Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Opið í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 12-16
GLEÐILEGT SUMAR!
Þú færð sumargjöfina hjá okkur
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Liður í efnahagsaðgerðum stjórn-
valda vegna kórónuveirunnar er
sérstakt átak til að fjölga tíma-
bundnum störfum fyrir námsmenn,
18 ára og eldri, sem eiga takmark-
aðan eða engan rétt til atvinnu-
leysisbóta. Til þess verkefnis verð-
ur varið 2.200 milljónum króna og
er markmiðið að skapa um 3.000
tímabundin störf fyrir námsmenn
hjá opinberum stofnunum í sumar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu.
„Þessi sumarstörf munu skipta
sköpum fyrir námsmenn og leitast
verður við að stuðla að fjölbreytni
þeirra. Þetta verða samfélagslega
mikilvæg verkefni sem munu
gagnast okkur til framtíðar,
þannig er ráðgert að störf muni til
dæmis bjóðast á sviði rannsókna,
skráninga af ýmsu tagi, umönn-
unar og umhverfisverndar,“ er
haft eftir Lilju Alfreðsdóttur,
mennta- og menningarmála-
ráðherra.
Jafnframt verða 300 milljónir
króna veittar aukalega í Nýsköp-
unarsjóð námsmanna en í hann
geta háskólanemar í grunn- og
meistaranámi sótt um styrki sem
og sérfræðingar innan fyrirtækja,
stofnana og háskóla sem óska eftir
að ráða háskólanema í sumarvinnu
við rannsóknir. Styrkirnir miðast
við laun í þrjá mánuði og verður
áhersla í styrkveitingum á frum-
kvöðlastarf og nýsköpun.
Morgunblaðið/Ernir
Námsmenn Þeir þurfa ekki allir að sitja yfir skræðunum í sumar því fjöldi
starfa verður í boði vegna efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar.
Þrjú þúsund störf
fyrir námsmenn
Liður í efnahagsaðgerðunum
Icelandair Group mun í þessum
mánuði grípa til yfirgripsmikilla að-
gerða sem fela í sér uppsagnir og
breytingar á skipulagi félagsins. Á
sama tíma verður lögð áhersla á að
halda uppi grunnstarfsemi á öllum
sviðum til þess að tryggja þann
sveigjanleika sem þarf til að félagið
geti brugðist hratt við um leið og
markaðir opnast á ný. Þetta kom
fram í tilkynningu sem send var
Kauphöll Íslands síðdegis í gær.
Fram kom í fréttatilkynningu frá
Icelandair að umfang aðgerðanna
yrði kynnt nánar fyrir mánaðamót.
„Mjög mikil óvissa ríkir varðandi
flug og ferðaþjónustu næstu misser-
in, hvenær ferðatakmörkunum verði
aflétt og hvenær eftirspurn muni
taka við sér á ný. Til að bregðast við
áframhaldandi óvissu búa stjórnend-
ur Icelandair Group félagið undir
órætt tímabil þar sem starfsemi þess
verður í lágmarki en sem stendur
eru einungis örfáar ferðir í viku í
áætlun félagsins,“ segir í frétta-
tilkynningunni.
„Við þurfum að aðlaga starfsemi
Icelandair Group þeim veruleika
sem blasir við. Það er gríðarleg
óvissa fram undan og því miður eru
uppsagnir starfsfólks óumflýjanleg-
ar til að komast í gegnum þetta
krefjandi tímabil,“ er haft eftir Boga
Nils Bogasyni, forstjóra fyrirtækis-
ins.
Frekari uppsagnir
verða hjá Icelandair
Verður tilkynnt fyrir mánaðamótin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Icelandair Segja þarf upp fleiri
starfsmönnum á næstu dögum.
Stjórn Lífeyrissjóðs verslunar-
manna hefur hefur ákveðið að
lækka vexti óverðtryggðra sjóð-
félagalána frá og með 24. apríl.
Jafnframt verður boðið upp á nýjan
verðtryggðan lánaflokk þar sem
vextir verða fastir til fimm ára í
senn.
Þetta kemur fram á vef sjóðsins.
Bent er þar á að vextir óverð-
tryggðra lána séu fastir til þriggja
ára í senn. Þessir vextir lækki nú úr
5,14% í 4,95%.
Vaxtalækkunin mun taka gildi
við endurskoðun vaxta samkvæmt
ákvæðum skuldabréfs. Breytilegir
vextir eldri verðtryggðra lána
lækka úr 2,26% í 1,95%.
Jafnframt muni verða boðið upp
á nýjan vaxtaflokk fyrir verðtryggð
lán þar sem vextir verði ákvarðaðir
til fimm ára í senn, nú 2,70%.
Lífeyrissjóður verslunarmanna lækkar vexti
Morgunblaðið/Eggert
LV Vextir óverðtryggðra lána lækkaðir.