Morgunblaðið - 23.04.2020, Síða 47

Morgunblaðið - 23.04.2020, Síða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 ✝ AðalsteinnBjarnason fæddist 27. nóv- ember 1927 á Arn- órsstöðum á Barðaströnd og lést 12. apríl 2020 á Patreksfirði. Aðalsteinn bjó alla sína ævi á Arnórsstöðum, að frátöldum síðustu 2 árum sem hann dvaldi að mestu á Heilbrigð- isstofnum Vestfjarða á Pat- reksfirði, þar sem hann lést. Foreldrar hans voru Val- hlíð. Vorið 1925 keyptu þau jörðina að Neðri-Arnórs- stöðum og bjuggu þar alla tíð eftir það. Þau eignuðust 11 börn. Aðalsteinn Kristinn, f. 17. ágúst 1919, d. 25. nóvember 1925, Jóhanna Guðrún, f. 19. sept. 1920, d. 25. apríl 2007, Lilja, f. 8. janúar 1922, d. 21. sept. 2003, Davíð Þorgils, f. 13. júní 1923, d. 20. ágúst 1980, Kristrún Aðalheiður, f. 11. apríl 1925, d. 4. nóvember 2010, Aðalsteinn, f. 27. nóv- ember 1927, d. 12. apríl 2020, Lára, f. 24. september 1929, Gestur, f. 25. september 1932, d. 27. maí 2018, Kristján, f. 24. nóvember 1933, Ingvi Óskar, f. 6. desember 1935, Guðmundur Birgir, f. 21. júní 1939. Útför fer fram 23. apríl 2020 í Brjánslækjarkirkju. gerður Jóhanns- dóttir, f. 21. maí 1897 á Bíldudal, d. 2. janúar 1961 á Patreksfirði, og Bjarni Gestsson, f. 28. des. 1894 í Sauðeyjum á Breiðafirði, d. 21. des. 1987 á Arn- órsstöðum. Bjarni og Valgerður bjuggu fyrstu tvö árin á Bíldudal, því næst á Laugabóli í Arnarfirði í eitt ár. Eftir það fluttu þau sig yf- ir á Barðaströndina að Mos- Aðalsteinn fæddist 27. nóvem- ber 1927 á Arnórsstöðum, Barða- strönd, ólst þar upp og bjó alla sína ævi. Þar bjó hann hjá for- eldrum sínum og systkinum sem fóru eitt af öðru að heiman, flest ung að árum til vinnu eins og tíðkaðist þá. Ásamt búskap stundaði Bjarni faðir hans tófu- skytterí og sjómennsku, og móðir hans Valgerður sinnti börnum og búskap. Valgerður lést 1961. Pabbi og mamma, þau Ingvi og Sigurbjörg, tóku þá fljótlega við búinu. Bjarni afi bjó einnig á bænum allt til dánardags. Alli og afi eru stór hluti af æskuminning- unum mínum, og er ómetanlegt að hafa alist upp á stóru heimili með þeim tveim í bónus. Alli var rólegur og skapgóður, en einnig mikill grínisti og fé- lagsvera. Hann vann við búskap- inn, ótrúlega iðinn og í minning- unni var hann alltaf að. Eitt augnablik sá maður hann stika upp túnið, sennilega upp í fjós að líta eftir kúnum, stuttu seinna var hann kannski kominn niður að skúr til að huga að signu grá- sleppunni sem hékk þar, eða harðfisknum. Verkefnin voru nefnilega ansi mörg. Eitt að þeim var að reykja rauðmaga, og við biðum alltaf spennt eftir því á hverju vori, hann var nefnilega meistari í þessu. Hann var algjör snillingur með orf og ljá, örugg- lega ekki margir enn í dag sem slá með ljá af svona kunnáttu. Hann sló hólinn heima og brekk- una sem ekki var hægt að slá með vélum. Og við krakkarnir stúss- uðumst í kringum hann. Eftir að kúabúskap lauk heima á Arnórsstöðum voru hafðir nokkrir kálfar á hverju ári og urðu þeir í miklu uppáhaldi hjá honum. Hann gat endalaust verið að stússa eitthvað í kringum þá. Við heima tölum um „dágana“ hans Alla, það voru kálfarnir hans. Held að þessi kálfa- búskapur hafi haft heilmikið að segja hve heilsuhraustur Alli var svona lengi og átti eftir að vera það allt fram að tíræðisaldri. Alli dvaldi síðustu misserin á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði eftir að heilsunni hrakaði, og lést hann þar 12. apr- íl. Mig langar fyrir hönd fjöl- skyldunnar að þakka fyrir hlýju og alúð í umönnun hans. Hann hafði sjálfur á orði hversu góðir allir væru við sig þar. Og það var gott til þess að vita á þessum tím- um þar sem heimsóknir voru í lágmarki vegna ástandsins í þjóð- félaginu, að hann var í góðum höndum og vel hugsað um hann. Þessi ljúfi hægláti maður sem alla jafna fór ekki mikið fyrir, skilur eftir sig risastórt skarð hjá okkur, hans nánustu. En eftir sitja svo margar ljúfar og skemmtilegar minningar um ein- stakan mann, skemmtilegan kar- akter, sem alltaf vildi öllum vel og var okkur systkinunum heima sérstaklega góður. Elsku Alli, ég kveð þig í bili, með bæn sem mamma þín fór með fyrir þig þegar þú varst lítill. Veit að afi, amma, Rúna, Davíð og allir hinir hafa tekið vel á móti þér í Sumarlandinu. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín frænka, Helena. Mikið á ég eftir að sakna hans Alla. Ég var bara lítil þegar ég fór að fylgja honum í allskonar verk- um sem hann sinnti á búinu, þannig lærði ég af honum ótal hluti. Hann var alltaf að, féll sjaldan verk úr hendi. Hann var mikill húmoristi, mjög félagslyndur, hrekkjóttur, hann las mikið og hafði mjög gaman af því að segja sögur. Það eru ótal margar skemmti- legar minningar um hann sem eiga eftir að fylgja mér alla tíð, hann er og verður alltaf nálægur. Mig langar að þakka honum fyrir samfylgdina, ég er óendan- lega þakklát fyrir að hafa fengið að alast upp með honum. Takk fyrir allt, elsku Alli. Elín. Aðalsteinn Bjarnason ✝ Arnþór Blön-dal fæddist á Siglufirði 22. nóv- ember 1947. Hann lést á sjúkrahúsi í Skien í Noregi 30. mars 2020. Foreldrar hans voru Ingiríður Jónasdóttir Blön- dal, f. 9. október 1920, d. 8. mars 2005 og Magnús Blöndal bygg- ingameistari, f. 29. júní 1918, d. 15. september 2010. Bræður Arnþórs eru Jónas Blöndal, f. 1. september 1942 og Sig- urður Blöndal, f. 28. janúar 1953, d. 1. mars 2019. Arnþór kvæntist Maríu Gunnarsdóttur Blöndal, f. 4. október 1947, þann 15. júní 1968. Foreldrar hennar voru Guðrún Elísabet Björnsdóttir, f. 27. september 1915, d. 31. ágúst 1992 og Gunnar Hjálm- arsson skipstjóri, f. 15. sept- ember 1915, d. 9. maí 1994. Börn Arnþórs og Maríu eru: 1) Gunnar Blöndal, f. 6. sept- sá m.a. um rekstur Edduhót- elanna. Einnig tók hann þátt í að koma á fót námskeiðum fyrir leiðsögumenn. Að námi loknu í ferðamála- fræði fluttu þau til Kristians- and, þar sem Arnþór vann hjá fylkinu við skipulagningu ferðamála. Árið 1980 var Arn- þór ráðinn sem ferða- málastjóri hjá Skien Komm- une. Hann var sá fyrsti til að gegna starfinu og átti því stóran þátt í að byggja upp og móta ferðaþjónustu í Skien og Þelamerkurfylki. Í Skien byggði hann upp Legeland, stóran skemmtigarð sem var fyrsti garður sinnar tegundar í Noregi. Garðurinn naut mik- illa vinsælda og dró fjölda ferðamanna til bæjarins. Hann beitti sér fyrir mörgum ný- mælum í ferðaþjónustu á svæðinu svo sem að aftur yrðu teknar upp ferðir með göml- um gufubátum um skipaskurði og vatnaleiðir Þelamerk- urfylkis. Útför Arnþórs fór fram 7. apríl 2020 frá Solumkirkju í Skien. Minningarsíða um Arnþór er á slóðinni: https:// bit.ly/2wweiCV. ember 1968, maki Elisabet Bohlin. Börn þeirra eru Embla, Vilde og Ylva. 2) Björn Auðunn Blöndal, f. 24. maí 1977, maki Helle Grøstad. Börn þeirra eru Stella og Storm. 3) Guðrún El- ísabet Blöndal, f. 9. júní 1986, maki Erlend Kirke- sæt. Börn þeirra eru María Soley, Agnes og Olav. Arnþór varð stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1968. Hann stundaði nám í ferða- málafræði í Lillehammer og Molde í Noregi á árunum 1974 til 1976. Arnþór hóf ungur að vinna á síldarplani á Siglufirði. Á námsárunum í Verslunarskól- anum vann hann að smíðum hjá föður sínum. Að loknu stúdentsprófi fór hann að vinna hjá Ferðaskrifstofu rík- isins sem ferðamálaráðgjafi. Hann vann þar í um sex ár og Vinur minn Arnþór Blöndal lést í Skien í Noregi hinn 30. mars sl. eftir erfiða baráttu við lungnakrabbamein. Leiðir okkar Arnþórs lágu fyrst saman fyrir 50 árum, þegar hann hóf nám í Verslunarskólan- um og kom inn í þriðja bekk skól- ans. Tókst með okkur góð vinátta sem haldist hefur síðan. Árin í Versló eru fyrirferðar- mikil og skemmtileg í minning- unni. Arnþór tók námið hæfilega alvarlega og naut þess að hann átti gott með nám. Við brölluðum ýmislegt á þessum árum og lás- um saman undir próf. Hann var útivistarmaður og góður íþrótta- maður og miklu betri skíðamaður en við skólasystkinin. Arnþóri var margt til lista lagt. Hann tók m.a. þátt í uppsetningu á leikriti á nemendamóti bæði sem leikari og leikmyndasmiður. Í Verslunarskólanum hitti Arnþór ástina sína hana Maríu. Um svipað leyti tókum við Ásta að draga okkur saman. Við fjögur nutum lífsins saman, skemmtum okkur og ferðuðumst. María og Arnþór giftu sig daginn sem við urðum stúdentar og sama dag trúlofuðum við Ásta okkur. Vinna Arnþórs hjá Ferðaskrif- stofu ríkisins varð hvati til þess að fjölskyldan fluttist til Noregs, þar sem hann fór í nám í ferða- málafræðum. Þau María bjuggu um skeið í Kristiansand, en fluttu 1980 til Skien í Suður-Noregi. Eftir nokkur ár þar byggðu þau sér myndarlegt hús á stórri lóð á fal- legum stað í útjaðri bæjarins. Þau voru mjög samtaka í fram- kvæmdum við húsið og hafa ræktað þar upp einstakan unaðs- reit. María með græna fingur fékk hugmyndir sem Arnþór sá um að fylgja eftir með smíði brúa, stíga, palla og mótaði rennandi læk og tjörn þar sem fiskar synda. Þegar börnin voru komin á legg og fóru að koma sér upp húsnæði nutu þau einnig hand- lagni Arnþórs og ósérhlífni því hann var alltaf mættur þegar breyta þurfti eða bæta híbýlin. Þau hjónin hafa unað hag sín- um vel í Skien og verið virk í bæj- arlífinu. Þau stunduðu siglingar, skíði og dans ásamt góðum fé- lögum í áratugi. María hefur starfað mikið í garðyrkjufélaginu og Arnþór var félagi í Oddfellow. Eftir að Arnþór fór á eftirlaun var hann í sjálfboðavinnu með fötluðum börnum og aðstoðaði þau við að fara í reiðtúr á hestum sem hann leigði. Síðasta ferð okkar til þeirra hjóna í Skien var í ágúst sl., en þá heimsóttum við þau ásamt tvenn- um öðrum vinahjónum. Þrátt fyr- ir erfið veikindi var Arnþór virk- ur þátttakandi í því sem við tókum okkur fyrir hendur þessa daga. Arnþór var alltaf áhugasamur um málefni á Íslandi og fylgdist mjög vel með því sem hér var að gerast. Hann var tilfinninganæmur og rólegur, en það var glettni í aug- unum og stutt í húmorinn. Hann var mikill fjölskyldumaður og naut þess að vera með barna- börnunum, sinna þeim og fræða. Hann var kokkur góður og lið- tækur við brauðbakstur. Hann hafði mikinn áhuga á tónlist og naut þess að spila á píanó, oft sín- ar eigin melódíur. Við Ásta samhryggjumst Mar- íu, Gunnari, Birni Auðuni, Guð- rúnu Elísabetu, tengdabörnum, barnabörnum og fjölskyldunni allri og sendum þeim einlægar samúðarkveðjur. Einar I. Halldórsson. Arnþór Blöndal ✝ Runólfur H. Ís-aksson rafvirki fæddist 18. janúar 1937 á Bjargi á Sel- tjarnarnesi. Hann lést 11. apríl 2020 á Land- spítalanum Foss- vogi eftir mjög skamma legu. Foreldrar hans voru þau Ísak Kjartan Vilhjálms- son, f. 1894, d. 1954, bóndi og bifreiðarstjóri á Bjargi á Sel- tjarnarnesi, og Helga Sigríður Runólfsdóttir húsfreyja, f. 1904, d. 1938. Seinni kona Ísaks var Jóhanna Björnsdóttir, f. 28.11. 1906, d. 7.8. 1981. Runólfur var yngstur í hópi fimm systkina. Hann átti fjórar systur: Björgu, f. 1928, Arnfríði, f. 1930, d. 2003, Sigrúnu, f. 1932, d. 1978, og Helgu Valgerði, f. 1934. Runólfur gekk í Landakots- skóla og í Melaskóla, þaðan fór hann í Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi í rafvirkjun árið 1959. Runólfur kvæntist 15.10. 1960 Valgerði Sigþóru Þórðardóttur, f. 10.9. 1941, d. 17.10. 2001. For- eldrar hennar voru Sigurveig Ásgrímsdóttir hús- móðir og Þórður Guðmundsson stýrimaður. Börn þeirra eru fjögur: 1) Sigurveig, f. 12.1. 1961, hár- greiðslumeistari, gift Jónasi Frið- geirssyni rafvirkja og eiga þau tvo syni og þrjú barnabörn. 2) Jóhanna sjúkra- liði, f. 28.8. 1962, gift Steinari Guðnasyni vélfræðingi og eiga þau tvo syni og þrjú barnabörn. 3) Helga Sigríður bókari, f. 2.9. 1963, gift Gunnlaugi Bjarnasyni bifreiðasmið og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. 4) Ísak Þórður bakari, f. 15.2. 1972, kvæntur Andreu Þóru Ás- geirsdóttur hárgreiðslusveini og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn, langafabörnin eru 13. Runólfur starfaði hjá Johan Rönning í nokkur ár, stofnaði síðan fyrirtækið Raftök ásamt mági sínum Pétri og starfaði við það í 13 ár. Hann starfaði hjá Seltjarnarnesbæ í um 30 ár eða til 67 ára aldurs. Útför Runólfs fór fram í kyrr- þey 16. apríl 2020. Runólfur H. Ísaksson, tengdafaðir minn, kvaddi núna 11. apríl síðastliðinn og langar mig að minnast hans með nokkr- um orðum. Ronný eins og hann var ávallt kallaður hafði ég þekkt í 45 ár og óneitanlega reikar hugurinn aftur í tímann, upp koma skemmtilegar og góðar minn- ingar frá liðnum árum. Sértaklega man ég þegar ég kom fyrst inn á heimili þeirra hjóna Ronnýs og Völu tengda- mömmu í sunnudagsmat, varð mér starsýnt á Ronný þegar hann var að krydda lambalærið svo mikið að óætt hélt ég að það yrði en þessa kryddmeðferð hef ég tileinkað mér æ síðan því svo gott var lærið. Einnig öll jólaboðin en þá var alltaf tekið í spil og spiluð ka- nasta, þar vorum við Ronný allt- af saman í liði og unnum oftast, hafði hann mikið gaman af því. Þegar Ronný og Vala keyptu sér stóran Bens erlendis frá hjálpaði ég honum við smíði og vinnu á honum, var það allt gert utandyra niðri á Bjargi fyrir ut- an gömlu Svínahúsin eins og þau voru kölluð, náðum við vel sam- an við þá vinnu, bíllinn fékk nafnið Sóli og ferðuðust þau hjónin á honum bæði innanlands og erlendis og höfðu gaman af. Tengdapabbi var greiðvikinn og alltaf tilbúinn að aðstoða ef hann gat og kann ég honum mínar bestu þakkir fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur Helgu. En minningin um góðan mann lifir með okkur. Hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Gunnlaugur Bjarnason. Runólfur H. Ísaksson Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RUNÓLFUR H. ÍSAKSSON rafvirki, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést laugardaginn 11. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks og íbúa á Skólabrautinni fyrir yndislegt viðmót og vinarþel. Kærleikskveðjur, Sigurveig Runólfsdóttir Jónas Friðgeirsson Jóhanna Runólfsdóttir Steinar Guðnason Helga Runólfsdóttir Gunnlaugur Bjarnason Ísak Runólfsson Andrea Ásgeirsdóttir börn og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KOLBRÚN SÆUNN STEINGRÍMSDÓTTIR læknaritari, áður til heimilis í Efstasundi 37, Reykjavík, lést sunnudaginn 19. apríl á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Í ljósi aðstæðna mun jarðarförin fara fram í kyrrþey mánudaginn 27. apríl. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Steingrímur Þorvaldsson Helga Sjöfn Guðjónsdóttir Guðrún Þorvaldsdóttir Guðmundur Eggert Finnsson Hólmfríður Þorvaldsdóttir Gunnar Sigurðsson Björn Þorvaldsson Þorbjörg Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, amma, langamma og tengdamóðir, GUÐBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, lést sunnudaginn 19. apríl. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey. Benedikt Eyjólfsson Margrét Beta Gunnarsdóttir Sesselja Auður Eyjólfsdóttir Jón Einar Eyjólfsson Herbjörg Alda Sigurðardóttir barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.