrótta-
menn sem berjast við að ná lágmörkunum. vs@mbl.is
Helgi fer á mót í Danmörku
Helgi
Sveinsson
Ólympíunefnd Ítalíu ákvað í gær að engir íþrótta-
viðburðir fari fram í landinu þar til 3. apríl næstkomandi
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Yfir 300 manns hafa
látist af völdum veirunnar á Ítalíu. Nokkrum spurn-
ingum er enn ósvarað og er óvíst hvort tímabilin í ítalska
fótboltanum verði kláruð og hvar heimaleikir ítalskra
félaga í Evrópukeppnum fara fram.
Knattspyrnumennirnir Emil Hallfreðsson og Birkir
Bjarnason leika með félögum á Norður-Ítalíu, þar sem
ástandið hefur verið hve verst. Klara Bjartmarz, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sagðist í samtali við Morgunblaðið
óviss um hvort Emil og Birkir gætu leikið við Rúmeníu í
umspili um sæti á EM 26. mars næstkomandi. Þá er undanriðill íslenska
U19 ára landsliðsins fyrir EM, sem átti að fara fram á Ítalíu, í uppnámi og
hafði Knattspyrnusamband Evrópu ekki svarað fyrirspurnum KSÍ í gær.
Emil lék með Brescia í 0:3-tapi fyrir Sassuolo í ítösku A-deildinni í gær, í
síðasta leik deildarinnar í nokkurn tíma.
Mörgum spurningum ósvarað
Birkir
Bjarnason