Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
skipin sem skipasmíðastöðin byggði.
Þau eru 166 metrar að lengd og
breiddin er 27 metrar. Ganghraði er
21 sjómíla.
Skipin voru í siglingum fyrir dönsk
félög fyrstu árin en Eimskip keypti
þau árið 2000. Fyrra skipið fekk
nafnið Goðafoss en það seinna Detti-
foss. Þau hófu strax Íslandssiglingar.
Hafa skipin verið í áætlunarsigl-
ingum milli Íslands, Færeyja og
meginlandsins og auk Reykjavíkur
hafa þau haft viðkomu á Grundar-
tanga og Eskifirði/Reyðarfirði.
Siglingar ekki án áfalla
Almennt hafa yfirmenn og skip-
verjar látið vel af því að starfa um
borð í skipunum. En reksturinn hef-
ur ekki gengið áfallalaust síðustu 20
árin. Hinn 28. janúar 2005 brotnaði
stýri Dettifoss af þegar skipið var
statt undan Eystrahorni á leið frá
Reykjavík til Eskifjarðar. Slæmt
veður var á þessum slóðum og komu
tvö varðskip, Týr og Ægir, á staðinn
og drógu Dettifoss til Eskifjarðar
Tók það tvo daga. Dráttarbáturinn
Primus dró síðan skipið til Rotter-
dam í Hollandi. Þangað var komið 9.
febrúar og lauk viðgerð 14. mars.
Óhappasaga Goðafoss er nokkru
lengri. Laust eftir miðnætti 30. októ-
ber 2010 kom upp eldur í skorsteini
skipsins þegar það var statt 90 sjó-
mílur suðaustur af Íslandi. Veður var
mjög slæmt og hafrót. Fyrir mikið
harðfylgi tókst skipverjum að ráða
niðurlögum eldsins tveimur tímum
síðar. Skipið gat haldið áfram för til
Færeyja og síðar Danmerkur, þar
sem viðgerð fór fram. Aðfaranótt 11.
nóvember 2013 kom aftur upp eldur í
skorsteini Goðafoss þar sem skipið
var statt 90 sjómílur vestur af Fær-
eyjum í slæmu veðri. Aftur tókst
skipverjum að slökkva eldinn og var
snúið til Færeyja, þar sem viðgerð
fór fram.
Alvarlegasta atvikið varð hinn 17.
febrúar 2011 þegar Goðafoss strand-
aði á skerinu Löperen á leið sinni frá
Fredriksstad til Helsingborgar í Sví-
þjóð. Tókst að ná skipinu af skerinu
23. febrúar með aðstoð dráttarbáta
en það var talsvert skemmt. Skipið
var dregið til viðgerðar í Óðinsvéum í
Danmörku.
Goðafoss var sjötta skip Eimskips
sem borið hefur þetta nafn. Athygli
vakti að félagið kaus að nota nafnið
ekki þegar nýju skipunum í Kína var
valið nafn.
Það var um miðjan desember
síðastliðinn að Eimskip tilkynnti að
félagið hefði selt Goðafoss og Laxfoss
fyrir 3,9 milljónir dollara (3,5 millj-
ónir evra). Nafn kaupandans var ekki
gefið upp, aðeins sagt að um væri að
ræða alþjóðlegan skipaeiganda. Sam-
hliða sölunni var gert samkomulag
við kaupanda um að leigja skipin til
baka uns nýju skipin væru komin í
rekstur.
En vegna heimsfaraldursins var
skipunum skilað fyrr en til stóð og
hafa þau verið tekin úr rekstri. Bæði
skipin eru enn í Reykjavíkurhöfn og
óvíst hvenær nýr eigandi tekur form-
lega við þeim. Það er ekki einfalt að
koma nýjum áhöfnum til Íslands um
þessar mundir.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á leið til hafnar Goðafoss kemur til landsins hlaðinn gámum eins og endranær. Goðafoss og Laxfoss hafa nú lokið hlutverki sínu fyrir Íslendinga og skipanna bíða önnur verkefni úti í heimi.
Kveðja eftir siglingar í 20 ár
Eimskip tekur systurskipin Goðafoss og Laxfoss úr notkun Hafa siglt milli Íslands og Evrópu
Bæði skipin hafa siglt sem samsvarar nærri 70 ferðum umhverfis jörðina Bíða nú heimferðar
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Systurskipin Goðafoss og Laxfoss,
sem áður hét Dettifoss, hafa verið
tekin úr rekstri hjá Eimskipafélagi
Íslands. Þetta eru tímamót í siglinga-
sögunni því þessi stærstu skip ís-
lenska kaupskipaflotans hafa verið í
Íslandssiglingum í 20 ár og flutt
varning heiman og heim.
Ekki eru tiltækar upplýsingar um
tonnafjölda þess varnings sem skipin
hafa flutt á þessum árum. Hins vegar
hafa starfsmenn Eimskips slegið á
það að hvort skip hafi siglt 1,5 millj-
ónir sjómílna á síðustu 20 árum. Það
samsvarar nærri 70 ferðum umhverf-
is jörðina!
Síðar á þessu ári taka ný skip við
merkinu hjá Eimskip, Dettifoss og
Brúarfoss, sem eru smíðuð í Kína.
Þau verða jafnframt stærstu skip ís-
lenska flotans, rúmlega 26 þúsund
brúttótonn. Til samanburðar eru
Goðafoss og Laxfoss 14.664 brúttó-
tonn. Systurskip nýju skipanna, hið
grænlenska Tukuma Arctica, kom í
jómfrúferð til Reykjavíkur á dög-
unum. Þegar Tukuma Arctica sigldi
úr höfn að kvöldi annars í páskum
mætti það Goðafossi fyrir utan Eng-
ey. Gamli tíminn var að kveðja og sá
nýi að taka við.
Skipin tvö sem nú hverfa úr flot-
anum voru smíðuð árið 1995 hjá Ör-
skov Staalskipsværft í Frederiks-
havn í Danmörku. Þetta voru
stærstu og jafnframt síðustu gáma-
Næsta kynslóð gámaskipa Eim-
skips er að verða tilbúin úti í Kína.
Fyrra skipið, Dettifoss, verður
brátt tilbúið til heimsiglingar og
eru 17 starfsmenn Eimskips komnir
til Kína til að sigla skipinu heim.
Dettifoss fór á dögunum í nokk-
urra daga prufusiglingu og gekk
hún í heildina vel að sögn Braga
Björgvinsonar skipstjóra. Bragi
hefur starfað hjá Eimskip í 35 ár.
„Nýja skipið er vel búið að öllu leyti
og auðvitað miklu stærra en gömlu
skipin okkar. Skipið er hærra á
sjónum svo það verður gaman að
sjá hvernig það reynist í Atlants-
hafinu.“ segir Bragi.
Hann segir að í prufusiglingunni
hafi eitt og annað komið í ljós sem
þarfnist úrbóta. Kínverjarnir hafi
strax byrjað að vinna að úrbótum
og sú vinna hafi gengið vel.
Vinna við Brúarfoss er í fullum
gangi eftir óhapp sem varð í lok síð-
asta árs. Hann er væntanlegur til
landsins síðar á árinu.
Ljósmynd/Eimskip
Dettifoss Reynslusiglingin í Kína á dögunum gekk vel að mati skipstjórans.
Undirbúa heimsiglingu
nýju skipanna frá Kína
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinn-
ar í Vík hefur unnið að því að klára
byggingu þrjátíu metra langrar ein-
breiðrar bráðabirgðabrúar yfir
Brunná í Skaftárhreppi. Núverandi
brú yfir Brunná er ein af nokkrum
einbreiðum brúm á hringveginum.
Vegagerðin bauð út smíði nýrrar tví-
breiðrar brúar í lok síðasta árs og
samið var við Ístak um byggingu
hennar fyrir rúmar 173 milljónir
króna. Áður en smíði á nýju brúnni
hefst þarf að reisa bráðabirgðabrú til
að hægt sé að hleypa umferðinni á
hana.
Smíði bráðabirgðabrúarinnar
hófst með því að brúarvinnuflokkur-
inn smíðaði átta timburfleka, 4x4
metra að stærð, á Selfossi. Þegar
undirstöður voru tilbúnar á staðnum
var byrjað að setja upp stálbita og
gólfeiningar sem flekunum var síðan
raðað ofan á. Enn er eftir að ganga
frá vegriði á brúna og tengja veginn
við hana, en sú vinna klárast í næstu
viku, segir á vef Vegagerðarinnar.
Smíði nýju brúarinnar hefst í
næsta mánuði. Hún verður 24 metra
löng, eftirspennt steypt bitabrú í
einu hafi með steyptum endastöpl-
um. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki
31. ágúst næstkomandi. sisi@mbl.is
Bráðabirgðabrú yfir Brunná
Ljósmynd/Pétur Eyjólfsson
Brunná Smíði bráðabirgðabrúarinnar hefur gengið vel að undanförnu.