Fréttablaðið - 26.08.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0
uppskera!
Ný íslensk
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
Þessir kylfingar notuðu veðurblíðu gærdagsins til að taka hring á golfvellinum sem staðsettur er í hinu glæsilega landslagi við Gróttuvitann á Seltjarnarnesi. Svo virðist sem teighöggin
hafi ekki gengið alveg sem skyldi hjá þeim þar sem draga má þá ályktun af myndinni að leit standi yfir að golf boltum þeirra sem lent hafi utan f latarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
VIÐSKIPTI Sala erlendra sjóðastýr-
ingarfyrirtækja á íslenskum ríkis-
skuldabréfum í síðustu viku knúði
fram umfangsmestu gjaldeyrissölu
Seðlabanka Íslands á einni viku frá
fjármálahruninu. Töluverð velta var
á gjaldeyrismarkaðinum í síðustu
viku, alls 19 milljarðar króna, eftir
að stjórnvöld tilkynntu um hertar
aðgerðir á landamærunum. Til þess
að sporna gegn veikingu krónunnar
seldi Seðlabankinn gjaldeyri fyrir
10,7 milljarða, sem nemur yfir einni
prósentu af gjaldeyrisforðanum.
BlueBay Asset Management, eitt
stærsta sérhæfða skuldabréfastýr-
ingarfyrirtæki Evrópu, var á meðal
þeirra sem seldu ríkisskuldabréf,
samkvæmt heimildum. Fyrirtækið
er þó enn með verulega stöðu í
íslenskum ríkisskuldabréfum.
Spurður hvernig fyrirtækið meti
stöðuna á Íslandi segir Mark Dowd-
ing, yfirfjárfestingastjóri BlueBay,
að undirstöður hagkerfisins séu
sterkar. „Traust hagstjórn hefur leitt
til þess að Ísland hefur burði til að
standa af sér COVID-krísuna betur
en mörg samanburðarríki,“ segir
Dowding. Horft til meðallangs tíma
verði Ísland áfram álitlegur áfanga-
staður fyrir fjármagn.
Seðlabankinn mun gera grein
fyrir vaxtaákvörðun peninga-
stefnunefndar í dag. Erna Björg
Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur
Arion banka, býst við að bankinn
muni einnig þurfa að gera grein
fyrir gjaldeyrisinngripunum.
„Miðað við hreyfingarnar undan-
farna daga þá veltir maður fyrir sér
hvort þetta sé stefnubreyting. Við
fyrstu sýn lítur út fyrir að bankinn
sé að sporna gegn frekari gengis-
veikingu vegna versnandi verð-
bólguhorfa. Krónan hefur gefið
eftir, húsnæðismarkaðurinn er
sterkur og verðbólgan hefur aukist
hraðar og umfram væntingar,“ segir
Erna Björg. Það sé á skjön við yfir-
lýst markmið um gjaldeyrisinngrip
til að koma í veg fyrir óhóf legar
sveiflur og spíralmyndun á markað-
inum. – hae / þfh / sjá Markaðinn
Mesta gjaldeyrissala frá hruni
Seðlabankinn seldi meira af gjaldeyri í síðustu viku en hann hefur gert á einni viku frá fjármálahruninu.
Skuldabréfasala erlendra sjóða knúði fram inngrip bankans. Ísland hafi burði til að standa af sér krísuna.
10,7
milljarðar króna var um-
fang gjaldeyrissölu Seðla-
bankans í síðustu viku.
VIÐSKIPTI Íslensk stjórnvöld settu
það sem skilyrði fyrir ríkisábyrgð á
16,5 milljarða lána línu til Icelandair
að gengið yrði sem lengst í að þynna
út eignarhlut núverandi hluthafa í
áformuðu útboði f lugfélagsins.
Til að koma til móts við þau sjón-
armið stjórnvalda var ákveðið að
fjárfestum myndi bjóðast áskriftar-
réttindi sem samsvari allt að fjórð-
ungi af hinum nýju útgefnu hlutum.
Sú ráðstöfun rýrir enn frekar virði
hlutafjár núverandi hluthafa.
Þá var einnig samþykkt að
útboðsgengið yrði aðeins ein króna
á hlut en það er nokkuð lægra gengi
en stjórnendur Icelandair höfðu
horft til að miða ætti við í útboðinu.
– hae / sjá Markaðinn
Hluthafarnir
yrðu þynntir
sem mest út