Morgunblaðið - 23.04.2020, Qupperneq 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
þegar hún er spurð hvað til standi á
70 ára afmælisdaginn. „Ég hef ekki
farið út af landareigninni síðan í
mars, ekki niður í þorp eða neitt,
vegna þessarar veiru.“
Fjölskylda
Maður Hólmfríðar er Sigþór Þor-
grímsson bóndi, f. 18.10. 1946, d.
12.12. 2018, kjörforeldrar Sigríður
Stefánsdóttir húsmóðir, f. 1908, d.
1974, og Þorgrímur S. Einarsson, f.
5.5. 1909, d. 7.7. 1997, bóndi á Búa-
stöðum. Börn Hólmfríðar eru 1)
Anna Guðný Möller, f. 14.10. 1972,
heilsugæslustarfsmaður, faðir Hart-
mut Möller skipasmiður, f. 6.3. 1948,
d. 1.3. 1972, búsett í Hafnarfirði.
Maki Sveinn Markússon, börn Mark-
ús Búi, f. 12.8. 2007, og Hólmar
Hrafn, f. 12.2. 2010. 2) Sigmar Búi, f.
31.5. 1974, bóndi á Búastöðum, 3)
Sigríður, f. 30.11. 1976, rannsóknar-
lögreglumaður, sonur hennar er Jón
Sigþór Sveinbjörnsson, f. 19.11. 2008.
4) Margrét Lísa, f. 27.2. 1978, hús-
freyja í Kópavogi, börn Jökull Már,
17.9. 2001, d. 3.1.2002, Kristín Birta,
f. 3.3. 2003, Arna Rut, f. 27.6. 2005,
Hrafnhildur Rán, f. 30.5. 2007, Berg-
lind Hrönn, 2.1. 2012, maki Bjarki H.
Bragason bifvélavirkjameistari, f.
19.5. 1970.
Bróðir Hólmfríðar er Björn Helgi
Ófeigsson, f. 18.12. 1951, bóndi á
Reykjaborg í Skagafirði. Foreldrar
Hólmfríðar voru Lieselotte Heucke,
f. 2.12. 1918, d. 26.1. 1972, húsmóðir á
Reykjaborg í Skagafirði, og Ófeigur
Egill Helgason, f. 26.10. 1903, d. 13.7.
1985, bóndi á sama stað. Þau gengu í
hjónaband 6.8. 1949.
Úr frændgarði Hólmfríðar Ófeigsdóttur
Hólmfríður Ófeigsdóttir
Ófeigur Helgason
bóndi á Reykjaborg í Skagafirði
Helgi Björnsson
bóndi á Ánastöðum
María Einarsdóttir
húsmóðir á Grímsstöðum
Björn Jónsson
bóndi á Grímsstöðum
Hólmfríður
Helgadóttir
Regína
Magnúsdóttir
Magnús Jónsson
veðurfræðingur
Sigurjón
Helgason
Indriði
Sigurjónsson
Helga Rós
Indriðadóttir
óperusöngkona
Magnús
Sigurjónsson
Heiðdís Lilja
Magnúsdóttir
fjölmiðlakona
GuðnýGuðmundsdóttir
húsmóðir í Ásmúla
Sigurður Sigurðarson
bóndi í Ásmúla
Margrét Sigurðardóttir
húsmóðir á Ánastöðum
Bjarni Felixson
íþróttafréttamaður
Felix Pétursson bókari Sigríður Sigurðardóttir
Anna Gottsch
kokkur í Werben an der Elbe og víðar
Wilhelm Book
slátrari í Werben an der Elbe
Anna Frieda
húsmóðir í Lübeck
Wolfgang Heucke
fulltrúi í Lübeck
Albertina Lantzius
húsmóðir í Wismar
Kurt Heucke
kaupmaður í Wismar
Lieselotte Heucke
húsmóðir á Reykjaborg í Skagafirði
„TVO HAMBORGARA, EINN KAFFIBOLLA
OG FÖTU AF VATNI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að geta ekki hætt að
kyssast.
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN,
HVERS KONAR HUNDUR
ERTU?”
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
HOKKÍ-
AÐDÁANDI
HVERS VEGNA VILTU
TAKA GÁFNAPRÓF?
ÉG ER HRÆDDUR UM
AÐ VERA EKKI NÓGU
GÁFAÐUR TIL ÞESS AÐ
VINNA FYRIR HRÓLF!
ÉG VEIT EKKI MEÐ GÁFURNAR EN ÞÚ
FÆRÐ A+ FYRIR TRYGGLYNDI!
„VIÐ VERÐUM AÐ HALDA ÁFRAM SEINNA
– NIÐURHALIÐ ER OF HÆGT.”
Á Leirnum rifjar Ólafur Stef-ánsson upp og segir: „Þegar
Stephani G. var boðið til Íslands
1917 var gert vel við hann eins og
vænta mátti og átti m.a. að flytja
honum kvæði. Því máli var hreyft
við Matthías Jochumsson sem sat í
hárri elli á Akureyri og var einn
eftir af gamla þríeykinu. Matthías á
að hafa svarað erindinu heldur
stuttlega og sagt: „Hann getur ort
um sig sjálfur karlhrúturinn!“
Þessi anekdóta kom mér í hug
áðan þegar ég tók ómakið af skáld-
unum sem ég ljóðaði á og gerði vísu
um sjálfan mig eins og Matthías
stakk upp á með Stefán:“
Grænkar tekur gróðurvin
er gengur hann í sunnanátt,
svo Ólafs verður gúrkugin
gerjað fyrir seinni slátt.
Pétur Stefánsson skrifaði í Leir-
inn á þriðjudag: „Það er sólarlaust
og þungbúið þessa dagana, alla-
vega hér í borginni og sveitunum í
kring. Það á eftir að breytast“:
Senn við fáum sunnanátt
og sólargljá á móa.
Greinar trjáa bruma brátt
og blómin smáu gróa.
Árið 2015 kom út bókin „Fljót er
nóttin dag að deyfa“ eftir hinn góð-
kunna skagfirska hagyrðing Sigurð
Óskarsson í Krossanesi. Nafn
bókarinnar er fyrsta hendingin í
einni þekktustu vísu hans:
Fljót er nóttin dag að deyfa,
dimma færist yfir geim.
Undir Blesa skröltir skeifa,
skyldi hún ekki tolla heim?
Tvær af vísum Sigurðar eiga vel
við eins og nú árar:
Vetur styttist, veður skánar,
vaxa brátt hin grænu strá.
Nú er hann að hlýna og hlánar,
hlátur vaknar bændum hjá.
Stöðugt lífsins stríð ég heyi,
stöðu margur betri nær.
Það er að byrja að birta af degi
og betra veður en í gær.
Indriði Þorkelsson á Fjalli orti „á
mjög ungum aldri“:
Guð hinn blíði góða tíð
gaf um síðir lýði;
senn hin fríða fjallahlíð
fer að skrýðast víði.
Steingrímur Thorsteinsson orti
og kallaði „Öfund“:
Eggjaði skýin öfund svört,
upp rann morgunstjarna:
„Byrgið hana, hún er of björt
helvítið að tarna.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Karlhrúturinn
og skröltir skeifa