Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum
Að loknu hrygningarstoppi suðvest-
an- og vestanlands á þriðjudag tóku
sjómenn til óspilltra málanna við leit-
ina að þeim gula. Fjöldi báta hefur
verið á sjó síðustu tvo daga, bæði
stærri bátar og minni trillur, og afli
yfirleitt verið þokkalegur. Í gær voru
margir á sjó í góðu vorveðri og sjá
mátti að bátarnir röðuðu sér upp við
Snæfellsnes og Reykjanes og margir
voru að veiðum á Selvogsbanka. Nær
höfuðborginni mátti sjá fjölda báta
við Kjalarnes og í mynni Hvalfjarðar.
Grásleppubátar hafa sótt af krafti
og afli yfirleitt verið góður, en marg-
ir segja að grásleppuvertíðin sé einn
af vorboðunum.
Fjórir dagar bætast við strand-
veiðitímabilið í sumar, en í ár verður
heimilt að róa á hátíðisdögum, þ.e.
uppstigningardegi, öðrum í hvíta-
sunnu, þjóðhátíðardeginum og frí-
degi verslunarmanna. Fiskistofa
opnar fyrir umsóknir um leyfi á
mánudag, en byrja má róðra 4. maí.
623 bátar stunduðu strandveiðar í
fyrra.
Líflegt á miðum sunnanlands og vestan í kjölfar hrygningarstopps
Vorblær og
vertíðar-
bragur
Morgunblaðið/Eggert
Grandagarður Veiðar á grásleppu eru stundaðar víðast hvar við landið og í gær vann Kolbeinn Ingi Gunnarsson við löndun úr Höllu Daníelsdóttur RE 770.
Leitað hefur verið til borgaraþjón-
ustu utanríkisráðuneytisins vegna
máls Íslendings á þrítugsaldri sem
var handtekinn í Pensacola í Flórída
á mánudag grunaður um að hafa
skotið mann til bana. Þetta staðfestir
María Mjöll Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins. Hún
getur ekki staðfest hvort sá sem leit-
aði til borgaraþjónustunnar tengist
manninum fjölskylduböndum.
Íslendingurinn er grunaður um að
hafa orðið Dillon Shanks, 32 ára
gömlum Bandaríkjamanni, að bana
aðfaranótt mánudags, en maðurinn
var gestkomandi á heimili í Pensa-
cola. Íslendingurinn, sem er 28 ára
gamall, samkvæmt fréttum banda-
rískra fjölmiðla, tilkynnti um andlát
mannsins um nóttina og sagði að um
sjálfsvíg væri að ræða að því er fram
kemur í skýrslu lögreglu.
Hins vegar hafi tvö vitni gefið sig
fram og að framburður þeirra hafi
verið þannig að lögregla taldi ólík-
legt að um sjálfsvíg væri að ræða og
handtók Íslendinginn.
Annað vitnið segir að mennirnir
tveir hafi rifist fyrir utan húsið og að
Íslendingurinn hafi haldið á skot-
vopni. Þegar Shanks fór inn í húsið
hafi hinn elt hann inn og vitnið segir
að fljótlega eftir það hafi hann heyrt
skothvell. Annað vitni hefur staðfest
að Íslendingurinn hafi verið vopnað-
ur byssu þegar hann deildi við
Shanks fyrir utan húsið og að hann
hafi heyrt skothvell þegar hann var
að fara af svæðinu.
Íslendingur grunaður um
að hafa skotið mann til bana
Tilkynnti andlátið sem sjálfsvíg Vitni báru annað
Pensacola Vitni bera að fórnar-
lambið og sá grunaði hafi rifist.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ekki er hægt að segja með vissu
hve langur tími gefst til að endur-
lífga fólk sem virðist vera látið eftir
drukknun í köldu vatni eða ofkæl-
ingu, að sögn Felix Valssonar lækn-
is. Hann er sérfræðingur í svæf-
ingum og gjörgæslulækningum á
Landspítala og fyrrverandi for-
maður Endurlífgunarráðs Íslands.
Felix stýrði endurlífgun tveggja
pilta sem drukknuðu í Hafnar-
fjarðarhöfn 17. janúar. Þeir eru báð-
ir komnir af sjúkrahúsi fyrir
nokkru. Fleiri dæmi eru um Íslend-
inga sem tekist hefur að endurlífga
með góðum árangri eftir mikla of-
kælingu. „Það eru til dæmi um fólk
sem hefur kólnað mikið og verið í
langri endurlífgun og lifað af,“ segir
Felix. Hann segir að fólk í því
ástandi sé oft sett á hjarta- og
lungnavél. Ef hjartað hefur stoppað
og það er ekkert
blóðflæði í líkam-
anum er eina ráð-
ið að setja sjúk-
linginn á slíka vél
og hita hann upp.
Felix segir að
frá síðustu alda-
mótum hafi upp-
hitun ofurkaldra
sjúklinga verið
gerð á mun
lengri tíma en áður tíðkaðist. Upp-
hitunin er oftast stöðvuð í einn til
tvo sólarhringa við 32-33 gráður til
að vernda heilann, eins og gert var í
tilfelli hafnfirsku piltanna sem var
haldið í því ástandi í tvo sólar-
hringa. Kæling virðist geta varið og
jafnvel snúið við byrjandi skaða sem
heilinn verður fyrir við súrefnis-
skort. Heilinn er afar viðkvæmur
fyrir súrefnisskorti og ef ekkert
blóðflæði er til heila við eðlilegan
líkamshita þá tekur ekki mikið
meira en fimm mínútur fyrir heila-
frumur að fara að deyja.
Svo virðist sem kuldi og ofkæling
auki möguleikana á endurlífgun í
sumum tilvikum. Felix rakti mjög
frægt dæmi frá Norður-Noregi.
Kona, sem er læknir, var í skíða-
ferð nálægt Narvik. Snjóhula yfir á
brast og konan féll niður um snjó-
breiðuna. Annað skíðið festist og
hékk konan þannig á öðrum fæt-
inum með höfuðið niður. Hún hélt
höfðinu yfir vatninu til að byrja
með. Félagar hennar tveir sem
komu fljótlega að henni heyrðu í
henni en gátu ekki dregið hana upp.
Um síðir kom björgunarþyrla og
var flogið með konuna á háskóla-
sjúkrahúsið í Tromsø. Þegar hún
kom á spítalann var kjarnhiti lík-
ama hennar kominn niður í 13,6
gráður og var hún endurlífguð með
hjarta- og lungnavél. Þegar líkams-
hitinn fer undir 28 gráður eykst
hætta á hjartsláttartruflunum eða
jafnvel hjartastoppi. Þó eru dæmi
þess að hjartað haldi áfram að slá
við lægra hitastig en þá yfirleitt
miklu hægar.
Vanda þarf leit að lífsmörkum
„Það hægir á öllu við svo mikla
kælingu og maður þarf að vanda sig
betur við að leita að lífsmörkum hjá
mjög köldum,“ segir Felix. „Ef
mögulegt er þá á að halda áfram að
reyna að endurlífga svona kalda
sjúklinga þangað til þeir komast á
sjúkrahús. Oft er talað um það í
þessum kælifræðum að ekki sé
hægt að úrskurða mann látinn fyrr
en hann er orðinn heitur. Það þurfi
að hita ofkældan sjúkling áður en
endurlífgunartilraunum er hætt. En
það er ekki alltaf hægt að gera það.
Flutningsleiðin getur verið of löng
eða sjúklingur er með önnur ein-
kenni um að vera látinn, t.d. mjög
langur tími frá slysinu eða miklir
aðrir áverkar.“
Felix segir að kælimeðferð hafi
verið beitt á Landspítala við flesta
meðvitundarlausa sjúklinga sem
hafa lent í hjartastoppi allt frá árinu
2002. Þetta séu heilmikil fræði og
menn að fikra sig áfram með hvern-
ig best sé að bera sig að.
Felix rifjar upp að í gamla daga
hafi margir viljað að opnuð yrði æð
á þeim eftir andlátið svo þeir yrðu
ekki kviksettir. Óttinn við kviksetn-
ingu var landlægur og ekki að
ástæðulausu. Margar sögur voru til
af fólki sem hafði verið talið látið en
svo lifnað við. Felix segir að ekki sé
ýkja langt síðan gömul kona í sveit
fyrir norðan datt úti við að vetri og
slasaðist svo að hún gat sig hvergi
hreyft. Þegar hún loksins fannst var
talið víst að hún væri látin enda orð-
in mjög köld og ekki með sjáanlegu
lífsmarki. Engu að síður var hún
flutt á sjúkrahús á Akureyri og sett
þar í rúm. Svo leit einhver til henn-
ar og þá var hún farin að anda!
Nokkrir ofkældir verið endurlífgaðir
Hafnfirskir piltar endurlífgaðir Kuldi og ofkæling virðast stundum auka möguleika á endurlífgun
Landlægur ótti fólks við kviksetningu var ekki ástæðulaus „Dáin“ kona vaknaði óvænt til lífsins
Felix
Valsson