Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Síðustu dagarhafa ekkiverið hag-
stæðir þeim sem
eiga eða framleiða
olíu. Í fyrradag
gerðist það meira
að segja í Bandaríkjunum að
verð á olíu fór undir núllið, það
er að segja „seljendur“
greiddu „kaupendum“ fyrir að
taka við olíunni. Þetta er þekkt
þegar um rusl og hvers kyns
úrgang er að ræða, en þetta
hefur aldrei áður gerst í olíu-
viðskiptum. Þó eru þau við-
skipti ekki ný af nálinni, enda
hefur olían verið afar þýðing-
armikill drifkraftur efnahags-
lífsins í um hálfa aðra öld og
töluverð reynsla því komin á
viðskipti með þá umdeildu
vöru.
Því hefur lengi verið spáð að
olían færi að klárast og voru
slíkir spádómar sérstaklega
vinsælir fyrir um fjórum til
fimm áratugum. Þeir hafa þó
ekki ræst enn og ekki endilega
líklegt að þeir geri það nokk-
urn tímann. Þó að aðstæður
þessa dagana séu síður en svo
dæmigerðar er óhætt að segja
að fátt bendi til þess nú að olían
sé að klárast. Þvert á móti er
bókstaflega allt yfirfullt af olíu,
sem skýrir þá skrýtnu stöðu
sem kom upp með olíuverð í
Bandaríkjunum á þriðjudag.
Sádi-Arabar, sem þekkja
flestum betur til þessara mála,
segja að um 80 risaolíuskip af
um 750 á heimshöfunum séu nú
notuð sem olíugeymslur þar
sem erfitt sé að koma olíunni
fyrir á landi. Þetta hefur leitt
til þess að þó að ekki sé hag-
stætt að eiga olíu um þessar
mundir, þá er ákaflega ábata-
samt að eiga risaolíuskip.
Leigan á þeim hefur margfald-
ast og sér ekki fyrir endann á
þeirri þróun því að offram-
leiðslan heldur áfram af mikl-
um krafti.
Hér var í liðinni viku rætt
um sögulegan samning sem þá
hafði verið gerður á milli Sádi-
Arabíu, Rússlands og fleiri
ríkja að undirlagi Bandaríkj-
anna um að draga úr fram-
leiðslu. Þessi samningur var
viðbrögð við þeim skyndilega
samdrætti í eftirspurn sem
leitt hefur olíuframleiðslu
heimsins í þær ógöngur að allir
tankar eru að fyllast og olíu-
verð hefur hrunið, þó að það sé
vissulega ekki almennt orðið
neikvætt. En það hefur fallið
úr tæpum áttatíu dölum í tæpa
tuttugu dali á einu ári og hefur
sú lækkun mestöll komið fram
á þessu ári. Hún verður vart
kölluð annað en hrun.
Nú er svo komið, að óvíst er
að olíuframleið-
endur geti beðið
fram í næsta mán-
uð með að draga úr
framleiðslunni eins
og samningurinn
gerði ráð fyrir,
enda ekki víst að olíutankar og
olíuskip heimsins þoli slíka bið.
Þess vegna er líklegt að gripið
verði til örþrifaráða á næst-
unni.
Þessari þróun í eftirspurn,
framboði og verði á olíu fylgja
svo óhjákvæmilega vangavelt-
ur um hvort olíuframleiðendur
þoli ástandið. Í Bandaríkjunum
ræða stjórnvöld möguleikann á
að styrkja olíuframleiðslu-
fyrirtæki gegn því að eignast
mögulega hlut í fyrirtækj-
unum, en afleiðingarnar gætu
orðið enn alvarlegri annars
staðar. Sérstaklega er horft til
Rússlands í því sambandi, en
efnahagur þess byggist mjög á
því að olíuverð haldist uppi og
dragist þetta ástand gætu erf-
iðleikar þar orðið verulegir.
Alvarlegasti vandinn er svo
vitaskuld sá að sú þróun sem
nú sést á olíuverði er vísbend-
ing um að teygst geti á því
ófremdarástandi sem ríkir í
efnahagsmálum heimsins.
Þetta er í samræmi við það sem
fram kom þegar ríkisstjórn Ís-
lands kynnti nýjar aðgerðir
sínar í fyrradag. Þá var bent á
að ástandið virtist ætla að
dragast lengur og verða verra
en ætlað hefði verið þegar fyrri
aðgerðir voru kynntar fyrir
fáum vikum. Staðreyndin er sú
að hvort sem litið er á þann
mælikvarða sem svarta gullið
gjarnan er um ástand hag-
kerfis heimsins, annan mæli-
kvarða sem gengur yfirleitt í
ólíka átt og gerir einnig nú,
gullið sem glitrar og veitir
skjól í efnahagslegum ólgusjó,
eða á þróun mála hér á landi,
þá eru vísbendingarnar í þá átt
að vissara sér að búa sig undir
að ástandið vari í marga mán-
uði eða lengur, fremur en
nokkrar vikur.
Allir verða að taka mið af
þessu, ekki aðeins ríkisstjórnin
í aðgerðum sínum eða fyrir-
tækin og heimilin, heldur einn-
ig verkalýðshreyfingin, sem
fram til þessa hefur í megin-
atriðum haldið uppi sama mál-
flutningi og fyrir kórónu-
veirufaraldurinn. Það er með
stærri og skaðlegri tíma-
skekkjum sem sögur fara af, en
eins og olíuverðið sýnir er
ástandið um þessar mundir vel
til þess fallið að fella gömul
heimsmet. Það verður þó seint
talið til álitsauka þeim sem um
ræðir ef skortur á veruleika-
tengingu verður eitt þeirra.
Heimurinn er allur í
loft upp en sumir
ætla að reyna að
halda sínu striki}
Verðlausa svarta gullið
og veruleikatengingin
Í
öðrum aðgerðapakka ríkisstjórnar-
innar Viðspyrna fyrir Ísland er lögð
mikil áhersla á innlenda framleiðslu
og verðmætasköpun. Nýsköpun er
þar í öndvegi enda lengi verið ljóst
að skjóta verður fleiri stoðum undir íslensk-
an efnahag. Síðustu vikurnar hefur helsta
umræðuefni fólks um heim allan verið heilsa
og heilbrigði. Fólk óttast þennan vágest sem
kórónuveiran er og leggur mikið á sig til að
komast hjá smiti. Veikindin leggjast mis-
þungt á fólk og hefur ekki verið útskýrt að
fullu hvað veldur þeim mun. Hins vegar er
ljóst að sumir hópar eru veikari fyrir en aðr-
ir og hefur til dæmis í Bandaríkjunum verið
bent á að þeir sem stríða við lífsstílssjúk-
dóma geta orðið sérstaklega illa fyrir barðinu
á Covid-19. Þegar heilsan er okkur svo ofar-
lega í huga er ekki laust við að maður þakki fyrir þá
öfundsverðu stöðu sem við Íslendingar erum í varðandi
matvælaframleiðslu, hvort heldur það er landbúnaður
eða sjávarútvegur. Rúmt ár er nú frá því við í Fram-
sókn héldum fjölmennan fund þar sem Lance Price,
prófessor við Washington-háskóla, hélt fyrirlestur um
þá ógn sem mannkyninu stafar af sýklalyfjaónæmum
bakteríum. Á sama fundi hélt erindi Karl G. Kristins-
son, helsti sérfræðingur okkar í sýklafræði, og sjáum
við honum bregða fyrir á skjánum um þessar mundir í
tengslum við heimsfaraldurinn sem nú herjar á okkur.
Fundinn héldum við til að vekja fólk til vitundar um að
sérfræðingar telja að árið 2050 muni tíu milljónir
manna deyja í heiminum af völdum sýkla-
lyfjaónæmis og ekki vildum við síður benda
á þau verðmæti sem felast í íslenskum land-
búnaði sem er ásamt Noregi með minnsta
notkun sýklalyfja í landbúnaði í heiminum.
Matvælaframleiðsla er gríðarlega mikil-
vægur þáttur í íslenska hagkerfinu og sann-
kallaður lýðheilsufjársjóður. Ríkisstjórnin
ákvað í fyrra að Ísland yrði fyrsta landið í
heiminum til að banna sölu og dreifingu á
matvöru, kjöti, fiski og grænmeti, sem inni-
heldur sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þannig
verndum við heilsu Íslendinga og undir-
strikum þau miklu gæði sem einkenna ís-
lenska matvælaframleiðslu. Hluti af öðrum
aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar er aukinn
stuðningur við grænmetisbændur, bæði
beinn og einnig með endurgreiðslu kostn-
aðar vegna dreifingar og flutnings raforku bænda. Þar
er stigið gríðarlega mikilvægt skref til að efla greinina
og munu íslenskir neytendur njóta þess þegar fram-
leiðsla á íslensku grænmeti eykst. Vonandi stendur
verslunin með þjóðinni og íslenskum matvælaframleið-
endum og gefur íslensku grænmeti heiðurssess. Það er
bjargföst trú mín að það séu gríðarleg tækifæri fram
undan fyrir íslenskan landbúnað og íslenskan sjávar-
útveg. Því ef fólk er almennt orðið meðvitaðra um
heilsuna hugsar það meira um hvað það lætur ofan í
sig. Ég segi því að lokum: Íslenskt, gjörið svo vel.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Pistill
Íslensk matvæli, gjörið svo vel
Höfundur er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Viðbrögð sænskra stjórn-valda við kórónuveirunnihafa vakið mikla athygliþar sem sóttvarnayfirvöld
þar í landi hafa ekki gripið til jafn
harðra ráðstafana og flest önnur
Evrópuríki. Samkomubann er þar í
gildi um mannfagnaði þar sem fleiri
en fimmtíu koma saman og tekið hef-
ur verið fyrir heimsóknir á elliheim-
ili. Að auki eru allir yfir sjötugu
hvattir til að einangra sig.
Að öðru leyti hefur Svíum nánast
verið í sjálfsvald sett hvernig þeir
takast á við kórónuveiruna, en þeir
hafa verið beðnir að fylgja sömu al-
mennu ráðleggingum um fjarlægð
milli fólks og handþvott og við könn-
umst við. Skólar, búðir, kaffihús og
veitingastaðir eru hins vegar áfram
opin.
Þessi stefna hefur dregið að sér
nokkra gagnrýni á „sænsku leiðina“
og um leið Anders Tegnell, sótt-
varnalækni Svíþjóðar, sem er talinn
aðalhönnuður hennar. Sú gagnrýni
hefur þó mestmegnis komið að utan
og kannanir virðast benda til þess að
flestir Svíar hafi enn trú á stefnu
heilbrigðisyfirvalda. Svo rammt hef-
ur kveðið að gagnrýni frá öðrum
löndum að Ann Linde, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, sá sig knúna til
að lýsa því yfir fyrir þarsíðustu helgi
að það væri „mýta“ að lífið gengi
bara sinn vanagang í Svíþjóð.
Brestir komnir í samstöðuna?
Um miðbik mánaðarins rituðu
hins vegar 22 vísindamenn sem
starfa í heilbrigðisgeiranum grein í
Dagens Nyheter, þar sem hörðum
orðum var farið um Tegnell og
stefnu hans. Sóttvarnayfirvöld í heild
sinni voru kölluð „hæfileikasnauðir
embættismenn“ og biðluðu höfundar
greinarinnar til forsætisráðherrans
Stefans Löfvens að grípa í taumana.
Tegnell vísaði gagnrýninni til
föðurhúsanna, en þar hafði meðal
annars verið bent á að uppgefin
dánartíðni Svía væri jafnhá og á
Ítalíu. Sagði Tegnell rót þess vera að
finna í að hvert einasta dauðsfall í
Svíþjóð væri talið með en einungis
þeir sem létust á sjúkrahúsum væru
í opinberum tölum Ítala.
Dánartölurnar þykja engu að síð-
ur háar, ekki síst þegar þær eru
bornar saman við önnur ríki Norður-
landanna. Samkvæmt opinberum
tölum höfðu 1.937 manns látist í Sví-
þjóð af völdum kórónuveirunnar til
þessa í gær en 149 hafa dáið í Finn-
landi, 182 í Noregi og 384 í Dan-
mörku. Munurinn þykir ekki síst slá-
andi í ljósi þess að mannfjöldi
Svíþjóðar er um 10 milljónir en hin
ríkin telja á bilinu 5,4-5,7 milljónir
manna.
Staðfest smit eru einnig rúmlega
tvisvar sinnum fleiri í Svíþjóð en
Danmörku og Noregi og fjórum
sinni fleiri en í Finnlandi. Þykir það
sláandi, ekki síst þar sem ekki hefur
verið prófað fyrir veirunni í jafn-
miklum mæli í Svíþjóð og í hinum
ríkjunum og gæti því fjöldi smitaðra
verið mun meiri en hinar opinberu
tölur segja til um.
Komnir yfir hjallann?
Tegnell vill síður nota orðið
„hjarðónæmi“ um stefnu sína, en
ljóst þykir að hann telur betra að
sem flestir sem ekki eru í áhættu-
hópum smitist yfir nokkurn tíma svo
að færri verði útsettir fyrir smiti
þegar faraldrinum vindur fram.
En virkar stefnan? Tegnell lýsti
því yfir í upphafi vikunnar að svo
virtist semð fjöldi tilfella í landinu
hefði náð ákveðnum toppi, en of
snemmt væri að segja til um hvort sú
þróun héldi áfram. Þá kom út skýrsla
á vegum sóttvarnayfirvalda þar sem
áætlað var að um 600.000 af 974.000
íbúum Stokkhólms myndu hafa smit-
ast af kórónuveirunni við næstu
mánaðamót. Skýrslan var hins vegar
dregin til baka degi síðar vegna
óskilgreindrar „villu“, en fjölmiðlar
höfðu bent á að niðurstöður hennar
þýddu að fleiri hefðu smitast í Sví-
þjóð en byggju þar í reynd.
Lognið á undan storminum?
Það flækir einnig stöðuna að smit
dreifast ekki jafnt um landið; um
6.400 af þeim rúmlega 16.000 smitum
sem staðfest hafa verið eru í Stokk-
hólmi og nágrenni. Til samanburðar
má nefna að á Skáni í Suður-Svíþjóð
hafa 575 tilfelli verið staðfest og að
minnsta kosti 46 hafa dáið þar. Eitt-
hvað virðist hafa hægst á faraldr-
inum þar, en yfirvöld segja það ein-
ungis vera „lognið á undan
storminum“.
Per Ola Kimblad, aðstoðarfor-
stjóri háskólasjúkrahúss Skánar,
SUS, sagði í samtali við dagblaðið
Kvällsposten í Malmö að gerð hefði
verið áætlun með fimm viðbún-
aðarstigum þar sem fjöldi hjúkr-
unarrýma og öndunarvéla yrði auk-
inn ef þurfa þætti. „Svo er til sjötta
stigið, ef við endum í sömu stöðu og
Langbarðaland,“ sagði Kimblad.
Skánn er nú á öðru viðbúnaðar-
stigi af fimm. Elisabeth Rünow,
smitsjúkdómalæknir við SUS, segir
áætlunina trausta og vandinn liggi
frekar í álagi á starfsfólk og skorti á
hjúkrunarfræðingum.
Gengur lífið sinn
vanagang í Svíþjóð?
AFP
Óvanagangur Enn er hægt að sitja á veitingahúsum Stokkhólms og njóta
vorblíðunnar, og kjósa margir Svíar að gera það, þrátt fyrir faraldurinn.