Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 18
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ástandið sem uppi er í faraldri kór-
ónuveirunnar hefur ekki komið í veg
fyrir að hægt væri að leiða fjölmarg-
ar kjaradeilur til lykta. Skrifað hefur
verið undir fjölda kjarasamninga
fjölmennra starfsstétta á undanförn-
um vikum. Atkvæðagreiðsla stendur
yfir um nokkrar þeirra en enn er líka
ósamið við fjölmörg stéttarfélög
starfsfólks hjá ríki, sveitarfélögun-
um og á almenna markaðinum.
Atkvæðagreiðslu um nýgerðan
kjarasamning Félags framhalds-
skólakennara og Félags stjórnenda í
framhaldsskólum við ríkið lýkur á
morgun og undir lok mánaðarins
verður ljóst hvort hjúkrunarfræð-
ingar samþykkja nýja kjarasamn-
inginn við ríkið.
Ýmsir stórir hópar eru enn með
lausa samninga, þ. á m. eru grunn-
skóla- og leikskólakennarar, læknar,
lögreglumenn, sjómenn á fiskiskip-
um, hásetar, vélstjórar og skip-
stjórnarmenn og félög háskóla-
manna.
Samið við 17 af 21 BHM-félagi
Á þessari stundu hafa nú alls 17
aðildarfélög BHM samið við ríkið en
ósamið er við fjögur. Í seinustu viku
lauk kosningu um nýgerða samninga
tíu BHM-félaga við ríkið og kom á
daginn að sjö þeirra samþykktu
samningana en þrjú félög felldu þá.
Þau eru Félag geislafræðinga, Félag
íslenskra náttúrufræðinga og Félag
lífeindafræðinga. Kjaraviðræður
þurfa því að halda áfram við þessi fé-
lög auk Félags íslenskra leikara,
sem enn á ósamið.
Ríkið hefur gengið frá endurnýjun
kjarasamninga mikils meirihluta
starfsmanna hjá ríkinu en töluverð
samningavinna er þó fram undan.
Sverrir Jónsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins (SNR), segir að
nú þurfi aftur að taka upp viðræður
við BHM-félögin sem felldu og einn-
ig sé eftir að ná samningum við
lækna bæði í Læknafélagi Íslands og
Skurðlæknafélagi Íslands og við lög-
reglumenn.
Í fyrradag náðust hins vegar
samningar á milli ríkisins og Toll-
varðafélagsins. Auk þessa á ríkið eft-
ir að ganga frá samningum við ýmis
minni félög s.s. vegna starfsmanna
hjá Hafrannsóknastofnun og Land-
helgisgæslunni. „Viðræðurnar eru í
gangi og þetta mjakast allt eftir
færibandinu,“ segir hann.
Samningafundir hafa farið fram
milli ríksins og lögreglumanna bæði í
seinustu og yfirstandandi viku og
bókaðir eru fleiri fundir á næstunni.
Stórir samningar við ríkið eru enn
í atkvæðagreiðslu eins áður segir,
t.a.m. hjá Félagi íslenskra hjúkrun-
arfræðinga, en úrslit ættu að liggja
fyrir 29. apríl.
Sverrir segir að þrátt fyrir sam-
komubannið hafi viðsemjendum
gengið ágætlega að laga sig að nýj-
um aðstæðum og nýrri tækni. Í flest-
um tilvikum hafa viðræður farið
fram á fjarfundum og skrifað hefur
verið undir kjarasamninga rafrænt
en einstaka tilvik hafa að hans sögn
kallað á að samningamenn komi
saman. Þetta hafi gengið merkilega
vel og allir lagt sig fram.
Samninganefnd Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga hefur lokið
kjarasamningum við 40 af þeim 63
stéttarfélögum sem sambandið gerir
kjarasamninga við. Inga Rún Ólafs-
dóttir, sviðsstjóri kjarasviðs og for-
maður samninganefndar Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir að lok-
ið sé kjarasamningum við öll aðildar-
félög BSRB og við öll aðildarfélög
ASÍ að frátalinni Eflingu.
„Viðræður eru í fullum gangi við
aðildarfélög BHM og aðildarfélög
KÍ. Einnig er ólokið nokkrum kjara-
samningum við stéttarfélög er
standa utan bandalaga,“ segir hún.
„Allar kjaraviðræður Sambands
íslenskra sveitarfélaga fara nú fram
með fjarfundum og hefur það fyrir-
komulag gengið vel. Nýir kjara-
samningar eru nú undirritaðir með
rafrænum hætti,“ segir Inga Rún.
Óvissa í sjávarútveginum
Viðræður í kjaradeilu sjómanna
og Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi hófust í vetur. Ákveðin for-
vinna fór af stað og sjómenn afhentu
kröfur sínar og tóku við gagnkröfum
útgerðarmanna en þegar kórónu-
veirufaraldurinn blossaði upp voru
frekari viðræður settar á ís.
„Ástandið er þannig og óvissan
mikil. Það gengur erfiðlega að selja
afurðir og við vitum ekkert hvernig
þetta fer. Það er ekki skriflegt sam-
komulag um það en allir eru þokka-
lega sammála um að við gerum ekk-
ert í þessum málum á meðan
ástandið er svona,“ segir Valmundur
Valmundsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands.
Hann á ekki von á að viðsemjend-
ur muni setjast aftur að samninga-
borðinu og halda kjaraviðræðum
áfram fyrr en í haust. „Við erum
samt að vinna að fjölda verkefna
sameiginlega með útgerðinni í sam-
bandi við sölumálin og erum með
samkomulag við þá um að menn fari
ekki í land á milli túra o.fl. Við erum
að reyna að halda mönnum á sjó svo
ekki komi upp smit um borð því þá
væri einfaldlega atvinnan farin,“
segir hann. „Óvissan er mikil. Það er
búið að hægja á sókninni, sem var
viðbúið á meðan ekki er hægt að
selja allan aflann, og menn eru að
safna birgðum líka,“ segir hann.
Ósamið við fimm kennarafélög
Reykjavíkurborg á ósamið við ell-
efu félög háskólamanna í BHM, við
hjúkrunarfræðinga, kennara og
verkfræðinga, að sögn Hörpu Ólafs-
dóttur, formanns samninganefndar
borgarinnar.
Sameiginleg viðræðunefnd fimm
félaga í KÍ, félaga grunnskólakenn-
ara, leikskólakennara, stjórnenda
leikskóla, kennara og stjórnenda í
tónlistarskólum og Skólastjórafélag
Íslands, hefur unnið að endurnýjun
samninga við sveitarfélögin í vetur
en samningar hafa enn ekki náðst.
Harpa segir að þótt Reykjavíkur-
borg eigi enn eftir að ná samningum
við nokkurn fjölda stéttarfélaga hafi
borgin lokið gerð samninga við ASÍ-
félög og aðildarfélög BSRB en at-
kvæðagreiðsla stendur yfir meðal
sjúkraliða um samning við borgina
sem gerður var sl. mánudag.
„Þetta hefst á endanum. Við höf-
um að mestu leyti verið á fjarfundum
og höldum viðræðum áfram,“ segir
Harpa um kjaraviðræðurnar.
„Mjakast allt eftir færibandinu“
Skrifað hefur verið undir fjölmarga kjarasamninga en fjöldi félaga á ósamið Sjómenn og útvegsmenn
setja viðræður á ís til hausts Þrjú BHM-félög felldu Sveitarfélög hafa samið við 40 af 63 félögum
Morgunblaðið/Eggert
Kjaramál Kosningu hjúkrunarfræðinga um nýjan samning lýkur 29. apríl.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Alls bárust
fimm tilboð í
tvöföldun
Suðurlands-
vegar, frá
Vesturlands-
vegi að Bæjar-
hálsi í Reykja-
vík. Um er að
ræða 1.000
metra vegar-
kafla.
Lægsta tilboðið var frá Óskataki
ehf. í Kópavogi, 402 milljónir. Var
það 82% af áætluðum verktaka-
kostnaði, sem var 491 milljón.
Næstlægsta boðið var frá Ístaki hf.
í Mosfellsbæ, tæpar 450 milljónir.
Verkið felst í að fullgera eystri
akbraut Suðurlandsvegar, milli
Vesturlandsvegar og Bæjarháls.
Eystri akbrautin verður tengd við
núverandi vegakerfi í báðum
endum.
Sett verður upp ný veglýsing og
vegrið til að aðskilja aksturs-
stefnur. Núverandi undirgöng
undir Suðurlandsveg við Krókháls
verða lengd og breikkuð þannig að
hægt verður að skilja betur milli
bílaumferðar og gangandi/hjólandi,
segir í verklýsingu. Verklok eru
áætluð 1. nóvember næstkomandi.
Jafnframt hefur Vegagerðin sótt
um framkvæmdaleyfi til Reykja-
víkurborgar og er sú ósk til með-
ferðar þar. sisi@mbl.is
Fimm tilboð
í tvöföldun
Alvarleg staða er enn uppi í
kjaradeilu Eflingar og fimm
sveitarfélaga. Efling hóf í gær
kosningu meðal félagsmanna
sem starfa hjá Kópavogsbæ, Sel-
tjarnarnesbæ, Mosfellsbæ,
Hveragerðisbæ og Sveitar-
félaginu Ölfusi um boðun verk-
falls sem hefjist 5. maí. Verði
það samþykkt er þetta annað
verkfallið á skömmum tíma en
verkfallsaðgerðir hjá sveitar-
félögunum höfðu staðið yfir í
rúmar tvær vikur þegar þeim var
aflýst 25. mars sl. vegna óviss-
unnar í kórónuveirufaraldrinum.
Lýstu forsvarsmenn Eflingar þá
yfir að félagið væri tilbúið að
hefja verkfallsaðgerðir af krafti á
nýjan leik þegar faraldurinn hef-
ur gengið yfir eða hann mildast.
Inga Rún Ólafsdóttir, formað-
ur samninganefndar sveitar-
félaganna, segir að félags-
mönnum Eflingar hafi staðið til
boða sami kjarasamningur og
sveitarfélögin hafa þegar gert
við öll önnur stéttarfélög sem
semja um sömu og/eða sam-
bærileg störf starfsmanna
sveitarfélaga. „Þeir kjarasamn-
ingar fela í sér 30% hækkun
launa á næstu tveimur og hálfu
ári, auk styttingar vinnuviku og
lengingar sumarorlofs í 30 daga
fyrir alla. Efling gerir kröfur um
leiðréttingar sem eru langt um-
fram þessa kjarasamninga. Sam-
bandið hefur verið afdráttar-
laust um að ekki verður gengið
lengra í samningum við Eflingu
en önnur stéttarfélög sem þegar
hefur verið samið við um sömu
og/eða sambærileg störf,“ segir
hún.
EFLINGARFÉLAGAR
Kjósa á ný
um verkfall