Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 14

Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Undanfarnar vikur hefur CO-VID-19-faraldurinn valdiðróti í hversdagslífinu og flestir hafa þurft að breyta venjum sínum. Í sumum tilfellum hefur fjöl- skyldan notið meiri samveru en venjulega þar sems skólahald er skert. En víða hafa foreldrar þurft að sinna fleiri skyldum en áður auk þess að breyta háttum sínum við vinnu, og álag aukist eftir því. Gott skipulag mikilvægt Það er álag að vera meira heima, með börn í skertri stundaskrá og vera áfram í fullri vinnu, annaðhvort að heiman eða á vinnustaðnum. Hefðbundin heimilisstörf halda svo auðvitað áfram líka og hafa jafnvel aukist. Þá getur létt á álaginu að koma sér upp skriflegu og mynd- rænu dagskipulagi. Á síðustu metr- um samkomubannsins er þörfin fyrir skipulag síst minni þar sem úthaldið getur verið farið að minnka og erfið- ara að halda rútínu. Þegar sett er upp skipulag fyrir börnin er mikilvægt að ætla sér ekki um of:  Útbúa dagskrá í sameiningu sem er ekki of stíf en skiptir deginum upp. T.d. lestur og annað heima- nám fyrir hádegi, svo hæfilega löng útivera (t.d. fótbolti í garð- inum), hádegismatur, skjátími, æfa sig á hljóðfæri, frjáls tími. Með því að fá krakkana til að koma með tillögur að dagskrár- liðum og hafa dagskrána líflega getur verið auðveldara að fá þau til að fylgja henni.  Ekki reyna að halda dagskrá alla daga, það þarf líka að gefa sér og börnunum frjálsan tíma. En ef aldrei er farið eftir dagskipulag- inu þarf að setja það upp á nýtt í samvinnu við alla fjölskylduna.  Í sumum tilfellum þarf að slaka að- eins á kröfum, t.d. gagnvart heimanámi og skipulögðum tóm- stundum. Það getur truflað allt heimilislífið ef barninu finnst það ekki ráða við skyldur sínar og þær kröfur sem til þess eru gerðar.  Slakaðu á kröfum sem þú gerir til þín, það er allt í lagi að hafa ein- faldan mat og að skjátíminn sé lengri en gengur og gerist með- an á þessu stendur.  Svefninn er einn mikilvægasti þátturinn í andlegri og líkam- legri heilsu. Ef svefnvenjur breytast mikið er hætt við að ekki náist endurnærandi svefn með tilheyrandi eirðarleysi og ergelsi. Hægt er að sjá hvað er mælt með löngum svefni eftir aldri á heilsuvera.is.  Virknikrukka. Útbúa miða með ýmsu sem barnið getur gert sjálft og fjölskyldan ræður við og setja í krukku sem barnið dreg- ur úr. Dæmi um virkni getur verið að teikna, dansa saman, fara út í fótbolta, elda eða baka saman. Hlúa að sjálfum sér og sínum nánustu En þó gott sé að hafa skipulag, þá má það ekki taka yfir. Þegar við er- um undir auknu álagi, eins og núna þegar kórónuveirufaraldurinn geisar, þá þarf fyrst og fremst að huga að því að hlúa að sjálfum sér og sínum nánustu. Að hlúa vel að sér getur stundum falist í því að gera sem minnst og leyfa sér að vera í hægagangi. Ef foreldrar eða börn upplifa mik- inn vanmátt, sorg, kvíða eða dep- urð í tengslum við COVID-19 er hægt að fá símaviðtal við sálfræð- ing á heilsugæslunni eða ræða við hjúkrunarfræðinga á heilsuvera.is. Fjölskyldulífið nú á tímum Covid-19 Morgunblaðið/Golli Mannlíf Allir hlakka til þegar tilveran kemst aftur í eðlilegt horf og hægt verður að nýju að efna til skemmtana og góðra stunda. Heilsuráð Sólveig Hlín Kristjánsdóttir sálfræðingur á heilsugæslunni í Miðbæ. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ísíðustu viku gaf íslenskatölvuleikjafyrirtækið 1939Games út sinn fyrsta tölvu-leik, KARDS. Leikurinn kom út á leikjaveitunni Steam fyrir PC- tölvur 15. apríl en verður einnig gef- inn út fyrir snjalltæki, síma og spjaldtölvur á haustmánuðum. KARDS tilheyrir svokölluðum staf- rænum safnkortaleikjum. Sögusvið- ið er síðari heimsstyrjöldin sem er nýjung í þessum flokki því flestir leikirnir sem fyrir eru í honum til- heyra fantasíuleikjum. Áætlað er að 45-50 milljónir manna leiki svona leiki í hverjum mánuði og peninga- veltan því samhliða er mikil. Þýddur á sex tungumál Síðan í apríl á síðasta ári hefur KARDS verið fáanlegur í opinni prufuútgáfu og fyrir útgáfuna í fyrri viku höfðu rúmlega 170 þúsund not- endur spilað leikinn í yfir eina og hálfa milljón klukkustunda samtals. Á þessum tólf mánuðum hefur leik- urinn verið í mikilli þróun og verið þýddur á sex tungumál; frönsku, þýsku, pólsku, rússnesku, kínversku og brasilíska portúgölsku auk ensku. Það er verið að skoða mögu- leika á að þýða leikinn yfir á ís- lensku. „Útgáfu leiksins hefur verið vel tekið þessa fyrstu daga,“ segir Ívar Kristjánsson, framkvæmda- stjóri 1939 Games. Leikurinn er kominn með yfir 250 þúsund spilara samtals og dag- legar heimsóknir eru um 40 þúsund. Leikurinn hefur fengið mjög góða dóma bæði hjá spilurum og fjöl- miðlum en yfir sex þúsund spilarar hafa gefið leiknum einkunn á Steam og stendur heildareinkunn í 88%. Þá hafa fjölmiðlar gefið KARDS góðar einkunnir en þær hafa allar verið á bilinu 8-9 af 10 mögulegum. „Þetta gefur okkur byr í seglin fyrir áfram- haldandi þróun,“ segir Ívar Krist- jánsson. Öllum hnútum kunnugir Fyrirtækið 1939 Games er stofnað af bræðrunum Ívari og Guð- mundi Kristjánssonum, sem báðir hafa mikla reynslu úr tölvuleikja- geiranum. Báðir störfuðu þeir um langt árabil hjá CCP og eru því öll- um hnútum kunnugir í þessum iðn- aði. Hjá 1939 Games starfa nú 11 manns á Íslandi með áratuga reynslu úr leikjaheiminum, meðal annars frá CCP og Blizzard. Auk fastráðinna starfsmanna vinnur fjöldi verktaka fyrir fyrirtækið um víða veröld. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stafrænt Útgáfu leiksins hefur verið vel tekið, segir Ívar Kristjánsson. Leikur úr stríði Seinni heimsstyrjöldin er sögusvið KARDS, tölvuleiks sem hönnuðir íslenska fyrirtækisins 1939 þróuðu. Um 40 þúsund manns spila leikinn á degi hverjum. Kards Stríð er fyrir ströndum. Opnað hefur verið fyrir skráningu í keppninni Hjólað í vinnuna 2020 sem hefst 6. maí næstkomandi og stend- ur til 26. maí. Þetta er í 18. sinn sem efnt er til þessarar keppni, sem í margra vitund er vorboði. Mikilvægt er á vinnustöðum að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða tveggja metra fjar- lægðarmörkin, segir í frétt frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands „Um þessar mundir vinna margir heiman frá sér en það er samt sem áður ekkert því til fyrirstöðu að vera með. Útfærslan er einföld. Þú gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu að heiman,“ segir í tilkynningu. Hægt er að skrá sig til þátttöku á vefnum www.hjoladivinnuna.is og eftir innskráningu er leikurinn auð- veldur. Þar er líka að finna allar helstu reglur keppninnar, sem jafnan hefur notið mikilla vinsælda. Landskeppnin Hjólum í vinnuna hefst 6. maí Stemning þjappar hópnum saman Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjólað Tekið á rás og allir samtaka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.