Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Staða skólastjóra Djúpavogsskóla er laus til umsóknar.
Djúpavogshreppur auglýsir starf skólastjóra Djúpavogsskóla. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem
býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða
skólann inn í framtíðina samkvæmt gildandi skólastefnu sveitarfélagsins.
Djúpavogsskóli er heildstæður sameinaður grunn- og tónskóli með ríflega 80 nemendur frá Djúpavogi og
aðliggjandi dreifbýli.
Í Djúpavogshreppi eru u.þ.b. 500 íbúar. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á heimasíðunni sveitarfélagsins:
djupivogur.is
Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ).
Næsti yfirmaður er sveitarstjóri.
Umsóknarfrestur er nú framlengdur til 10. maí nk. Umsóknum skal skila á netfangið sveitarstjori@djupivogur.is.
Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi
gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi.
Frekari upplýsingar má finna á: djupivogur.is, undir liðnum „Þjónusta.“
Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Sveitarstjóri gefur fúslega frekari upplýsingar í síma 470-8700 og
843-9889
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur áskilinn til að hætta við ráðningu og/ eða auglýsa
stöðuna að nýju.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í grunn-
og tónskóla til framtíðar í samræmi við skólastefnu
sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla, aðalnámskrá
tónlistarskóla og lög og reglugerðir um grunn- og
tónlistarskóla.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
• Hafa umsjón með daglegu starfi í lengdri viðveru sem er í
boði fyrir 1.-3. bekk frá 13:10 – 16:00.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Framhaldsmenntun
á sviði stjórnunar eða farsæl stjórnunarreynsla.
• Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og
áætlanagerð.
• Hæfni og reynsla í að leiða þróun skólastarfs.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum, jákvæðni og metnaður.
• Reynsla í fjármálastjórnun kostur.
Vinnslustöðin hf. Hafnargata 2 900 Vestmannaeyjar
488 8000 vsv@vsv.is www.vsv.is
Meginverkefni:
Aðstoða stjórnendur Vinnslustöðvarinnar og
Grupeixe við samþættingu vinnslu félaganna.
Eftirlit með gæðum fisks við veiðar, vinnslu í
Eyjum og áframvinnslu í Portúgal.
Umsjón með framlegðarútreikningum vinnslu
og vinnsluleiða í gegnum allan feril frá veiðum
til neytenda.
Áætlanagerð og eftirfylgni.
Umsjón með daglegum rekstri framleiðslu í
samstarfi við aðra stjórnendur félagsins.
Aðstoð og afleysingar við aðra fiskvinnslu í
fyrirtækinu.
Kröfur til umsækjenda:
Áhugi á vinnslu, veiðum og markaðssetningu
fisks.
Þekking á sjávarútvegi og markaðssetningu.
Háskólamenntun, menntun á sviði sjávarútvegs
og/eða mikil starfsreynsla sem nýtist í starfi
mikilvæg.
Góð tölvufærni og færni í framsetningu talna
og gagna.
Frumkvæði, áreiðanleiki og samskiptalipurð.
Starfið krefst vakandi áhuga, ósérhlífni og þess að stjórnandi vinni með starfsfólki félagsins
til sjávar, í landi og í Portúgal.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um.
Upplýsingar veitir: Lilja Björg Arngrímsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs
Vinnslustöðvarinnar. Umsóknir óskast sendar á lilja@vsv.is. Kynningarbréf ásamt ferilskrá þar sem
fram koma ítarlegar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf fylgi umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk.
Fjölskyldu- og barnamálasvið
Grunnskólar
!"#
$
%
%
&
'
( Leikskólar
) * +
(
$
Málefni fatlaðs fólks
$ ,
&
-""- +
-"".
!
HJÁ HAFNARFJARÐARBÆ
(/0 '12
585 5500
Sérfræðingur á sviði
líftækni eða lífverkfræði
BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd
óskar eftir að ráða sérfræðing á sviði líftækni,
lífverkfræði eða einstakling með sambærilega
menntun. Umsækjanda er ætlað að stunda
rannsóknir á einfrumungum með hagnýtingu í
huga. Einnig er viðkomandi ætlað að móta og
byggja upp frekari rannsóknir á þessu sviði.
Starfsstöð umsækjanda verður á Skagaströnd.
Hæfniskröfur:
• Meistara eða doktorspróf í fyrrgreindum
fræðigreinum.
• Reynsla af rekstri og uppsetningu
rannsóknaverkefna.
• Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um
menntun, starfsreynslu og meðmælendur
berist í pósti til BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545
Skagaströnd eða á netfangið halldor@biopol.is
Nánari upplýsingar Halldór G. Ólafsson
halldor@biopol.is framkvæmdastjóri í síma
452-2977 eða 896-7977
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100