Morgunblaðið - 23.04.2020, Qupperneq 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
✝ Guðríður Jóns-dóttir fæddist á
Patreksfirði 29. júlí
1924. Hún lést á
Hrafnistu 5. apríl
2020. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jón Þórðarson
skipstjóri á Pat-
reksfirði, f. 1. des-
ember 1874, d. 5.
september 1953, og
Ingibjörg Ólafs-
dóttir húsmóðir, f. 22. maí 1900,
d. 4. maí 1988. Bræður Guðríðar
eru Ólafur Þórður, f. 1925, d.
1986, Haraldur, f. 1926, d. 2016,
Héðinn, f. 1930, d. 2010, Hörður,
f. 1934, d. 2018. Hálfbróðir
þeirra samfeðra var Jón, f. 1900,
d. 1988. Uppeldisbróðir þeirra
var Kristján Halldórsson, f.
1912, d. 1976.
Eiginmaður Guðríðar var Ás-
geir Jónsson kaupmaður, f. 7.
desember 1920, d. 29. september
2010. Foreldrar hans voru El-
inora Guðbjartsdóttir frá Hest-
eyri, f. 1898, d. 1971, og Jón Sig-
fús Hermannsson frá Aðalvík, f.
1894, d. 29. 1991. Börn Guðríðar
og Ásgeirs eru:
1) Erling Ingi, f. 1945, maki
Erla Þorláksdóttir, f. 1947, börn
Zöega er Atli Steinn, f. 1994.
Börn hans og Silju Sverrisdóttur
eru: i) Alexander Breki, f. 1999,
ii) Anna Yrsa, f. 2004, iii) Aþena
Kolka, f. 2004. c) Drífa, f. 1973,
börn hennar og Ólafs Baldurs-
sonar, f. 1969: i) Elísabet Mist, f.
2000, og ii) Baldur Nói, f. 2004.
3) Ingibjörg Edda, f. 1953,
maki Hallgrímur Jónasson, f.
1952, börn þeirra: a) Berglind, f.
1976, d. 2019, maki Eðvarð Jón
Bjarnason, f. 1976, barn þeirra:
i) Elsa Edda, f. 2007. b) Jónas
Hlynur, f. 1982, börn hans og
Helgu Guðmundsdóttur: i) Hall-
grímur Helgi, f. 2010, ii) Guð-
mundur Kári, f. 2013. c) Ásgeir
Örn, f. 1984, maki Hanna Borg
Jónsdóttir, f. 1985, börn þeirra:
i) Tumi, f. 2012, ii) Dagur, f.
2014, iii) Fríða, f. 2019.
4) Ásgeir Jón, f. 1960, maki
Unnur Steinsson, f. 1963, barn
þeirra Helga Sóley, f. 2007.
Börn Ásgeirs og Sigurlaugar
Kristínar Pálsdóttur: a) Rakel, f.
1984, maki Adrian Sabido, f.
1984, börn þeirra: i) Viktoría
París, f. 2005, ii) Halldór Maron,
f. 2008, iii) Ingunn Sara, f. 2014.
b) Guðríður Harpa, f. 1990, sam-
býlismaður Hafsteinn Briem, f.
1991, börn þeirra: i) Marel, f.
2013, ii) Andrea, f. 2018. c)
Brynja, f. 1993, sambýlismaður
Marteinn Þór Pálmason, f. 1993,
barn þeirra: i) óskírður, f. 2020.
Útför Guðríðar fór fram í
kyrrþey frá Vídalínskirkju 17.
apríl 2020.
þeirra: a) Heimir, f.
1969, maki Soffía
Ólöf Ketilsdóttir, f.
1970, börn þeirra: i)
Axel Örn, f. 2003, ii)
Eva Margrét, f.
2005, iii) Aron
Freyr, f. 2009, iv)
Thelma Lind, f.
2012. Sonur Heimis
og Hrundar Grét-
arsdóttur er
Hrannar, f. 1993,
barn hans og sambýliskonu, Ás-
dísar Guðmundsdóttur, f. 1993,
er Kári, f. 2018. b) Viðar, f. 1975,
maki Ágústa Björg Bjarnadótt-
ir, f. 1971, börn þeirra: i) Dagur
Ingi, f. 2003, ii) Andri Felix, f.
2006, iii) Erla Björg, f. 2010. c)
Elfa Björk, f. 1982, maki Sig-
urður Bjarni Sigurðsson, f.
1977, börn þeirra: i) Ingibjörg
Erla, f. 2006, ii) Rósa María, f.
2010.
2) Anna Elísabet, f. 1947,
maki Sigurjón G. Sigurjónsson,
f. 1943, d. 2005, börn þeirra: a)
Guðrún Freyja, f. 1966, maki
Þórir Sigurgeirsson, f. 1966,
börn þeirra: i) Arnar Freyr, f.
1989, ii) Hlynur, f. 1992, ii) Sig-
urjón Orri, f. 1994. b) Ásgeir, f.
1969, sonur hans og Hjördísar
Fallin er frá elskuleg móðir
mín, Guðríður Jónsdóttir, á ní-
tugasta og sjötta aldursári.
Mamma ólst upp á Patreksfirði,
í hópi fimm bræðra sem allir
eru látnir. Minntist hún upp-
vaxtaráranna þar með mikilli
hlýju. Á unglingsárunum dvaldi
hún oft hjá móðursystur sinni,
Önnu Ólafsdóttur, síðar John-
sen, sem starfaði sem yfir-
hjúkrunarkona á Vífilsstöðum.
Eftir að hefðbundinni skóla-
göngu lauk fór mamma á Hús-
mæðraskólann á Staðarfelli og
útskrifaðist þaðan 1944. Auk
heimilisfræða var lögð rækt við
hannyrðir sem alltaf léku í
höndunum á mömmu. Síðar
komst hún í starfsnám til frú
Dýrleifar Ármann, sem var
mikilsmetinn kjólameistari í
Reykjavík.
Eftir dvölina á Staðarfelli
tókust ástir með henni og föður
okkar sem leiddi til þess að þau
gengu í hjónaband 13. janúar
1945 og hinn 29. maí sama ár
fæðist ég. Mikil húsnæðisekla
var á þessum árum en lengst af
bjuggum við á Laufásvegi 20
eða allt þar til við fluttum í
Kópavog árið 1952 þar sem
mamma og pabbi voru frum-
byggjar. Mamma var stórtæk í
saumaskapnum, saumaði öll föt
á okkur systkinin og þau voru
ófá börnin í stórfjölskyldunni
sem eignuðust jólaföt saumuð
af henni. Síðkvöld fram eftir
nóttu voru tími mömmu, þá var
hún í essinu sínu. Það var nota-
legt að sofna við niðinn í
saumavélinni hennar.
Segja má að helsta áhugamál
mömmu hafi alla tíð verið stór-
fjölskyldan og velferð hennar.
Hún stundaði ekki launaða
vinnu utan heimilis fyrr en þau
pabbi stofnuðu Skóverslun
Kópavogs árið 1965. Þau voru
mjög samhent hjón og þar
störfuðu þau saman samfellt í
25 ár eða þar til kom að starfs-
lokum. Þá fluttu þau í Garðabæ
þar sem þau bjuggu þar til yfir
lauk.
Mamma undi sér vel í Að-
alvík, á heimaslóðum pabba, og
fór þangað oft með börnum og
barnabörnum. Þar stundaði
hún veiðiskap í Staðarvatni og
var annáluð veiðikló, gekk til
berja og á fjöll. Hún á ófáar
ferðirnar upp á Darrann. Um
tíma áttu þau sumarbústað í
Valbjarnarvallalandi í Borgar-
firði, þar undu þau sér við trjá-
rækt og aðra iðju en vænst
þótti þeim um að fá fólkið sitt í
heimsókn. Og þar var oft
mannmargt.
Við sjáum nú á eftir ein-
stakri ættmóður sem kveður
okkur eftir langa og gifturíka
ævi. Síðustu vikur og mánuðir
hafa verið henni og okkur að-
standendum erfiðir. Að leiðar-
lokum vonuðumst við til að geta
endurgoldið henni þá tak-
markalausu ástúð og umhyggju
sem hún sýndi okkur alla tíð.
Að verða vitni að því hvernig
hún hlúði að föður okkar síð-
ustu æviárin allt þar til yfir
lauk var einstakt. Að hafa ekki
átt þess kost að hlúa að henni á
sama hátt er sárara en orð fá
lýst. En um leið erum við þakk-
lát fyrir þá góðu og alúðlegu
aðhlynningu sem hún fékk frá
því að hún lærbrotnaði 17. des-
ember sl. frá hjúkrunarfólki
Landspítalans í Fossvogi,
Landakoti og á Vífilsstöðum og
á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar
sem hún lést á pálmasunnudag
5. apríl sl.
Ég leyfi mér að trúa því að
pabbi hafi beðið hennar í
blómabrekkunni með útbreidd-
an faðminn þegar hún tók
stökkið yfir lækinn.
Guð geymi þig elsku
mamma. Takk fyrir hartnær 75
ára samfylgd.
Þinn sonur,
Erling Ásgeirsson.
Elskuleg amma okkar og
tengdamamma er fallin frá.
Hennar verður sárt saknað
enda var hún með stórt og mik-
ið hjarta og einstaklega hlýja
nærveru.
Sú minning sem kemur fyrst
upp í hugann um ömmu er frá
Aðalvík af henni í rauðu dún-
úlpunni og stígvélunum, með
veiðistöngina í höndunum. Það
var fátt sem hún undi sér betur
við en veiðarnar inn við Stað-
arvatn. Hún kom iðulega síðust
heim úr veiðiferðunum og með
væna fiska. Það var líka gaman
að vera samferða henni í veið-
unum, því hún vissi um feng-
sæla staði við vatnið og var
eljusöm.
Í Aðalvíkinni nutu afi og
amma sín best, í faðmi fjöl-
skyldunnar. Enda dvöldu þau
þar stóran part af sumri í fleiri
tugi ára. Þar lifnaði yfir þeim
og þau þekktu alla og hverja
þúfu í Víkinni, enda Ásgeir
kominn á heimaslóðir. Hún
hafði áhuga á því hvað fólk var
að sýsla og sjónaukinn var
aldrei langt undan, kunni hún
alltaf góð skil á helstu manna-
ferðum í Víkinni.
Minningarnar frá Hátröðinni
eru skemmtilegar, garðurinn
var sem ævintýraveröld fyrir
unga drengi. Með trjám til að
klifra í og grasflöt þar sem
ímyndaðir úrslitaleikir fóru
fram. Aðfangadagskvöld eru
einstaklega minnisstæð, þar
sem öll stórfjölskyldan kom
saman og amma sá til þess að
allir nutu sín og upplifðu
skemmtilegar samverustundir.
Henni leið mjög vel að hafa alla
sína fjölskyldu í kringum sig.
Það var mjög ánægjulegt að
vera með henni í 90 ára afmæl-
isferð í heimsókn fyrir vestan
fyrir rúmum 5 árum. Við heim-
sóttum sundlaugina í Reykja-
firði þar sem hún lærði að
synda, heimsóttum Sauðlauks-
dal, Hnjót og Látrabjarg. Ekki
síst var ánægjulegt að vera
með henni á Patreksfirði, þar
sem hún rifjaði upp gamlar
minningar.
Hin síðari ár var ánægjulegt
að heimsækja hana á Garða-
torgið. Nærvera hennar var
alltaf mjög hlý og rausnarlega
var tekið á móti manni. Hún
var alltaf svo glöð þegar við lit-
um inn og þáðum kaffibolla og
kökur, en það var henni metn-
aðarmál að eiga nóg af veit-
ingum að bjóða upp á ef gesti
bar að garði. Hjá henni fékk
maður fréttir af skyldmennum,
því hún fylgdist alltaf vel með
öllu sínu fólki. Það var aðdáun-
arvert því langömmubörnin
voru komin á fjórða tug.
Allt fram á síðasta dag lagði
hún mikið upp úr því að vera
glæsileg, sem hún og var, því
hún var smekkmanneskja með
gott auga fyrir fallegum hlut-
um. Hvort sem maður kom við
á mánudagsmorgni eða laugar-
dagseftirmiðdegi var hún búin
að setja upp rúllurnar og taka
þær úr aftur og að sjálfsögðu
var heimilið eftir því.
Elsku amma og tengda-
manna, við viljum þakka þér
samfylgdina öll þessi ár, þér
var alltaf umhugað um velferð
okkar, hugulsöm í okkar garð
og góð fyrirmynd í einu og öllu.
Við erum glaðir að vita af end-
urfundum ykkar afa.
Hallgrímur, Jónas
Hlynur og Ásgeir Örn.
Ástkær amma mín, Guðríður
Jónsdóttir, er fallin frá á 96.
aldursári.
Þegar ég hugsa til baka
koma fram margar góðar og
fallegar minningar.
Amma og afi bjuggu lengi á
Hátröðinni í Kópavogi, þangað
var alltaf gott að koma og ég
dvaldist oft hjá þeim sem barn.
Þvílíkur myndarskapur í
heimilishaldi, ég sé ömmu fyrir
mér að elda í hádeginu fyrir afa
og stundum voru þar fleiri úr
fjölskyldunni. Það voru bakað-
ar pönnukökur, gert slátur,
mikið saumað og yfirleitt unnið
frameftir kvöldi. Hún elskaði
að halda veislur af ýmsu tagi
og hafa alla stórfjölskylduna í
kringum sig. Jólin voru í barns-
minningunni sérlega falleg og
mikið í lagt. Amma átti mikið
af fallegum skóm og það var
mjög spennandi fyrir litla
stúlku að kíkja í skóskápinn
hennar og dunda sér við að
máta.
Afi og amma ráku Skóversl-
un Kópavogs í mörg ár og þar
kom glöggt fram hve amma var
mikil smekkmanneskja, var
hún jafnan óaðfinnanlega til
fara, alltaf vel tilhöfð um hárið,
en það var mikill metnaður hjá
henni alla tíð.
Fyrir mig voru mikil forrétt-
indi að hafa séð um hárið á
ömmu í meira en 30 ár, það var
ljúft að spjalla við hana, ég
fékk fréttir af stórfjölskyldunni
og fann hversu annt henni var
um fólkið sitt, hvað það væri að
gera, hvert það væri að fara og
hvenær það kæmi aftur. Það
var í raun ótrúlegt hvað hún
náði að halda vel utan um
þennan fjölda af afkomendum
og hvað var að gerast í þeirra
lífi.
Í seinni tíð var mjög verð-
mætt að hafa hana hjá okkur
sum jól og áramót sem ég
minnist með hlýhug og kær-
leika. Hún var mjög þakklát
fyrir það sem fyrir hana var
gert.
Þetta eru skrýtnir tímar sem
við erum að upplifa, erfitt fyrir
fjölskylduna að geta ekki hitt
hana síðustu vikurnar og fyrir
hana að skilja af hverju enginn
kom.
Þó var yndislegt að börnin
hennar fengu að vera hjá henni
síðasta sólarhringinn.
Ég kveð ömmu með söknuði,
en einnig miklu þakklæti.
Minning hennar er ljós í lífi
okkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín
Freyja.
Elsku Guðríður amma okkar
er farin frá okkur.
Okkur systrum fannst svo
sjálfsögð tilhugsun að hún yrði
hjá okkur miklu lengur þó svo
hún væri orðin 95 ára. Að við
gætum heimsótt hana hvaða
dag sem var og hún tæki á móti
okkur brosandi með útbreiddan
faðminn. Að ganga inn í hreina
og fallega heimilið, fá hlýjuna á
móti sér, kaffi og kræsingar og
amma óaðfinnanleg í fallegu
fötunum sínum eins og drottn-
ing til fara. Þetta var nokkuð
sem okkur þótti svo sjálfsagt
fyrir örfáum vikum en er núna
minningin ein sem við munum
halda fast í.
Við systur og amma áttum
svo einstaklega fallegt og gott
samband sem erfðist til
barnanna okkar. Þau elskuðu
að heimsækja ömmu enda
fengu þau að leika sér með
gamla dótið í kassanum og fá
eitthvað gott að borða. Bestar
þótti henni þó heimsóknirnar
þar sem við systur og mamma
okkar komum að kvöldi til. Þá
sagði hún okkur sögur frá því í
gamla daga, bæði frá lífinu á
Patró og fallega ástarsögu
þeirra afa. Það er einstaklega
dýrmætt að eiga minningu um
kvöldið okkar saman fyrir síð-
ustu jól þegar við bökuðum sör-
ur, fengum okkur jólabjór og
sérrí og hlustuðum á gömul
jólalög. Við vorum allar svo
ánægðar með kvöldið og amma
sagði að það jafnaðist á við jól-
in sjálf. Þá eigum við margar
aðrar yndislegar minningar frá
jólunum, þá sérstaklega hefðina
til 15 ára, þegar við skrifuðum
saman jólakort.
Æska okkar ljómar öll af
hlýjum minningum um ömmu
og afa en við nutum þeirra for-
réttinda að hafa þau heima hjá
okkur oft í viku. Alltaf var tek-
ið á móti okkur með hlýju, kær-
leika og mikilli gleði, já og auð-
vitað hreinu heimili og
samanbrotnum þvotti. Sumar
helgar fengum við að fara til
ömmu og afa í sumarbústaðinn,
en það tók iðulega 4-5 klukku-
stundir að keyra í Borgarfjörð-
inn með afa við stýrið og amma
var alltaf að hægja á honum. Í
bústaðnum voru svo kræsingar
í hverri máltíð og við komum
líklega töluvert búttaðri heim.
Lífið verður allt örðuvísi án
elsku ömmu okkar og við eigum
eftir að sakna hennar mikið
enda var hún ekki bara amma
okkar heldur einnig ein af okk-
ar bestu vinkonum. Við munum
sakna þess að geta ekki heim-
sótt hana í Garðabæinn og
njóta þess að amma stjani við
okkur og finna þegar hún
breiðir yfir okkur teppi á með-
an við slökum á í sófanum,
enda var hvergi betra að vera.
Minning um dásamlega konu
lifir.
Takk fyrir allt.
Þínar ömmustelpur,
Rakel, Guðríður
Harpa og Brynja.
Mig langar í nokkrum orðum
að minnast hennar Íðu minnar
sem nú hefur lagt upp í sína
hinstu för.
Hugurinn reikar mörg ár
aftur í tímann, á Hátröðina í
Kópavogi þar sem ég dvaldi oft
á tíðum hjá fjölskyldunni. Ég
var ekki há í loftinu þegar ég-
kom þangað fyrst, naut alltaf
góðs atlætis, enda kallaði ég
þau mammahin og pabbi hinn.
Jólin sem ég dvaldi með fjöl-
skyldunni á Hátröðinni eru mér
afarminnisstæð, allt tilbúið og
skreytt. Við Ásgeir sátum sam-
an í herberginuinn af eldhúsinu
á aðfangadag og hlustuðum á
jólalög, „Litli trommuleikarinn“
og „Jólin alstaðar“, þessi litla
plata Ellýjar og Vilhjálms
er ein af mínum uppáhalds.
Svo fékk ég möndluna …, ein-
hver laumaði henni í diskinn
minn.
Í mörg ár var heimsókn á
Hátröðina á aðfangadag fastur
liður þar sem Íða bar fram
smákökur og aðrar kræsingar,
enda mikil húsmóðir og á ég
margar góðar uppskriftir frá
henni. Íðu féll ekki verk úr
hendi og var handverkskona
mikil, barnabörnin okkar hafa
fengið að njóta góðs af því.
Af mörgu er að taka sem
skemmtilegt er að rifja upp frá
samveru okkar frændfólksins í
Aðalvík, farið í gufubað, horft
niður í fjöru, til fjalla, og út á
sjóinn eða bara setið í sólinni
og spjallað saman. Hressing í
Fjósatungu meðan beðið var
eftir bátnum. Í mínum huga er
ómetanleg gjöfin þegar Íða gaf
mér bók þeirra hjóna „Sléttu-
hreppur fyrrum Aðalvíkur-
sveit“, bók sem ég hafði lengi
leitað.
Í minningunni sé ég Íðu al-
veg fyrir mér frammi í vatni,
með orm á öngli að draga upp
hvern silunginn af öðrum, hví-
lík aflakló.
Heimsóknir til hennar á
Garðatorgið seinni árin hafa
einkennst af spjalli um fólkið
okkar, alltaf boðið upp á kaffi
og meðlæti.
Ýmislegt rifjað upp um
gamla góða tíma, farið yfir víð-
an völl enda árin hennar orðin
rúmlega níutíu og fimm og frá
mörgu að segja. Meðal annars
rifjaði hún upp minningar frá
æskuárunum á Patreksfirði,
sveitadvöl hjá frændfólki í
Trostansfirði og þegar hún kom
til Reykjavíkur með Önnu
frænku sinni og dvaldi hjá
frændfólki á Öldugötu 4 þar
sem hún hitti hann Ásgeir sinn.
Þetta voru notalegar stundir
sem ég er svo þakklát fyrir.
Að leiðarlokum, takk fyrir
allt, Íða mín, og góða ferð í
sumarlandið.
Guðrún Brynja
og fjölskylda.
Guðríður
Jónsdóttir
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.