Morgunblaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
AF SÖFNUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fátt er svo með öllu illt að ekkiboði nokkuð gott segir mál-tækið og það á við kórónu-
veirufarsóttina líkt og annan fjára.
Óþarfi er að nefna allt það slæma
sem veiran hefur í för með sér, um
það hefur verið fjallað í hverjum ein-
asta fréttatíma vikum saman. Hið
góða er að samkomubann gæti örv-
að samskipti fólks, eins þversagna-
kennt og það hljómar, því þörfin fyr-
ir að umgangast og tala við aðra
verður líklega aldrei meiri en ein-
mitt þegar það er ekki hægt. Fjar-
fundir og samtöl í síma og um netið,
hvort sem þau eru á Messenger,
Skype eða í öðru forriti, verða nauð-
synleg geðheilsunni og þörfin fyrir
afþreyingu og listir mun ekki hverfa
frekar en þörfin fyrir að eiga sam-
skipti við aðra. Listasöfn og annars
konar söfn hafa lokað dyrum sínum
víða um heim en þau eru hins vegar
mörg hver opin allan sólarhringinn
á netinu. Og það besta er að maður
þarf ekki að standa í langri biðröð
eftir aðgöngumiða.
Ferðalag um heimsálfur
Ef þú, lesandi góður, hefur ekki
heimsótt merkustu listasöfn heims-
ins þá er kominn tími til að þú gerir
það.
Hefjum ferðina í Lundúnum. Þar
eru mörg merk söfn og sum hver
meðal þeirra bestu í heimi. British
Museum er stórmerkilegt safn sem
hefur að geyma margan merkan
gripinn, múmíur og fleira. Við upp-
haf netheimsóknar geturðu valið þér
heimsálfu, t.d. Afríku, og síðan valið
úr flokkum listar og hönnunar, lífs
og dauða, valds og ímyndar, trúar-
bragða og þannig mætti áfram telja.
Hægt er að lesa um gripi safnsins
eða velja upplestur. Auðveldlega má
verja heilum degi á þessum vef.
Frá Lundúnum getum við stokkið
til Flórens, heimsótt hið merka safn
Uffizi og fræðst um nýlega sýningu
þar sem fjallað er um verk í eigu
safnsins sem tengjast ítalska skáld-
inu Dante. Hægt er að þysja inn í
málverkin og virða vel fyrir sér
pensilstrokur og sprungur í máln-
ingunni því ljósmyndir af verkunum
eru teknar í afar hárri upplausn og
mikilli skerpu. Eitt þekktasta mál-
verk safnsins, „Fæðing Venusar“
eftir Sandro Botticelli, má virða
gaumgæfilega fyrir sér líkt og
„Bakkus“ eftir Michelangelo Merisi
detto il Caravaggio, svo aðeins tvö af
fjölmörgum meistaraverkum safns-
ins séu nefnd. Skylduheimsókn fyrir
alla myndlistaráhugamenn og -unn-
endur.
153 verk til sýnis
Frá Flórens gætum við stokkið
yfir til Parísar í hið fagra D’Orsay-
listasafn. Forvitnilegt er að fræð-
ast um sögu safnsins, sem áður var
lestarstöð, og hægt að kafa ofan í
einstaka safneignina á lista- og
menningarvef Google. Má þar
þysja inn í sjálfsmynd Vincents van
Gogh frá árinu 1889, grandskoða
magnað málverk Edgars Degas af
Belelli-fjölskyldunni frá árinu 1860
og ekki síðra verk James Abbotts
McNeills Whistler af móður sinni
frá árinu 1871. Nú eða verk minna
þekktra listamanna sem þurfa þó
ekki að vera neitt síðri. 153 verk
eru í boði með fróðleik bæði um þau
og listamennina og auðvelt að
gleyma sér við þessa safnskoðun
klukkutímum saman.
Frá Taipei til New York
Ef þú vilt eitthvað meira fram-
andi, lesandi góður, gætirðu stokk-
ið til Taívan, nánar tiltekið borgar-
innar Taipei, og heimsótt svokallað
hallarsafn borgarinnar. Þótt sjálf-
um þyki mér heldur óspennandi að
bruna um gangana, líkt og ég væri
á staðnum á rafskútu, er hiklaust
hægt að mæla með heimsókn í
safnið fyrir þá sem það kjósa.
Einnig má velja staka gripi, lesa
um þá og virða þá fyrir sér, m.a.
gripi sem teljast til meistaraverka í
Taívan.
Frá Taipei má hoppa yfir til New
York í eitt þekktasta og besta lista-
safn heims, The Museum of
Modern Art eða MoMa. Bæði má
þar sjá yfirstandandi sýningar og
flokkun verka eftir miðlum og
tímabilum. Google og MoMa bjóða
upp á 129 verk að rýna í.
Alltaf betra að vera á staðnum
Auðvitað kemur þessi netupp-
lifun aldrei í stað hinnar raunveru-
legu, að vera á staðnum. Ekkert jafn-
ast á við að sjá merkustu listaverk
sögunnar í návígi, að sjálfsögðu ekki,
og það getur að sama skapi enginn
haldið því fram að betra sé að horfa á
tónleika á netinu en að vera á
staðnum. Nema þeir sem óttast fjöl-
menni.
Þar til samkomubanni lýkur
gerum við okkur netheimsóknir að
góðu og þökkum fyrir hið mikla og
frábæra framboð listaverka sem
finna má á netinu og listviðburði í
beinni útsendingu. Þökkum fyrir að
tæknin stytti okkur stundir og létti
okkur lífið á tímum kórónuveirunnar.
Merkustu söfn heims heima í stofu
Lokað Nútímalistaafnið MoMA í New York hefur nú læst dyrum sínum en er galopið allan sólarhringinn á netinu.
Meistaraverk „Fæðing Venusar“ eftir Botticelli er eitt af verðmætustu verkum Uffizi í Flórens. Hægt er að heimsækja safnið á netinu.
»Hægt er að þysja inní málverkin og virða
fyrir sér pensilstrokur
og sprungur í olíu-
málningunni því ljós-
myndir af verkunum
eru teknar í gríðarhárri
upplausn og mikilli
skerpu.
Stingandi Þysjað inn í sjálfsmynd
eftir van Gogh sem finna má í
D’Orsay-safninu í París. Augnaráð-
ið heldur stingandi, eins og sjá má.
Sótthreinsun Starfsmaður sótthreinsar gripi tengda faraónum Tutankam-
un í þjóðminjasafni Egypta í Kaíró 23. mars sl. Safninu hefur verið lokað.
Ljósmynd/Luke Massey & the Greater London National Park City Initiative
Gríðarstórt Hið mikla safn British Museum í Lundúnum rúmar margan
gripinn og vefsíða safnsins er líka sneisafull af efni og fróðleik.
AFP
AFP