Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 64

Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Þótt mánudagar eigi að heita hvíld- ardagar á forseti yfirleitt ekki nema hluta úr deginum fyrir sjálfa sig. Hún þarf oft að nota þennan dag til þess að sinna skrifum af ýmsum toga og sjálf segist hún þurfa að loka sig af með reglulegu millibili. Einhverjar skörpustu andstæðurnar í starfinu eru annars vegar huglæg vinna sem þarf að fara fram í einrúmi með mik- illi einbeitingu, hins vegar að vera miðdepill athygli hvar sem hún fer. Skrifin eru henni enn jafn- þung og þau voru þegar hún tók við embættinu en margir aðrir þættir starfsins hafa komist upp í vana og eru því auðveldari en í upphafi. Hún segir að fyrstu fjögur árin hafi verið eins og samfellt próf. Það hafi kostað stöðuga vinnu að komast inn í alla þætti starfsins og hún hafi verið á nálum um að mis- stíga sig. Við skulum heyra hvað Vigdísi Finnbogadóttur finnst um þá ein- stöku lífsreynslu að hafa orðið fyrsti þjóðkjörni kvenforseti í heiminum. „Mikið af lífi mínu hefur verið eins og spennandi skáldsaga og mér finnst framtíðin vera það líka. Samt kvíði ég stundum fyrir því ókomna. Ég veit um ákveðnar stiklur og kvíði fyrir eða hlakka til að tylla á þær tánum. En það er aldrei hægt að vita nákvæm- lega hvernig fer og hvort maður verður votur í fætur af því að stíga á stikluna. Hitt er annað mál að ég hefði aldr- ei tekist á við þetta starf, að vera for- seti, og heldur ekki leikhússtjóri, ef ég væri þannig að ég setti mér fram- tíðina fyrir sjónir. Ég bíð bara þang- að til hún kemur. Það er mergurinn málsins. Þetta er eins og að lesa spennandi bók, af því ég er þannig að ég geri kröfur til lífsins, eins og ég geri kröfur til góðra bóka. Svo bíð ég með óþreyju eftir því hvað gerist á næstu blaðsíðu, með þetta munstur að baki; það sem þegar hefur gerst. Við getum notað þetta sem tákn fyrir árin. Nú veit ég hvað hefur gerst al- veg fram á blaðsíðu 58. En á blaðsíðu 57 vissi ég til dæmis ekkert hvað mundi gerast. Ég vissi ekki hvort fólkið í landinu vildi að ég héldi áfram í embætti. Ef mér hefðu fundist straumar liggja þannig, þá lá opið fyrir mér að velja hvort ég tæki þann kost að segja: Nú er við hæfi að ég hætti og að einhver annar taki við sem ég efast ekki um að muni vinna þessari þjóð til heilla. Það gerðist svo af sjálfu sér eins og margt annað í mínu lífi að ég ákvað að halda áfram þriðja kjörtímabilið. Ég beið átekta hvort það væri ein- hver andstaða við að ég héldi áfram. Ég leitaði í huga mínum, hvort ég hefði orku og hvernig lífsafstaðan væri. Ég get sagt þetta þannig: Ég sá því ekkert til fyrirstöðu að ég héldi áfram. Samt væri ég fullkomlega sátt við að einhver annar gegndi þessu starfi. Ég væri staurblind ef ég sæi ekki að ég hef verið þjóðinni til mikils gagns í þessari stöðu. Eða það væri misskilin hógværð af mér að viður- kenna það ekki. Það kemur sér vel fyrir Ísland að menn þekkja mig í út- löndum og þeir vita að hverju þeir ganga, ef forsetinn frá Íslandi kemur. Það er alltaf ákveðin stemmning yfir því. Enn þykir þetta nokkuð sérstakt úti í heimi að það skuli vera kona sem var kosin þjóðhöfðingi hér. Mér er líka treyst til þess að segja eitthvað sem hlustað er á. Ég segi oft frá þeirri niðurstöðu af fortíðinni sem íslenska þjóðin er. Menn velta því ekki svo mikið fyrir sér að þjóðirnar eru niðurstaða for- tíðarinnar; að það sem gerist núna er niðurstaða af því sem á undan er gengið. Ég sé iðulega hvernig hugs- unin kviknar hjá fólki þegar ég tala um þetta og að því þykir það ferskt og spennandi. Og hugir manna opnast fyrir því hvernig þessi litla þjóð getur staðið með sjálfstæða hugsun og sjálfstæðar skoðanir andspænis þjóðum sem eru kannski fimmtíu milljónir. Stórþjóðir eins og Frakkar eru ekkert að velta því fyrir sér hvað við Íslendingar er- um fáir, þegar ég tala við þá á jafn- réttisgrundvelli. Það skiptir ekki máli hve stór þjóðin er, ef hún hefur sjálf- stæða hugsun og getur komið henni til skila. En ég er löngu hætt að segja að íbúarnir hér séu 250 þúsund, held- ur segi ég kvartmilljón. Engum finnst sérstaklega til um það sem smátt er og enginn hefur áhuga á Íslendingum fyrir það hvað þeir eru fáir. Mér er mjög umhugað um ímynd Íslands út á við og ég vil að það sé gert meira til þess að upplýsa aðrar þjóðir um okkur. Mér finnst það vera hluti af minni vinnu að afsanna það að hér búi frumstæðir eyjarskeggjar, og sýna erlendum þjóðum fram á að Ís- lendingar eru háþróuð menningar- þjóð. Það er nefnilega svo að enginn skilur Ísland raunverulega fyrr en hann kemur hingað. Ég lít svo á að við höfum allt á Ís- landi: Mér dettur stundum í hug „míníatúrsafnið“ (smámyndasafnið) í Genf. Það voru kalvínistarnir sem gerðu þessar ótrúlega fíngerðu myndir. Þótt þær séu svona litlar, þá eru öll blæbrigði á þeim, eins og mér finnst líka vera í íslenska „míníatúr- þjóðfélaginu“. Hitt er svo annað mál að við höfum ekki að öllu leyti sama aga og sömu leikni, og þar af leiðandi ekki sama styrk og aðrar þjóðir, af því að við höfum verið svo stutt í borgaralegri menningu. Og eitt vantar okkur tilfinnanlega á Íslandi. Það er að skilgreina okkur sjálf og þjóðfélagið. Mér finnst Ís- lendingar ekki fara djúpt í að skilja hverjir þeir eru en slík skilgreining er nauðsynleg til þess að fólk átti sig. Það þarf til dæmis að fá svar við spurningunni um á hvaða mennt- unarstigi við erum miðað við aðrar þjóðir. Það er á þessu sviði sem ég hef mestar áhyggjur af Íslendingum. Ég er hrædd um að börnum og ung- lingum hér á landi sé ekki kennt frá blautu barnsbeini að gera kröfur til sjálfra sín í námi. Og ef litið er á það fé sem veitt er til menntamála hér á landi þá er alveg ljóst að Íslendingar standa höllum fæti miðað við þjóð- irnar sem þeir þurfa að bera sig sam- an við.“ Ein af uppáhaldsspurningum blaðamanna til Vigdísar forseta er sú hvernig sé að vera kona í forsetaemb- ætti. Hún hefur einhvern tímann svarað á þá leið að hún hafi aldrei verið karlmaður, svo hún geti því miður ekki sagt til um það. En hún er á því að það sé mjög augljós munur á afstöðu kynjanna til þess sem þau taka sér fyrir hendur: „Konur eiga ekki gott með að hella sér út í verkin og láta svo ráðast hvernig fer, eins og karlmenn eiga til að gera. Mér finnst ég oft verða vör við vanmetakennd hjá konum og þar er ég sjálf engin undantekning. Ég þarf að beita mig hörku til að slá á vanmetakenndina sem okkur kvenfólkinu er innrætt í uppeldinu. Mér finnst ég á ýmsan hátt hafa liðið fyrir það á ævinni að ég er kven- maður. Ég hef oft hugsað hvernig líf- ið hefði gengið fram ef ég hefði verið karlmaður. Auðvitað hefði ég haft þessa sömu orku en ég hefði nálgast viðfangsefni á allt, allt annan hátt. Eftir uppeldið hefði ég haft svipaða lífsskoðun og svipaðan metnað. Ég hefði sennilega orðið einhvers konar húmanisti. Samt hefði ég orðið mjög ólík því sem ég er, á þann hátt að ég hefði orðið miklu öruggari með mig. Það er satt að segja hvorki þekking né öryggi í framkomu sem bjargar mér, heldur það að á ákveðnum augnablikum hef ég einhvers konar útgeislun.“ Eins og spennandi skáldsaga Bókarkafli | Bókin Ein á forsetavakt eftir Stein- unni Sigurðardóttur kom fyrst út haustið 1988 og vakti mikla athygli, enda fengu landsmenn þar í fyrsta sinn innsýn í dagleg störf forsetans. Hún hefur nú verið gefin út að nýju lítillega endur- skoðuð og með nýjum formála og eftirmála höf- undar í tilefni af níræðisafmæli Vigdísar Finn- bogadóttur og því að 40 ár eru frá því að hún var kjörin forseti Íslands. Útgeislun Vigdís Finnbogadóttir hyllt á svölum heimilis síns eftir að hafa verið kjörin forseti Íslands, 1980. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞURR AUGU? Náttúruleg vörn gegn augnþurrki Trehalósi kemur á jafnvægi og verndar frumur hornhimnunnar Inniheldur trehalósa úr náttúrunni Hýalurónsýra smyr og gefur langvarandi raka Sérstaklega milt fyrir augun Án rotvarnarefna Tvöföld virkni- sex sinnumlengri ending Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslun Grandagarði og Glæsibæ, 5. hæð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.