Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 62

Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is FÁST Í BYGGINGA- VÖRUVERSLUNUM Bestu undirstöðurnar fyrir SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA SÉRHÖNNUÐ TENGISTYKKI DVERGARNIR R NAGGUR H: 120 cm PURKUR H: 60 cm TEITUR H: 80 cm ÁLFUR H: 30 cm Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Skoðið nýju heimasíðuna islandshus.is ÖFLUGAR UNDIRSTÖÐUR Tónlistarkonan Sólveig Matthildur, ein liðskvenna Kælunnar Miklu, hefur sent frá sér smáskífu með forvitnilegum titli, „Politician … of Love“, og segir Sólveig að smáskíf- an sé sú fyrsta af mörgum sem muni enda með breiðskífu og jafn- framt fyrsta smáskífan sem hún sendir frá sér eftir að plata hennar Constantly in Love kom út. Segist Sólveig stefna að því að gefa út nýja smáskífu mánaðarlega þar til breiðskífan kemur út. „Politici- an … of Love“ kom þannig til að Sólveig var að spila með Kælunni Miklu í Berlín í nóvember árið 2018 og var hún klædd í rauða dragt. Að loknum tónleikum var hún að tala við vini sína Kinnat og Dean um ást- ina og sögðu þau að hún liti út eins og „politician of love“ eða pólitíkus ástarinnar. Kinnat er grafískur hönnuður og bað Sólveigu um að semja lag með þessum titli svo hún gæti hannað umslag fyrir smáskíf- una. Sólveig varð við því, samdi lag og gaf Kinnat í afmælisgjöf. „Vinur minn sagði að lagið væri eins og blanda af Depeche Mode og ABBA! Það er eiginlega alveg rétt. Ég er undir mjög miklum áhrifum af diskó og depurð og mjög glöð að það skíni í gegn,“ segir Sólveig um lagið. Vinkonur Sólveig og gyllt gína. Hönnuðurinn fékk lag í afmælisgjöf Leikarinn Víkingur Kristjánsson var beðinn um að mæla með lista- verkum sem njóta má í samkomu- banninu. Ekki stóð á svörum og flokkaði Víkingur verkin niður í lesefni, hlaðvörp og tónlist. „Lesefni: Ég var svo heppinn að eiga eftir fjór- leikinn hans Ein- ars Kárasonar, sem hann byggir á Sturlungu og hægt er að nálg- ast í einu bindi undir heitinu Óvinafagnaður. Ég hef verið að sökkva mér í þetta efni síðustu vikurnar. Þarna er dýpt og viska, mannvíg og ástir, heiður, sæmd og ásælni í auð og völd. Kemur lítið á óvart að ein- hverjir hafa sýnt því áhuga að gera leikna sjónvarpsseríu eða kvik- mynd byggt á þessum skrifum. Þetta gæti orðið svo gott á skján- um. Og Einar Kárason er nátt- úrlega einn af okkar allra bestu sagnamönnum, skáld sem á heima á stalli. Hlaðvarp: Það er svo mikil gróska í hlaðvarpsheimum, önnur hver manneskja með sinn eigin þátt og allt að verða vitlaust. Mig langar að mæla með Jon- athan Goldstein, en sá kappi hefur verið í þessum bransa í fjölda- mörg ár. Nýjasta afurð hans er þættirnir Heavyweight, þar sem fólk gerir með hans aðstoð upp at- burði úr fortíð sinni. Annars er líka gott að slá upp nafni Goldstein á hlaðvarpsleitarvélum og skoða eldra efni eftir hann. Hann er mjög skemmtilegur. Svo hef ég líka heyrt að íslenska hlaðvarpið Ólík- indatólið sé mjög frábært. Tónlist: Þau sem hafa af ein- hverjum ástæðum misst af tónlist- inni sem kom úr nýjustu seríu Hljómskálans, ættu að drífa sig á Spotify og finna hana þar. Afar áhugavert samstarf tónlistarfólks úr ólíkum áttum, sem skellti í lag fyrir Hljómskálann. Allt mjög gott, en mitt uppáhalds er óður Prins Póló og Súkkats til lasagna, og svo er samstarf Mugisons og GDNR í einu orði sagt himneskt.“ Mælt með í samkomubanni Himneskt Samstarf GDRN og Mugison í Hljómskálanum er Víkingi að skapi. Einar, Goldstein og Hljómskálinn Víkingur Kristjánsson Einar Kárason Frumsýningaráætlanir kvikmynda- framleiðenda hafa heldur betur raskast á tímum Covid-19-farsóttar- innar og nýjustu fréttir að vestan, frá Hollywood, eru þær að frumsýn- ingum á nokkrum kvikmynda stóru kvikmyndaveranna, m.a. Warner Bros., hafi verið frestað. Þeirra á meðal er The Batman, kvikmynd leikstjórans Matt Reeves um Leður- blökumanninn en til stóð að frum- sýna hana 25. júní á næsta ári en þess í stað verður hún frumsýnd 1. október. Reeves segir að um leið og hægt verður að halda áfram með myndina verði hún kláruð í London í stað þess að flytja tökulið á annan tökustað. Búið er að taka upp fjórð- ung myndarinnar. Keppinautar Warner Bros., kvik- myndaverin Paramount og 20th Century Studios, ætla að frumsýna á svipuðum tíma ónefndar kvikmyndir sem vonast er til að skili miklu í miðasölu. Ofurhetjumyndin The Flash verð- ur ekki frumsýnd fyrr en 3. júní 2022 og Shazam 2! verður frumsýnd 4. nóvember 2022 í stað 1. apríl sama ár. Þá boðar Disney frumsýningu að hausti 2022 á ónefndri, leikinni ævin- týramynd, að því er fram kemur í frétt á vef Deadline. Kvikmynd Baz Luhrmann um rokkkónginn Elvis Presley, sem Tom Hanks mun leika í, átti að frumsýna 1. október 2021 en hefur verið frestað um mánuð. Um svipað leyti mun Disney/Marvel frumsýna kvikmyndina Doctor Strange in the Multiverse of Madness og kvikmynd byggð á þáttunum Sopranos, The Many Saints of Newark, verður frumsýnd í mars á næsta ári í stað 25. september á þessu ári. Um svip- að leyti mun Disney frumsýna teiknimyndina Raya and the Last Dragon. Frumsýningu á nýjustu kvikmynd leikarans Will Smith, King Richard, hefur verið frestað um ár en hún átti að fara fram 25. nóvember á þessu ári en verður þess í stað haldin 21. nóvember 2021. Um svipað leyti verður kvikmynd Paramount, Dun- geons & Dragons, frumsýnd. Líkt og í fleiri listgreinum er allt í uppnámi hjá kvikmyndaframleið- endum sem þurfa að reiða sig á miðasölu í kvikmyndahúsum en ekki streymisveitur eða stafrænar kvik- myndaleigur. Má því búast við enn frekari fréttum af frumsýningar- frestunum á næstu dögum og vikum. Bið Enn ein kvikmynd um Leðurblökumanninn, The Batman, er væntanleg og að þessu sinni leikur Robert Pattinson hetjuna. Aðdáendur blökunnar þurfa að bíða fram til 1. október árið 2021 eftir því að sjá myndina. Biðin lengist eftir Leðurblökumanni  Kvikmyndafrumsýningum hefur frestað um allt að ár Tónlistarfólkið Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Sigurður Ingi Ein- arsson fléttar saman íslensk þjóð- lög og sígilda dægursmelli í upp- hafi sumars í streymi frá Hörpu í dag klukkan 11. Er það liður í lif- andi tónlistarstreymi sem Harpa, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ís- lenska óperan bjóða upp á klukkan 11 flesta morgna á meðan sam- komubann varir. Tónleikunum er streymt á RÚV2, Facebook-síðu Hörpu, Youtube-rás Hörpu og menningarvef RÚV. „Prógrammið bjuggum við upp- runalega til fyrir ferðamenn í Hörpu,“ segir Ingibjörg Fríða. „Þetta er í raun íslensk tónlistar- saga á hálftíma, frá tvísöng og þjóðlögum og yfir í list dagsins í dag. Við höfum verið að flytja þetta nokkrum sinnum í mánuði, fram að samkomubanni, en höfum nú lagað prógrammið að íslenskum áhorf- endum, með tilheyrandi spjalli milli laga. Við leikum á ýmis hljóðfæri og reynum að hafa gaman af þessu,“ segir hún. Tilbrigði við tónlistarsögu frá Hörpu Ljósmynd/GeiriX Tónlist Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi hafa síðustu misseri skemmt fólki í Hörpu. Kvikmyndaleikstjórinn David Lynch segist engan áhuga hafa á væntanlegri kvikmynd kollega síns Denis Villeneuve, Dune, en Lynch er leikstjóri samnefndrar kvikmyndar frá árinu 1984. Byggð- ist hún, líkt og mynd Villeneuve, á vísindaskáld- sögunni Dune eftir Frank Herbert og hlaut held- ur neikvæðar viðtökur gagnrýnenda. Skal engan undra að Lynch hafi lítinn áhuga á hinni væntan- legu kvikmynd þar sem hann var afar ósáttur við afskipti framleiðenda við gerð hennar og að hafa ekki fengið fullt listrænt frelsi við gerð hennar. Langar ekki að sjá Dune Nei, takk! David Lynch fékk nóg af Dune á sínum tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.