Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 35
Vítamín- og bætiefnalína Gula miðans inniheldur breiða línu bætiefna fyrir
almenna vellíðan. Þau eru þróuð
og valin sérstaklega með þarfir
Íslendinga að leiðarljósi og sam-
kvæmt evrópskum stöðlum um
magn innihaldsefna og hámark
leyfilegra dagskammta. Guli mið-
inn býður upp á flestar vinsælustu
tegundirnar af vítamínum og
almennum bætiefnablöndum sem
fólk þarf á að halda á lífsleiðinni.
Lína Birgitta Sigurðardóttir er
lærður einkaþjálfari, förðunar-
fræðingur og stílisti. Hún starfar á
samfélagsmiðlum og hannar auk
þess æfingaföt fyrir fyrirtæki sitt,
Define the Line Sport. Hún hefur
tekið inn bætiefni frá Gula mið-
anum í mörg ár og mælir hiklaust
með þeim.
„Ég er með járnskort og þarf að
taka inn járntöflur. Ég tók áður
inn aðra tegund en var alltaf illt
í maganum. Ég tengdi það ekki
við töflurnar fyrr en ég hætti að
taka þær inn og lagaðist. Ég fór
svo að taka inn járntöflur frá Gula
miðanum og leið miklu betur,“
útskýrir Lína.
„Það er algengt að fólk fái í mag-
ann af járntöflum, þær eru mis-
munandi samsettar og missterkar.
Ég mæli 100% með járntöflum frá
Gula miðanum og hef aldrei fengið
magaverk af þeim. Það er líka
C-vítamín í þeim sem gerir það að
verkum að járnupptakan verður
enn betri.“
Finnur fljótt mun ef
vítamínin gleymast
Lína segir að hún verði að taka inn
járn, sink, B- og D-vítamín. „Ég
er grænmetisæta og vil passa vel
upp á vítamínin og steinefnin í
líkamanum.“
Hún finnur fljótt mun á sér ef
hún gleymir að taka vítamínin.
„Þegar ég hef tekið pásu í smá tíma
finn ég að líkaminn kallar á víta-
mín. Ef ég gleymi til dæmis að taka
járn, þá finn ég þessi algengu ein-
kenni járnskorts eins og orkuleysi
og svima. Ég mæli samt ekki með
að fólk taki inn járntöflur nema að
láta athuga með blóðprufu hvort
líkamann vanti járn. Ofhleðsla á
járni er ekki góð og hefur svipuð
einkenni og járnskortur.“
Vegna magasjúkdóms passar
Lína líka vel upp á að taka alltaf
inn B-vítamín. „Ég tek líka inn
B-vítamín fyrir hár og neglur og D-
vítamín yfir veturinn af því að þá
fáum við svo litla sól. D-vítamín er
nauðsynlegt fyrir beinin, ónæmis-
kerfið og heilann. Þá er talað um
að D-vítamín hjálpi gegn skamm-
degisþunglyndi,“ útskýrir Lína.
„Ég kaupi alltaf vítamín frá Gula
miðanum af því ég þekki þau.
Mamma notaði þau alltaf og þau
Lína Birgitta
passar vel upp
á að líkaminn
fái þau bætiefni
sem hann þarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Það er mun einfaldara að ná kjúklingabringunum mjúkum og safaríkum ef þær eru útflattar og í jafnri þykkt.
Það er hreinlegra að nota plast eða
annars konar filmu á milli hamars
og kjöts en ekki nauðsynlegt.
Ekki örvænta, kæri matgæðing-ur. Það er enn möguleiki á því að þú getir notið safaríkrar og
vel kryddaðrar kjúklingabringu án
hjálpar sérstaks hægsuðusprota.
Helsta ástæða þess að fólk á það
til að ofelda bringurnar er vegna
þess hvernig hún er í laginu. Mjó
í annan endann og þykk í hinn.
Til þess að tryggja jafna eldun er
nauðsynlegt að verka bringuna á
þann veg að hún sé jafnþykk alls
staðar.
Undraaðferð
Til er aðferð við að matreiða kjúkl-
ing sem nefnist fiðrildaaðferð. Þá
leggurðu kjúklingabringuna á
skurðborð, með skurðinn niður og
sléttu hliðina upp. Næst leggurðu
vinstri lófann ofan á bringuna,
sértu rétthent/ur, tekur beittan
matreiðsluhníf og lætur eggina
nema við hægri hliðina á kjúkl-
ingnum, mitt á milli brettis og lófa.
Því næst skerðu bringuna varlega í
sundur þannig að hún flettist í tvo
vængi líkt og hjarta eða fiðrildi.
Þitt er valið hvort þú skerð alla leið
í gegn eða leyfir henni að halda
hjartalaginu.
Gakktu lengra
Þeir sem vilja ganga enn lengra í að
jafna þykkt kjötsins geta nælt sér
í plastpoka, undir plastfilmu eða
bökunarpappír og svo kjöthamar,
nærliggjandi vínflösku, kökukefli
eða annað barefli. Þá er filman eða
pappírinn lagður ofan á bringu-
þynnuna og slétt úr. Þá er bareflið
notað til þess að fletja bringuna
enn meira út. Passaðu bara að
lemja ekki svo fast að þú gerir göt í
bringuna.
Flöt kjúklingabringan er nú
í fullkomnu ástandi til þess að
taka við hvaða kryddblöndu eða
maríneringu sem matgæðingi
þóknast. Einfaldast er að setja
bringuþynnurnar í plastpoka eða
skál með til dæmis salti, kryddum
og olíu og leyfa kjötinu að baðast í
um það bil tuttugu mínútur. Þá er
bringunni skellt á heita pönnu eða
beint á grillið og steikt í um 2–3
mínútur á hvorri hlið, eða þangað
til bringan nær hitastiginu 75 °C.
Ef þú átt ekki kjöthitamæli getur
þú fundið hvort kjötið sé eldað
í gegn með því að pota aðeins í
þykkasta partinn á bringunni.
Kjötið á ekki að gefa mikið eftir.
Einnig er hægt að fullvissa sig um
eldun með því að taka tvo gaffla
og toga kjötþræðina í sundur þar
sem þykkasti parturinn er og sjá
einfaldlega hvort bringan sé hrá að
innan eða ekki.
Safaríkar kjúklingabringur í öll mál
Ertu orðin/n þreytt/ur á því að þræla ofan í þig þurrum og bragðlausum kjúklingabringum með
linu gufusoðnu spergilkáli til þess að halda mittismálinu í ákveðinni tölu? Taktu þá upp bareflið!
Passaðu bara að
lemja ekki svo fast
að þú gerir göt í bring-
una.
Ólst upp við vítamínin og
bætiefnin frá Gula miðanum
Guli miðinn er breið lína bætiefna sem hefur verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 25 ár og er því
flestum landsmönnum kunn. Línan er þróuð með þarfir Íslendinga að leiðarljósi. Áhrifavaldurinn
Lína Birgitta Sigurðardóttir hefur lengi tekið inn vítamín frá Gula miðanum með góðum árangri.
voru alltaf til heima þegar ég var
yngri. Þau hafa reynst mér vel.“
Mjög háir gæðastaðlar
Vítamín í Gula miðanum eru
þróuð og framleidd í samstarfi við
hágæða framleiðendur í Banda-
ríkjunum og Bretlandi sem Heilsa
hefur starfað með í rúma þrjá
áratugi. Um er að ræða framleið-
endur með mjög háa gæðastaðla og
sem starfa samkvæmt ströngustu
öryggis- og gæðakröfum.
Framleiðendur eru með GMP-
gæðavottunarkerfi og hafa á að
skipa fullkomnum rannsóknar-
stofum til að þróa og prófa hráefni.
Rannsóknir á virkni og hreinleika
efnanna fara bæði fram á þeirra
eigin rannsóknarstofum auk þess
sem óháðir aðilar eru fengnir til
að staðfesta virkni og hreinleika
efnanna.
Allar umbúðir Gula miðans eru
endurvinnanlegar. Vörunum er
pakkað í dökk glerglös til að varð-
veita gæði innihaldsefna sem best
og verja þau gegn birtu og sólar-
ljósi sem og mengun frá plastum-
búðum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0