Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 4

Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Ragnhildur Þrastardóttir Alexander Gunnar Kristjánsson Lögreglunni bárust óvenjumörg útköll vegna hávaða í heimahúsum um helgina, að sögn Víðis Reyn- issonar yfirlögregluþjóns, sem seg- ir að það geti gefið til kynna að fólk sé aðeins farið að slaka á þeim tak- mörkunum sem settar hafi verið á daglegt líf með samkomubanni. Bann við samkomum 20 manns eða fleiri er enn í gildi og breytist það ekki fyrr en 4. maí næstkom- andi. Tilkynning vegna tilslakana á því verður að öllum líkindum birt síðdegis í dag. Alls greindust sex ný smit á föstudag og ellefu á laugardag. Fimm af þeim sem greindust á laugardag búa á höfuðborgarsvæð- inu en sex á Vestfjörðum. Þá hafa virk smit ekki verið færri síðan 20. mars. Eins og áður hefur komið fram kom upp hópsýking kórónuveiru á Bolungarvík, en tíðni samfélags- legs smits á norðanverðum Vest- fjörðum er 0,4% samkvæmt skimun Íslenskrar erfðagreiningar. Sveiflur í smitum á milli daga Á upplýsingafundi almanna- varnadeildar ríkislögreglustjóra í gær sagði Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir að faraldurinn væri í mikilli niðursveiflu en áfram yrðu sveiflur á milli daga og fleiri smit myndu greinast. Víðir benti á að þótt fólki kynni að þykja 5-6 smit mjög lítið núna eftir að hafa séð tugi smita síðustu daga væri engu að síður um mörg smit að ræða. „Hugsið bara til baka hvernig þetta var hér í upphafi. Þá þótti okkur þetta mjög mikið,“ sagði Víðir og minnti fólk á að á meðan um helmingur þeirra sem greindist væri utan sóttkvíar dreifði hann veirunni áfram á meðan hann er hvorki í sóttkví né einangrun. Spurður hvort fólk væri farið að draga úr því að hlýða Víði sagði Víðir: „Ég held að fólk hlýði bara sjálfu sér. Það voru óvenjumörg útköll vegna hávaða í heimahúsum, það er vísbending um að menn hafi eitt- hvað verið að sletta úr klaufunum í gær. Við erum ekki með neinar ná- kvæmar tölur um það en ég veit ekki til þess að það séu kærur vegna brots á samkomubanni en það eru ákveðnar vísbendingar um að eitthvað hafi verið í gangi.“ Þorgerður Diðriksdóttir, for- maður Félags grunnskólakennara, sagði í viðtali sem birtist í Morg- unblaðinu í vikunni að þörf væri á því að stjórnvöld útskýrðu betur hvað þau ættu við með því þegar þau segðu að skólahald yrði með eðlilegum hætti í grunnskólum frá og með 4. maí næstkomandi. Spurður út í þetta sagði Víðir að ekki væri búið að funda sérstak- lega með skólastjórnendum. Hins vegar væri gengið út frá því að skólahald gæti farið fram með ná- kvæmlega sama hætti og fyrir fyrsta samkomubann. Þá skilaði Þórólfur minnisblaði til heilbrigð- isráðherra í gær þar sem nánar er kveðið á um fyrirkomulag leik- og grunnskóla eftir tilslakanir sam- komubanns 4. maí. Einungis 4% greindra smita hér- lendis hafa greinst hjá erlendum ríkisborgurum. 14% þeirra sem hér búa hafa ekki íslenskt ríkisfang og því var Þórólfur spurður út í skýr- ingar á því að svo lágt hlutfall greindra smita kæmi frá erlendum ríkisborgurum. Hann hafði ekki skýringar á því en útilokaði ekki að erlendir ríkisborgarar sæktu síður í skimun en aðrir og nefndi að Ís- lensk erfðagreining ætlaði sér í sérstakt átak til að ná til erlendra ríkisborgara. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 2 82 Útlönd 1 0 Austurland 8 22 Höfuðborgarsvæði 1.295 811 Suðurnes 77 50 Norðurland vestra 35 1 Norðurland eystra 46 47 Suðurland 176 75 Vestfirðir 90 97 Vesturland 41 34 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 42.762 sýni hafa verið tekin 1.328 einstaklingar hafa náð bata 9 einstaklingar eru látnir 28 eru á sjúkrahúsi 4 á gjör-gæslu 434 eru í einangrun Fjöldi smita frá 28. febrúar til 18. apríl Heimild: covid.is 1.771 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.771 434 feb. 1.650 1.375 1.100 825 550 275 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 80% 53% 9,9% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,62% sýna tekin hjá ÍE 17.891 hafa lokið sóttkví1.220 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit mars apríl Hávaðaútköll í samkomubanni  Óvenjumörg útköll vegna hávaða benda til slaka hjá almenningi  Sóttvarnalæknir skilaði minnis- blaði vegna skólahalds til ráðherra í gær  Engin skýring á lágu hlutfalli smitaðra útlendinga Ljósmynd/Lögreglan Tvíeyki Að venju hófu Víðir og Þórólfur fundinn á því að spritta á sér hendurnar enda allur varinn góður. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Umferðin hérna á flugvellinum hefur dregist ansi mikið saman, hvort tveggja hefðbundið farþega- flug og þyrluumferð út á olíu- borpallana,“ segir Jakob Sigurð- arson, hlaðmaður á Sola-- flugvellinum, rétt utan við Stavanger í Noregi, í samtali við Morgunblaðið, en þau sambýling- arnir, Jakob og Helga Sjöfn Magn- úsdóttir, starfa bæði á flugvell- inum. Átta af 64 eftir „Ég er „delpermittert“ núna og þetta ástand er auðvitað nær for- dæmalaust, það eru átta af 64 starfsmönnum eftir í vinnu á ramp- inum,“ segir Jakob. Með hugtakinu delpermittert á hann við að hann sæti lægra starfshlutfalli tímabund- ið og þiggi þar með bætur frá norsku vinnumálastofnuninni NAV að hluta á móti launagreiðslum. Rampurinn vísar hins vegar til hleðsludeildar sem annast farang- urshleðslu flugvéla, tæmingu sal- erna og fleira, en Jakob starfaði á Keflavíkurflugvelli áður en þau Helga Sjöfn fluttu frá Íslandi árið 2013. „Það er ekkert að gera, hér er allt lokað. Ef okkur langar í mat verður hann að koma heiman frá. Narvesen [eins konar sjoppa] er reyndar opið en þú borðar ekki pylsur endalaust,“ segir Jakob um ástandið á Sola-flugvellinum og hlær um leið. Staðan þó betri en á Íslandi Kveður hann stöðu þeirra Helgu Sjafnar þó betri en þegar þau bjuggu á Íslandi á sínum tíma með fjögur börn. „Við gáfumst bara upp á Íslandi, vildum bara ekki meira af þessu kjaftæði. Þrátt fyrir að vera bæði í fullri vinnu áttum við aldrei krónu, allt fór í leigu og reikninga, þegar við vorum búin að gefa börn- unum að borða áttum við ekki mat fyrir okkur,“ rifjar Jakob upp. Hvað sem kórónufaraldri líður eru Jakob og Helga Sjöfn ánægð með lífið í Noregi. „Launin hér eru hærri og dagleg vara ódýrari, mað- ur á mun meiri tíma með börn- unum þótt maður sé í vaktavinnu. Helsta breytingin miðað við Ísland er kannski meira frelsi,“ segir Jak- ob enn fremur. Lífið öðruvísi Hann kveður lífið í Noregi þó öðruvísi nú en þau fjölskyldan eigi almennt að venjast. „Hérna er bara allt lokað, þetta er ótrúlega furðulegt og búið að vera erfitt fyrir marga eins og gengur. Þetta er þó mismunandi eftir fyrirtækjum, við áttum erindi í apótekið í mars og þar var röð út úr dyrum,“ segir Jakob. „Hefurðu ekki séð þættina The Walking Dead, mér finnst sumt í þessu þjóðfélagsástandi hreinlega minna á þá,“ segir hlaðmaðurinn á Sola-flugvellinum í Noregi að skiln- aði. Þú borðar auðvitað ekki pylsur endalaust Ljósmynd/Aðsend Hlaðmaðurinn Jakob Sigurðarson segir breytta heimsmynd blasa við starfsfólki flugvallarins í Sola við Stavanger í skugga kórónuveirunnar.  Hlaðmaður á Sola-flugvellinum seg- ir lífið þar gjörbreytt í veirufaraldri KÓRÓNUVEIRUFARALDUR 50 til 60 manns hefðu fallið frá nú þegar hérlendis vegna kórónuveirunnar ef Íslend- ingar hefðu ákveðið að fara sömu leið og Svíar í sótt- varnaaðgerðum, að sögn Þór- ólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis. Dánartíðni miðað við höfða- tölu er fimm til sex sinnum hærri í Svíþjóð en á Íslandi. Dánartíðnin þar er sú hæsta á Norðurlöndunum. „Ég er hræddur um að menn myndu ekki sætta sig við það hér. Þá er talan ekki alveg nákvæm í Svíþjóð vegna þess að eftir því sem ég hef hlerað og heyrt frá Svíum eru þeir ekki að telja svo nákvæm- lega inni á hjúkrunarheimilum til dæmis. Þetta eru mest dauðsföll í heilbrigðiskerfinu sjálfu,“ sagði Þórólfur á upp- lýsingafundi almannavarna. Þannig væri fórnarkostn- aður hjarðónæmis of hár og myndi hann snerta aðra sjúk- lingahópa en þá sem þjást af COVID-19, heilbrigðiskerfið og „allt saman,“ að sögn Þórólfs. 5-6 sinnum fleiri hefðu dáið SÆNSKA LEIÐIN Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.