Morgunblaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 9
www.fi.is
Við erum öll almannavarnir
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími 568 2533 | www.fi.is
Almannavarnagöngur
Ferðafélags Íslands
Engan háska um páska – Gaman saman heima
Ferðafélag Íslands hvetur alla til að fara
í gönguferðir í sínu nærumhverfi undir yfirskriftinni
Almannavarnagöngur Ferðafélags Íslands
• Gönguferðirnar í þessu verkefni eiga að vera frá heimili hvers þátttakenda þar sem gengið
er í nærumhverfinu, allar götur og gönguleiðir í nærumhverfinu þræddar, gengið á hvern
hól og hæð og um leiðir sem viðkomandi hefur ekki gengið áður í nærumhverfinu og eða
gönguleiðir sem viðkomandi kann og þekkir.
• Gengið er með maka eða fjölskyldumeðlimum eða einn eftir atvikum.
• Fyrir, eftir eða á meðan göngunni stendur skal hringt í vin og sagt frá gönguferðinni
og viðkomandi hvattur til að fara út að ganga. Enn betra er að hringja í vini sem þurfa
sérstaklega á því að halda.
• Taka skal mynd í gönguferðinni og birta í Facebook hóp verkefnisins FÍ Almannavarna-
göngur og merkja þær #ferdafelagislands. Eftir fjórar vikur verður dregið úr hópi
þátttakenda sem sent hafa myndir úr göngunum og hljóta 5 heppnir göngugarpar
glæsilega ferðavinninga með Ferðafélagi Íslands í sumar.
Almannavarnagöngur Ferðafélagsins eru gengnar til heiðurs starfsfólki í heilbrigðisþjónustunni
sem vinnur einstakt starf undir miklu álagi við þær aðstæður sem nú eru uppi og eins til heiðurs
almannavarnanefndar og þeim hópi fólks sem leiðir nú leiðangurinn upp brekkuna sem samfélagið
er að klífa.
Eins eiga almannavarnagöngur FÍ að minna fólk stöðugt á að við erum öll almannavarnir og
fylgjum reglum um fjarlægð í samskiptum og notum bros og hlýju í stað handabands eða faðmlags
og munum eftir öllum reglum um hreinlæti.
Við þær aðstæður sem nú eru uppi er mikilvægt að huga vel að heilsunni, þar með talið að sofa
vel, borða hollan og góðan mat, brosa, hlæja og hafa gaman og góð gönguferð úti í náttúnni í
fárra vina hópi er án efa eitt það allra besta sem hægt að gera.