Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
BÍLA-SÉRBLAÐ
BÍLA
fylgir Morgunblaðinu
á morgunBLAÐ
50 ára Þorsteinn er
Hafnfirðingur, ólst
upp í Norðurbænum
og býr í Áslandi. Hann
er rafvirki að mennt
frá Iðnskólanum í
Reykjavík og er sölu-
stjóri á fyrirtækjasviði
hjá BYKO.
Maki: Lilja Þorsteinsdóttir, f. 1979,
sjúkraliði á Landspítalanum.
Synir: Ísak, f. 2000, og Óttar, f. 2005.
Foreldrar: Lárus Berg Sigurbergsson,
f. 1945, húsgagnasmiður og fyrrver-
andi framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni,
og Ásta Sigríður Egilsdóttir, f. 1945,
fyrrverandi skrifstofumaður hjá Há-
skóla Íslands. Þau eru búsett í Kópa-
vogi.
Þorsteinn Lárusson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Valdabarátta getur gert það að
verkum að þú finnir til máttleysis í dag.
Kynntu þér reglur laganna og hvort allt er
eins og það á að vera.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt fá það sem þú vilt. Leggðu
þig allan fram og þá mun framlag þitt
verða mikils metið. Gefðu þér tíma til þess
að líta í kringum þig eftir fallegum hlutum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt gott sé að hafa reglurnar á
hreinu verður þú líka að geta gripið til sér-
stakra ráðstafana þegar óvæntir atburðir
verða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hæfileiki þinn til þess að sann-
færa, telja menn á eitthvað, hafa áhrif á
aðra, markaðssetja og selja er með ein-
dæmum núna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sýndu öðrum sérstaka nærgætni í
dag því fólk í kringum þig er niðurdregið.
Mikilvæg reynsla fæst ekki sársaukalaust.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þrífst af skoðanaskiptum við
starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til
þeirra mála. Leyfðu þeim að kynna hug-
myndir sínar áður en þú leggur þínar fram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhverjum gætu sárnað ummæli þín
svo þú skalt gæta þess að segja ekkert að
óathuguðu máli. Sjaldan veldur einn þá
tveir deila.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áætlun þín þarfnast yfirlegu
áður en þú getur hrint henni í framkvæmd.
Einhver kemur þér í opna skjöldu með því
að vera með leiðinlegar athugasemdir í
þinn garð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Njóttu viðurkenningar og ást-
úðar sem þér er sýnd. Nýjar hugmyndir
geta af sér enn fleiri og hrinda af stað
skriðu sem erfitt er að stoppa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Orð geta hitt í mark svo farðu
þér hægt og mundu að aðrir eiga líka rétt
á sínum skoðunum. Sígandi lukka er best
og þeir hlutir sem þú vinnur fyrir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu ekki of ákafur í að koma
máli þínu á framfæri, það gæti farið illa í
fólk ef þú beitir þrýstingi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert óvenju tilfinninganæm/ur
og gerir því óvenjumiklar kröfur til annarra
í dag. Hægðu á þér og slappaðu af.
barnsaldri á Siglufirði og hafði mikla
ánægju af skíðamennskunni alla sína
tíð. Á unglingsárunum varð hann
strax keppnismaður á skíðum og
vann til fjölda verðlauna, bæði í alpa-
greinum og skíðastökki.
„Við hjónin ferðuðumst mikið með
fjölskylduna bæði innanlands og
utan. Árið 1980 eignaðist fjölskyldan
sumarhús í Vaðnesi í Grímsnesi,
sannkallaðan sælureit, þar sem stór-
fjölskyldan hefur dvalið mikið saman,
smíðað, gróðursett gríðarlegan fjölda
trjáa og plantna og notið sam-
verustunda. Einnig ferðuðumst við
hjónin mikið erlendis, í skíða- og
skemmtiferðir og vorum um árabil í
heimsreisuklúbbi Ingólfs
Guðbrandssonar. Ég hef verið lán-
um tíma en þar kom hann að end-
urbótum á húsnæði sem og byggingu
viðbyggingar sem hýsti veitingastað-
inn Rúbin um tíma.
Víðir sat í stjórn Hafskips 1984-
1985, í stjórn Tollvörugeymslunnar
(síðar TVG-Ziemsen) 1988-1992 og í
stjórn Alpan um tíma.
Áhugi Víðis á athafna- og við-
skiptalífinu hefur einkennt hann alla
tíð, hann er framsýnn frumkvöðull
sem líður best þegar hann tekur þátt
í uppbyggingu og framkvæmdum.
Víðir var meðlimur í JCI á Íslandi
á sínum yngri árum og sat í fyrstu
landsstjórn þeirra samtaka. Víðir
hefur verið meðlimur í Oddfellow-
reglunni sl. 40 ár.
Skíðaíþróttina stundaði Víðir frá
V
íðir Finnbogason er
fæddur 20. apríl 1930 í
Vestmannaeyjum en
fljótlega flutti fjöl-
skyldan til Siglufjarðar
þar sem Víðir ólst upp. „Ég var send-
ur í sveit sem barn en sveitalífið átti
ekki vel við mig. Ég byrjaði ungur að
fara til sjós með föður mínum, lærði
mikið af honum og líkaði það vel. Svo
fór að ég gerðist ungur háseti og
vann sem háseti í nokkur ár.“
Víðir gekk í barna- og gagnfræða-
skóla á Siglufirði, Reykholtsskóla í
Borgarfirði og síðar í Stýrimanna-
skólann í Reykjavík þaðan sem hann
útskrifaðist úr farmannadeild 1957.
Víðir starfaði hjá Eimskip 1953-
1962, fyrst sem háseti og bátsmaður
en síðustu árin sem stýrimaður. Árið
1962 hætti hann til sjós og stofnaði
1963 heildverslunina Víðir Finn-
bogason ehf. og hóf innflutning á
byggingavörum og gjafavörum. Árið
1967 opnaði Víðir Innréttingabúðina
á Grensásvegi 3 í Reykjavík sem
seldi alhliða byggingavörur, gólfefni
og veggfóður. Nokkrum árum síðar
byggði hann húsið á Grensásvegi 13 í
Reykjavík og opnaði þar verslunina
Teppaland. Þá sneri hann sér alfarið
að innflutningi og sölu gólfefna, fyrst
gólfteppa, síðar gólfdúka, flísa og
parkets. Grensásvegur 13 fékk á sín-
um tíma sérstaka viðurkenningu frá
Reykjavíkurborg fyrir fallegan og
snyrtilegan frágang húss og lóðar.
Víðir var þátttakandi í stofnun bygg-
ingavöruverslunarinnar Brimnes í
Vestmannaeyjum árið 1973, opnaði
útibú Teppalands á Akureyri árið
1980 og var þátttakandi í stofnun
byggingavöruverslunarinnar Núps á
Ísafirði árið 1990.
Umfangsmikinn verslunarrekstur
stundaði Víðir óslitið til ársins 1995
er hann snéri sér að umsýslu með
byggingar og endurgerð húseigna.
Víðir kom að byggingu atvinnu-
húsnæðis í Austurhrauni 3 í Hafn-
arfirði og Fákafeni 11 í Reykjavík en
hann keypti einnig eldra atvinnu-
húsnæði m.a. í Skeifunni í Reykjavík
og Dalshrauni í Hafnarfirði sem
hann endurbyggði og breytti í versl-
unarhúsnæði. Víðir kom einnig að
rekstri Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð
samur maður bæði í vinnu og einka-
lífi.“
Afmælisdeginum ætlar Víðir að
eyða með fjölskyldunni eins og að-
stæður leyfa í ljósi samkomubanns.
Fjölskylda
Eiginkona Víðis var Karen Júlía
Magnúsdóttir, f. 4.4. 1931, d. 19.3.
2019, húsmóðir. Víðir og Karen
gengu í hjónaband 29.10. 1955. For-
eldrar Karenar voru hjónin Anna
Soffie Malena Einarsson frá Vog í
Færeyjum, f. 28.7. 1901, d. 24.2. 1986,
húsfreyja í Reykjavík, og Magnús
Einarsson frá Stakkadal á Rauða-
sandi, V-Barð., f. 13.1. 1901, d. 6.3.
1970, vélstjóri og síðar framkvæmda-
stjóri í Reykjavík.
Dætur Víðis og Karenar eru 1)
Anna Jóna Víðisdóttir, f. 23.2. 1956,
hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu í
Reykjavík, búsett í Garðabæ. Börn
hennar eru Víðir, Karen Björk og
Hrannar Darri; 2) Stella Kristín Víð-
isdóttir, f. 13.9. 1958, viðskiptafræð-
ingur og MS í stjórnun og stefnumót-
un, framkvæmdastjóri fjármála- og
rekstrarsviðs hjá Eir og tengdum fé-
lögum, búsett í Garðabæ. Sonur
hennar er Viktor Hrafn; 3) Berglind
Víðisdóttir, f. 10.5. 1964, hjúkrunar-
fræðingur og lýðheilsufræðingur
MPH, deildarstjóri á velferðarsviði
Reykjavíkurborgar, búsett í Garða-
bæ. Maki: Knútur Þórhallsson. Börn
þeirra eru Elísabet Inga, Sindri
Hrafn, Þórhallur Kári og Víðir Snær;
4) Harpa Víðisdóttir, f. 29.6. 1970,
hjúkrunarfræðingur og MS í mann-
auðsstjórnun, mannauðsstjóri hjá
Víðir Finnbogason, fyrrverandi forstjóri og athafnamaður – 90 ára
Barnalán Víðir og Karen ásamt barnabörnunum árið 2014.
Framsýnn frumkvöðull
Feðginin Harpa, Berglind, Víðir, Anna Jóna og Stella. Hjónin Víðir og Karen.
40 ára Hafliði er
Reykvíkingur, ólst upp
í Breiðholti en býr í
Vesturbænum. Hann
er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum í
Utrecht og MBA frá
Háskólanum í Wales.
Hafliði er verkefnastjóri á skrifstofu al-
þjóðasamskipta í HÍ. Hann er stjórnar-
formaður Capoeira Mandinga á Íslandi.
Maki: Beatriz García, f. 1982, skrif-
stofustjóri hjá Huawei.
Synir: Ýmir, f. 2008, og Ólíver, f. 2016.
Foreldrar: Sævar Geirsson, f. 1952,
tæknifræðingur og rekur eigið fyrirtæki,
búsettur í Kópavogi, og Hafdís Björns-
dóttir, f. 1949, ljósmóðir, búsett í Reykja-
vík.
Hafliði Sævarsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is