Morgunblaðið - 23.04.2020, Qupperneq 12
MEXÍKÓSK UPPSKRIFT
„Soft tacos“
m/risarækjum
Marinering
Safi úr þremur límónum
2 matskeiðar ferskur kóríander
2 hvítlauksgeirar
½ tsk. kummín
1 msk. olífuolía
límónubörkur
salt
Öllu blandað saman og 400 g
risarækjur látnar marinerast í
kæliskáp í 30 mínútur.
Meðlæti
1 bolli rauðkál
¼ bolli kóríander
½ bolli rauðlaukur
1 lárpera þunnt skorin
safi úr einni límónu
kóríander
Dressing
½ bolli majónes
1-2 matskeiðar „hot taco“-sósa
límónubörkur
½ tsk. hvítlauksduft
salt
Allt sett í soft tacos eða tor-
tillur.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hvet fólk til að prófaþetta með börnunum sín-um, þetta er hin bestaskemmtun hvort sem það
er í covid eða án veiru. Virkilega
gaman fyrir alla og fræðandi fyrir
krakkana,“ segir Maj-Britt Briem,
en hún og eiginmaður hennar, Einar
Þ. Eyjólfsson, og dæturnar þrjár,
Herdís María, Þóra Guðrún og Valý
Karen, gerðu sér lítið fyrir og fóru í
innihaldsrík og fjörug ferðalög inn-
anhúss nú á veirutímum þegar
ferðabann gildir og fólk þarf að vera
mikið heima við.
„Við gerðum þetta í fyrsta sinn
þegar við bjuggum í Svíþjóð fyrir
nokkrum árum, en blésum nýju lífi í
þetta núna í covid hér heima á Ís-
landi og skruppum til Mexíkó og
Afríku. Við vildum fara þangað sem
væri gott veður, sól og blíða, og
spennandi matur. Þetta hefur lagst
vel í stelpurnar, þeim finnst þetta
svakalega skemmtilegt og eru allar
rosalega til í þetta.“
Völdu sér hver sína gyðjuna
Maj-Britt segir að fjölskyldu-
siður þessi eigi upphaf sitt í því að
hún hafi mikinn áhuga á grískri
goðafræði og langað til að kenna
stelpunum sínum ýmislegt um hana.
„Og elda grískan mat í leiðinni,
en maðurinn minn hefur mikinn
áhuga á framandi matarmenningu.
Við tókum þetta alla leið í Svíþjóð á
sínum tíma, þegar við ferðuðumst til
fyrsta landsins með þessum hætti,
til Grikklands. Stelpurnar klæddu
sig upp og völdu sér hver sína
grísku gyðju og við lærðum um
goðafræðina, landið og höfuðborg-
ina Aþenu. Við lærðum líka um
tungumálið, hvernig fólk heilsast á
grísku og segir takk fyrir,“ segir
Maj-Britt og bætir við að í fram-
haldinu hafi hvert og eitt þeirra
valið land og skrifað á miða og
sett í hatt.
„Upp úr hattinum
drógum við svo það
land sem tekið var fyr-
ir næst. Marokkó,
Frakkland, Spánn,
Kína, Indland og Belgía
voru þar á meðal, en við
tókum eitt land fyrir með
nokkuð löngu millibili, því
þetta er spari-skemmtun. Við
höfum reynt að nota sem mest
það sem við eigum heima í bún-
inga og fylgihluti, en við
keyptum afrísku kjólana á
stelpurnar í Firðinum í
Hafnarfirði og styrkt-
um gott málefni í leið-
inni. Þær eru spenn-
tastar fyrir flóknustu
búningunum; þegar við
vorum með Belgíu voru
þær í strumpabúningum
og máluðu sig allar bláar.“
Fræðandi
ratleikur
Fastur liður í
innanhússferðalögum
fjölskyldunnar er að
dæturnar sýna dans.
„Stelpurnar sjá al-
veg um það, þær fara á netið og
finna lög frá viðkomandi landi og
búa ýmist til dansana sjálfar eða
fara inn á Just Dance-leikinn, þar
eru stundum dansar við lög frá því
landi sem við tökum fyrir,“ segir
Maj-Britt og bætir við að þau reyni
að koma fræðslu um sögu og menn-
ingu landanna til skila með
skemmtilegum hætti.
„Við vorum með ratleik þegar
við tókum Mexíkó fyrir, þá bjó
pabbi þeirra til í hverju herbergi
einhvern stað frá landinu, þær leit-
uðu að vísbendingum í herbergj-
unum og þurftu að svara stað-
reyndum um Mexíkó til að komast
áfram. Stundum þurftu þær að
gúgla eða fara í sögubækur til að
finna svörin, hafa svolítið fyrir
þessu. Þeim fannst þetta mjög
skemmtilegt og spennandi og þær
leystu þetta í samvinnu, voru ekki í
keppni sín á milli,“ segir Maj-Britt
og bætir við að þau hafi valið alla
heimsálfuna Afríku, af því erfitt var
að velja eitt Afríkuland. „Við
fræddumst um heila
heimsálfu og m.a. um Nel-
son Mandela og að-
skilnaðarstefnuna í S-
Afríku. Höfuðborg
hvers lands verða stelp-
urnar alltaf að læra,
íbúafjölda og fleiri stað-
reyndir. Við höldum þessu
lifandi á milli þema með því
að rifja upp og spjalla um
löndin, vonandi situr eitthvað
eftir af því sem þær læra í
þessum innanhúss-
ferðalögum. Þetta er búið
að vera rosa skemmti-
legt og gaman að prófa
nýja rétti, við fáum
mikið út úr því foreldr-
arnir að leita eftir upp-
skriftum áður en kem-
ur að deginum. Sumir réttir
hafa verið svo vel heppnaðir
að við höfum eldað þá oft
aftur. Ég mæli með að fjöl-
skyldur ferðist með þessum
hætti innanhúss en ég tek
fram að það þarf alls ekki að
taka þetta svona „alla leið“
eins og við, hver getur gert
með sínum hætti,“ segir Maj-
Britt og bætir við að næst ætli
þau að taka fyrir Havaí. „Þar er
svo góður grillmatur sem hentar
vel í sumar, og hægt að vera
með húlla-dansa.“
Fjölskyldan káta Einar og Maj-Britt með Herdísi, Þóru og Valý Karen.
Ferðast til
framandi landa
– innanhúss
Engin ástæða er til að láta sér leiðast eða hætta að
ferðast þótt heima sé setið á veirutímum. Maj-Britt og
fjölskylda hennar ferðuðust til framandi landa í
heimahúsi, með búningum, dansi og góðum mat.
Afríka Syst-
urnar í fullum
skrúða með
höfuðföt,
eyrnalokka,
gíraffa og apa.
Hattar og
skegg Stelp-
unum fannst
gaman að
ferðast heima
til Mexíkós.
12 DAGLEGT LÍF
OLÍUSKILJUR
– Íslensk hönnun, framleiðsla og gæði.
– Borgarplast hefur um áratugabil verið leiðandi í framleiðslu
á olíu-, fitu-, og fastefnaskiljum á Íslandi.
– Olíuskiljur Borgarplasts eru CE merktar framleiddar fyrir
þungaumferð og hins vegar fyrir staðsetningu utan umferðar.
– Olíuskiljur Borgarplasts eru framleiddar úr Polýetýleni (PE).
– Olíuskiljur Borgarplasts uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 858.
YFIR 30 ÁRA REYNSLA
BORGARPLAST HF.
Fráveitulausnir og ker:
Völuteig 31, 270 Mosfellsbæ, Sími: 561 2211
Húseinangrun og frauðkassar:
Grænásbraut 501, 262 Reykjanesbæ, Sími: 561 2210
borgarplast.is