Morgunblaðið - 10.03.2020, Síða 32
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík
Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Gott úrval af
REIMUM
í snjósleða,
fjórhjól og bíla
2012
2019
Kvartett gítarleikarans Bjarna Más
Ingólfssonar kemur fram á djass-
kvöldi Kex hostels í kvöld og hefur
leik kl. 20.30. Auk Bjarna skipa
kvartettinn Tómas Jónsson á píanó,
Magnús Trygvason Eliassen á
trommur og Birgir Steinn Theo-
dórsson á kontrabassa. Þeir munu
leika úrval djassstandarda í bland
við frumsamið efni eftir Bjarna Má.
Kvartett Bjarna
djassar á Kex hosteli
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik mætir Tyrkjum í tveimur
leikjum síðar í mánuðinum í und-
ankeppni Evrópumótsins þar sem
leikið er um sæti í lokakeppninni
sem fram fer í Noregi og Dan-
mörku í desember á þessu ári.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Pét-
ursson segir liðið ætla sér sigur í
báðum leikjunum. »26
Ísland ætlar sér tvo
sigra gegn Tyrklandi
ÍÞRÓTTIR MENNING
verið með þetta
þema í huga
undanfarin ár og
hugsað mikið um
það.“ Hann bætir
við að miklu máli
skipti að hlusta á
fólk, styðja það og
styrkja með faðm-
lagi. „Standa með
fólki, hvar í sveit sem það er sett í
trúmálum, stjórnmálum eða öðru,“
leggur hann áherslu á.
Ljóðum Sigurbjörns hefur víða
verið vel tekið og hann segist fá ótal
beiðnir um að tala í kirkjum og víð-
ar, meðal annars séð um messur í
Fríkirkjunni í afleysingum og verið
síðast ræðumaður í Breiðholtskirkju
í fyrradag. „Ég gæti verið úti um
víðan völl ef ég tæki öllum boðum, en
ég er hættur að treysta mér í það og
hef því dregið úr heimsóknum.
Mestu skiptir að ljóðin fái að lifa
sjálfstæðu lífi og verði fólki til upp-
örvunar og blessunar.“
Ljóð Sigurbjörns endurspegla á
vissan hátt lífsins gang, þar sem
skiptast á skin og skúrir. „Ég yrki
bæði gleðiljóð og vonarrík en líka
dökk, þar sem ég bendi á að í allri
glímunni er það einmitt þar sem guð
er. Hann er ekki bara í sólinni, þó að
ég sé mikið þar, heldur líka þar sem
manni líður verst.“
Sigurbjörn greindist með krabba-
mein 2013 og hefur verið í meðferð
síðan. Hann segir að hann sé kominn
á hátæknilyf, sem enn sé ekki vitað
hvernig virki, en hann tóri enn. „Ég
þakka fyrir hvern dag en það er ekk-
ert fararsnið á mér,“ segir hann.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljóðskáldið og rithöfundurinn
Sigurbjörn Þorkelsson hefur sent
frá sér ljóðabókina Faðmlög með
140 nýjum og áður óbirtum ljóðum
auk 15 eldri ljóða og þriggja bæna.
Þetta er þrítugasta bók höfundar á
nýliðnum 25 árum.
Ljóðunum er skipt í níu flokka
sem mynda samstæða heild. Þemað
er faðmlög, eins og nafn bókarinnar
og titilljóðið gefa til kynna:
Einu
grundvallarlögin
sem við
í raun og veru
þurfum á að halda
í þessari veröld
eru:
Faðmlög
„Þetta kemur vel á vondan þessa
dagana þegar eiginlega er búið að
setja lögbann á faðmlög og handa-
bönd, en bókin kemur út á réttum
tíma, því við þurfum öll á faðmlagi að
halda, ekki síst núna,“ segir Sigur-
björn. „Ríkisstjórnin, sóttvarna- og
heilbrigðisyfirvöld og lögreglan
halda vel utan um okkur með að-
gerðum sínum í tengslum við kór-
ónuveiruna og við þurfum að standa
saman, umfaðma hvert annað.“
Fyrsti kaflinn fjallar um kærleik
og faðmlög, sá næsti um ástina og
lífið og sá þriðji um ferðalög og upp-
lifanir. Þar á meðal er ljóðið Upp-
gjör!, sem fjallar um ferð til Krítar
sex árum eftir að Sigurbjörn var þar
með eiginkonu sinni og fékk símtal
þess efnis að hann hefði greinst með
krabbamein. „Ég fór aftur á sama
stað og skilaði því,“ segir hann.
Stuðningur mikilvægur
Í tilefni 55 ára afmælis höfundar
kom út fyrir um ári bókin Lífið er
ljóðasafn, þar sem birtust 312 valin
ljóð úr fyrri bókum frá árinu 2000.
Þar á undan sendi Sigurbjörn frá sér
bókina Lifi lífið 2017 og segir hann
að nokkur ljóð í nýjustu bókinni hafi
þá þegar verið komin á blað. „Ég hef
Allir þurfa núna á
faðmlagi að halda
Sigurbjörn Þorkelsson sendir frá sér 30. bókina á 25 árum
Faðmlag Hjónin Sigurbjörn Þorkelsson og Laufey Geirlaugsdóttir.
Andrew Parsons, forseti Alþjóða-
ólympíunefndar fatlaðra og nefnd-
armaður í Alþjóðaólympíunefnd-
inni, sagði við Morgunblaðið í gær
að hann væri afar hrifinn af sam-
vinnu Norðurlandaþjóðanna og að
fámennar þjóðir geti lært mikið af
Íslendingum og uppbyggingu
þeirra á íþróttum fatlaðra. Spurð-
ur um Ólympíuleikana og Ólympíu-
mót fatlaðra í Tók-
ýó í sumar og
mögulega frestun
vegna kórónuveir-
unnar sagði Par-
sons að slíkt
væri ekki inni
í myndinni
eins og stað-
an væri
núna. »27
Geta lært af uppbygg-
ingu Íslendinga