Morgunblaðið - 20.04.2020, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Opnuð hafa verið hjá Vegagerðinni
tilboð í endurbætur Hafnarfjarðar-
vegar og Vífilsstaðavegar í Garða-
bæ.
Tilgangur þeirra er að auka um-
ferðaröryggi og greiða fyrir umferð
af hliðarvegum í Garðabænum inn á
Hafnarfjarðarveg. Þetta verður
mikil samgöngubót enda fjölfarnir
vegir, sérstaklega á annatímum.
Alls bárust fjögur tilboð. PK
Verk ehf. og PK Byggingar ehf.,
Hafnarfirði buðu lægst eða krónur
875.220.118. Er það talsvert hærra
en áætlaður verktakakostnaður,
sem var 770 milljónir.
Næstlægsta boð átti Háfell ehf.,
Reykjavík, krónur 938.515.016. Ver-
ið er að yfirfara tilboðin hjá Vega-
gerðinni.
Verkið er samstarfsverkefni
Vegagerðarinnar, Garðabæjar og
veitufyrirtækja. Greiðir Vegagerðin
70% af kostnaði en Garðabær 30%.
Verkinu verður skipt í tvo áfanga.
Í sumar verður m.a. ráðist í gerð
hringtorgs á Vífilsstaðavegi við
Litlatún, breikkun og endurbætur á
Vífilsstaðavegi milli Litlatúns og
Hafnarfjarðarvegar, breikkun og
endurbætur á gatnamótum Hafn-
arfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar
og gerð göngustíga. Jafnframt verð-
ur öll nauðsynleg lagnavinna fyrir
veitufyrirtækin.
Sumarið 2021 verður m.a. ráðist í
breikkun og endurbætur á Hafn-
arfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar
og Lyngáss, gerð undirganga undir
Hafnarfjarðarveg við Hraunsholts-
læk og breikkun og endurbætur á
gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og
Lyngáss.
Endurbætur á
fjölförnum vegum
Vegaframkvæmdir í Garðabæ
Endurbætur
Hafnarfjarðarvegar og
Vífi lsstaðavegar í Garðabæ
Lo
ft
m
yn
di
r e
hf
.
Sumarið 2021
Breikkun og endurbætur á Hafnar-
fjarðarvegi og gatnamótum við Lyngás.
Ný undirg öng við Hraunsholtslæk.
Sumarið 2020
Nýtt hringtorg við Litlatún. Breikkun
og endurbætur á Vífi lsstaðavegi og
gatnamótum við Hafnarfjarðarveg.
Vífi lsstaðavegur
Ha
fn
ar
fja
rð
ar
ve
gu
r
Ha
fn
ar
fja
rð
ar
ve
gu
r
Lyngás
Olís
Garðaskóli
Hag-
kaup
Li
tl
at
ún
Heldur var aðkoman óþrifaleg
fyrir utan bækistöðvar Endur-
vinnslunnar í Knarrarvogi fyrir
helgi. Pappakassar, plastpokar
og fleira drasl lá þar eins og hrá-
viði, þeim sem skildi það eftir til
lítils sóma.
Að þessu er mikil óprýði, auk
þess sem rusl eins og þetta fer
allt af stað um leið og fer að
blása. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem aðkoman er með þessum
hætti og vilja starfsmenn End-
urvinnslunnar hvetja fólk til að
ganga betur frá sorpi og koma
því á réttan stað, í stað þess að
treysta á að einhver annar þrífi
eftir þá ruslið.
Þarna eru grenndargámar
Reykjavíkurborgar, sem eru
hugsaðir fyrir pappír, plast og
gler sem kemst inn um lúguna.
Annað á að fara í pressugáma á
stöðvum Sorpu, en reglur um
meðhöndlun sorps má kynna sér
á sorpa.is.
Ljósmynd/Aðsend
Sorp Starfsmenn Endurvinnslunnar hvetja fólk til að ganga betur frá sorpi
Óþrifaleg aðkoma í Knarrarvogi
Bæjarstjórn Vestmannaeyja sam-
þykkti á fundi sínum í síðustu viku
að bæta alls 714 milljónum króna
við þegar boðaðar framkvæmdir til
þess að spyrna við vegna sam-
dráttar af völdum kórónuveiru-
faraldursins. Þarna má nefna ráð-
stafanir um lækkun og niður-
fellingu gjalda, framkvæmda- og
viðhaldsverkefni, markaðsátak í
ferðaþjónustu, atvinnuþróun og efl-
ingu nýsköpunar- og frumkvöðla-
starfsemi. Þá hefur verið ákveðið
að flýta ýmsum framkvæmdum og
viðhaldsverkefnum í bænum til að
skapa fólki störf og fyrirtækjum
tekjur.
Heildarumfang þeirra aðgerða
sem Vestmannaeyjabær er tilbúinn
að ráðast í vegna ríkjandi ástands
nemur 1.950 milljónum króna.
Eru bæjaryfirvöld m.a. tilbúin að
fara í framkvæmdir við fráveitu,
enda mæti ríkið því með endur-
greiðslu virðisaukaskatts. Einnig
að leggja ljósleiðara, enda leggi
ríkið því verkefni lið sömuleiðis.
Spyrna við fótum í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Skapa á aðstæður til
sóknar eftir kórónuveirufaraldurinn.
Viðbragðsáætlun vegna eldsvoða-
hættu í Strákagöngum við Siglu-
fjörð sem og umferðarstjórn verður
tilbúin í sumar, að því er fram kem-
ur í svari Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar samgönguráðherra við fyrir-
spurn á Alþingi frá Lilju Rafneyju
Magnúsdóttur. Öryggisáætlanir
eru til um öll jarðgöng landsins ut-
an göngin um Arnarneshamar í
Djúpi. Þau eru aðeins 30 metra löng
og því ekki talin þörf á sérstökum
aðgerðum í öryggisskyni þar.
Vegagerðinni hefur nýlega verið
falið að reka göngin um Húsavíkur-
höfða og eru öryggismál þar nú í
vinnslu. Viðbragðsáætlun Vaðla-
heiðarganga er á forræði hluta-
félags sem þau rekur.
Göngin séu örugg
Vaðlaheiðargöng Greið leið og örugg.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi