Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 34
Það er mannlegt að ef þú átt rétt á bótum í langan tíma að það þurfi að vera hvati til að stíga skrefið inn á vinnumarkaðinn. Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra  19.08.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 26. ágúst 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Skráðu þig á póstlistann og fáðu Fréttablaðið sent rafrænt á hverjum morgni Skráðu þig á frettabladid.is, á Facebook síðu Fréttablaðsins eða skannaðu QR kóðann – Mest lesna dagblað landsins Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir setti fram athyglisverða nálgun í efna- hagsmálum á dögunum. Hinum mjög svo íþyngjandi úrræðum sem gripið hefur verið til á landamær- um Íslands, sem fela í sér fimm daga sóttkví fyrir alla sem koma til landsins, var þannig lýst sem aðgerðum til að vernda „innan- landshagkerfið“. Má því skilja þetta sem svo að þær tugþúsundir sem hafa viðurværi sitt af því að þjónusta erlent fólk sem kemur til landsins tilheyri ekki innanlandshag- kerfinu? Nánast öll efnahagsum- svif á Íslandi eru háð alþjóðavið- skiptum. Tilheyrir sjávarútvegur innlenda eða erlenda hagkerfinu? Hvað með Marel og CCP? Skipting íslenska hagkerfisins í innlendan og erlendan hluta er hugsun sem heldur ekki vatni. Þessi ákvörðun er síðan tekin á grundvelli hagræns mats sem unnið var á nokkrum dögum. Meðal niðurstaðna þess mats var að hagræn rök hnigi að því að herða aðgerðir á landamærum. Meðal annars vegna þess hefur kortavelta Íslendinga erlendis dregist mjög saman, sem gæti vegið upp á móti hvarfi gjaldeyris- innflæðis frá ferðamönnum. Á síðasta ári skildu ferðamenn eftir yfir jafnvirði 330 milljarða af erlendum gjaldeyri á Íslandi. Það er sannarlega skarð fyrir skildi að missa þessar tekjur og veltu út úr hagkerfinu. Ísland er mjög háð innflutningi, sem er vitanlega allur fjármagnaður með erlendum gjaldeyri. Litlu skiptir þótt Íslendingar straui kortin meira innanlands en erlendis, en þetta er kallað „tilf lutningur neyslu“ í hag- rænu greiningunni. Innflutningur á neysluvörum var yfir 100 milljarðar á síðasta ári og verðmæti innfluttra flutninga- tækja var ámóta mikið. Mat- vælainnflutningur var um 71 milljarður á síðasta ári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það breytir engu hvort Íslendingar kaupi sér nýjar gallabuxur á Oxford Street eða í Kringlunni – í báðum til- fellum þarf á einhverjum tíma- punkti þeirra viðskipta að reiða fram erlendan gjaldeyri. Enda þarf ekki að líta lengra en til vendinga á gjaldeyrismarkaði síðan ákvörðunin um fimm daga sóttkví fyrir alla komufarþega var kynnt. Krónan hefur ekki veikst um nema eitt prósent. En það er bara vegna þess að Seðlabanki Íslands hefur notað vel á annan tug milljarða króna síðan þá til að styðja við gengið. Erlendir aðilar með fjárfestingar á Íslandi eru nú margir hverjir að selja sínar eignir, enda blasir það við að annaðhvort þarf Seðlabankinn að ganga verulega á gjaldeyrisforða sinn eða leyfa krónunni að falla samfara minnkandi gjaldeyrisinn- flæði. Hvort tveggja rýrir lífskjör á Íslandi. Innanlands- hagkerfið Þórður Gunnarsson SKOÐUN Isavia hefur mótað tillögur að beinum og skilyrtum markaðsstuðningi til f lug-félaga sem ætlað er að hvetja þau til þess að hefja flug til og frá Íslandi. Þetta kemur fram í svari Isavia við fyrirspurn Markaðarins. „Það er fyrirhugað að Isavia muni bjóða upp á beinan, en skilyrtan, markaðsstuðning til f lugfélaganna sem f ljúga til og frá Íslandi þegar COVID-faraldurinn fer að lægja.“ Markmiðið sé að auðvelda f lugfélögum að taka ákvörðun að hefja f lug, eða auka við f lug, til og frá Íslandi svo að eftirspurn vaxi hraðar en ella. Tillögurnar voru samþykktar af stjórn með þeim fyrirvara að ekki verði greitt til félaga fyrr en ljóst er hvenær skimunarverkefnið í f lugstöðinni hættir og engar slíkar takmarkanir verði til staðar. Flugfélög þurfa að sýna með skýrum hætti hvernig þau nýta markaðsstuðninginn til að aug- lýsa Ísland. Þá verði þau að skila af sér því fram- boði sem lá til grundvallar úthlutuninni. – þfh Styðja flugfélög með beinum hætti Sveinbjörn Indriða- son, forstjóri Isavia

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.