Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 35
Vítamín- og bætiefnalína Gula miðans inniheldur breiða línu bætiefna fyrir almenna vellíðan. Þau eru þróuð og valin sérstaklega með þarfir Íslendinga að leiðarljósi og sam- kvæmt evrópskum stöðlum um magn innihaldsefna og hámark leyfilegra dagskammta. Guli mið- inn býður upp á flestar vinsælustu tegundirnar af vítamínum og almennum bætiefnablöndum sem fólk þarf á að halda á lífsleiðinni. Lína Birgitta Sigurðardóttir er lærður einkaþjálfari, förðunar- fræðingur og stílisti. Hún starfar á samfélagsmiðlum og hannar auk þess æfingaföt fyrir fyrirtæki sitt, Define the Line Sport. Hún hefur tekið inn bætiefni frá Gula mið- anum í mörg ár og mælir hiklaust með þeim. „Ég er með járnskort og þarf að taka inn járntöflur. Ég tók áður inn aðra tegund en var alltaf illt í maganum. Ég tengdi það ekki við töflurnar fyrr en ég hætti að taka þær inn og lagaðist. Ég fór svo að taka inn járntöflur frá Gula miðanum og leið miklu betur,“ útskýrir Lína. „Það er algengt að fólk fái í mag- ann af járntöflum, þær eru mis- munandi samsettar og missterkar. Ég mæli 100% með járntöflum frá Gula miðanum og hef aldrei fengið magaverk af þeim. Það er líka C-vítamín í þeim sem gerir það að verkum að járnupptakan verður enn betri.“ Finnur fljótt mun ef vítamínin gleymast Lína segir að hún verði að taka inn járn, sink, B- og D-vítamín. „Ég er grænmetisæta og vil passa vel upp á vítamínin og steinefnin í líkamanum.“ Hún finnur fljótt mun á sér ef hún gleymir að taka vítamínin. „Þegar ég hef tekið pásu í smá tíma finn ég að líkaminn kallar á víta- mín. Ef ég gleymi til dæmis að taka járn, þá finn ég þessi algengu ein- kenni járnskorts eins og orkuleysi og svima. Ég mæli samt ekki með að fólk taki inn járntöflur nema að láta athuga með blóðprufu hvort líkamann vanti járn. Ofhleðsla á járni er ekki góð og hefur svipuð einkenni og járnskortur.“ Vegna magasjúkdóms passar Lína líka vel upp á að taka alltaf inn B-vítamín. „Ég tek líka inn B-vítamín fyrir hár og neglur og D- vítamín yfir veturinn af því að þá fáum við svo litla sól. D-vítamín er nauðsynlegt fyrir beinin, ónæmis- kerfið og heilann. Þá er talað um að D-vítamín hjálpi gegn skamm- degisþunglyndi,“ útskýrir Lína. „Ég kaupi alltaf vítamín frá Gula miðanum af því ég þekki þau. Mamma notaði þau alltaf og þau Lína Birgitta passar vel upp á að líkaminn fái þau bætiefni sem hann þarf. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Það er mun einfaldara að ná kjúklingabringunum mjúkum og safaríkum ef þær eru útflattar og í jafnri þykkt. Það er hreinlegra að nota plast eða annars konar filmu á milli hamars og kjöts en ekki nauðsynlegt. Ekki örvænta, kæri matgæðing-ur. Það er enn möguleiki á því að þú getir notið safaríkrar og vel kryddaðrar kjúklingabringu án hjálpar sérstaks hægsuðusprota. Helsta ástæða þess að fólk á það til að ofelda bringurnar er vegna þess hvernig hún er í laginu. Mjó í annan endann og þykk í hinn. Til þess að tryggja jafna eldun er nauðsynlegt að verka bringuna á þann veg að hún sé jafnþykk alls staðar. Undraaðferð Til er aðferð við að matreiða kjúkl- ing sem nefnist fiðrildaaðferð. Þá leggurðu kjúklingabringuna á skurðborð, með skurðinn niður og sléttu hliðina upp. Næst leggurðu vinstri lófann ofan á bringuna, sértu rétthent/ur, tekur beittan matreiðsluhníf og lætur eggina nema við hægri hliðina á kjúkl- ingnum, mitt á milli brettis og lófa. Því næst skerðu bringuna varlega í sundur þannig að hún flettist í tvo vængi líkt og hjarta eða fiðrildi. Þitt er valið hvort þú skerð alla leið í gegn eða leyfir henni að halda hjartalaginu. Gakktu lengra Þeir sem vilja ganga enn lengra í að jafna þykkt kjötsins geta nælt sér í plastpoka, undir plastfilmu eða bökunarpappír og svo kjöthamar, nærliggjandi vínflösku, kökukefli eða annað barefli. Þá er filman eða pappírinn lagður ofan á bringu- þynnuna og slétt úr. Þá er bareflið notað til þess að fletja bringuna enn meira út. Passaðu bara að lemja ekki svo fast að þú gerir göt í bringuna. Flöt kjúklingabringan er nú í fullkomnu ástandi til þess að taka við hvaða kryddblöndu eða maríneringu sem matgæðingi þóknast. Einfaldast er að setja bringuþynnurnar í plastpoka eða skál með til dæmis salti, kryddum og olíu og leyfa kjötinu að baðast í um það bil tuttugu mínútur. Þá er bringunni skellt á heita pönnu eða beint á grillið og steikt í um 2–3 mínútur á hvorri hlið, eða þangað til bringan nær hitastiginu 75 °C. Ef þú átt ekki kjöthitamæli getur þú fundið hvort kjötið sé eldað í gegn með því að pota aðeins í þykkasta partinn á bringunni. Kjötið á ekki að gefa mikið eftir. Einnig er hægt að fullvissa sig um eldun með því að taka tvo gaffla og toga kjötþræðina í sundur þar sem þykkasti parturinn er og sjá einfaldlega hvort bringan sé hrá að innan eða ekki. Safaríkar kjúklingabringur í öll mál Ertu orðin/n þreytt/ur á því að þræla ofan í þig þurrum og bragðlausum kjúklingabringum með linu gufusoðnu spergilkáli til þess að halda mittismálinu í ákveðinni tölu? Taktu þá upp bareflið! Passaðu bara að lemja ekki svo fast að þú gerir göt í bring- una. Ólst upp við vítamínin og bætiefnin frá Gula miðanum Guli miðinn er breið lína bætiefna sem hefur verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 25 ár og er því flestum landsmönnum kunn. Línan er þróuð með þarfir Íslendinga að leiðarljósi. Áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir hefur lengi tekið inn vítamín frá Gula miðanum með góðum árangri. voru alltaf til heima þegar ég var yngri. Þau hafa reynst mér vel.“ Mjög háir gæðastaðlar Vítamín í Gula miðanum eru þróuð og framleidd í samstarfi við hágæða framleiðendur í Banda- ríkjunum og Bretlandi sem Heilsa hefur starfað með í rúma þrjá áratugi. Um er að ræða framleið- endur með mjög háa gæðastaðla og sem starfa samkvæmt ströngustu öryggis- og gæðakröfum. Framleiðendur eru með GMP- gæðavottunarkerfi og hafa á að skipa fullkomnum rannsóknar- stofum til að þróa og prófa hráefni. Rannsóknir á virkni og hreinleika efnanna fara bæði fram á þeirra eigin rannsóknarstofum auk þess sem óháðir aðilar eru fengnir til að staðfesta virkni og hreinleika efnanna. Allar umbúðir Gula miðans eru endurvinnanlegar. Vörunum er pakkað í dökk glerglös til að varð- veita gæði innihaldsefna sem best og verja þau gegn birtu og sólar- ljósi sem og mengun frá plastum- búðum. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.