Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 2
Þegar námsbók í
hefðbundnu formi
er farin að kosta vel yfir 15
þúsund krónur leita náms-
menn einfaldlega annarra
leiða.
Sigurður Pálsson, verkefnastjóri hjá
Heimkaupum
Veður
Hægviðri eða hafgola. Bjart með
köflum í dag, en sums staðar þoku-
bakkar við sjávarsíðuna og stöku
síðdegisskúrir um austanvert
landið.
SJÁ SÍÐU 16
- síðan 1986 -
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
Sími: 568 67 55
alfaborg.is
SAMFÉLAG Óttarr Proppé, versl-
unarstjóri Bóksölu stúdenta, segir
bóksölu fara nokkuð vel af stað nú
í upphafi annar en nám í háskólum
landsins er að hefjast um þessar
mundir þrátt fyrir fjölda- og fjar-
lægðartakmarkanir vegna kórón-
aveirufaraldursins.
„Við finnum samt breytingu á
því að nemendur eru minna í húsi
en í venjulegu ári. Nemendur skila
sér á öðrum tímum en venjulega og
vefverslun á boksala.is er sennilega
þreföld miðað við fyrri ár,“ segir
Óttarr.
Í háskólum landsins er skólastarf
heimilt svo lengi sem hægt sé að
tryggja að nemendur og starfsfólk
geti haft einn metra á milli sín og
skylda er að nota grímur sé ekki
hægt að framfylgja þeirri reglu, til
að mynda við verklega kennslu.
Þá skulu sameiginlegir snertif letir
sótthreinsaðir minnst einu sinni á
dag og huga skal vel að einstaklings-
sóttvörnum.
Sigurður Pálsson, verkefnastjóri
hjá Heimkaupum, segir faraldurinn
hafa haft áhrif á sölu námsbóka hjá
fyrirtækinu og að tala megi um
sprengingu í sölu raf bóka. Þá segir
hann raf bókavæðingu vera að eiga
sér stað í háskólum.
„Það er einfaldlega það sem er að
gerast núna,“ segir hann og bætir
við að um sex þúsund titlar raf-
rænna námsbóka séu í boði og að
einnig sé hægt að leigja bækurnar
til styttri tíma.
„Þegar námsbók í hefðbundnu
formi er farin að kosta vel yfir 15
þúsund krónur leita námsmenn
einfaldlega annarra leiða og margir
sleppa því jafnvel að kaupa bókina
sökum mikils kostnaðar. Hjá Heim-
kaup geta námsmenn fundið sömu
bók í raf bókarformi á mun lægra
verði ásamt því að unnt er að lækka
kostnaðinn enn frekar með því að
leigja bókina yfir skemmri tíma,“
segir Sigurður.
Þá séu nemendur einnig með-
vitaðri um umhverfið og kjósi því
raf bækur umfram þær prentuðu,
ásamt því að tæknilegir möguleikar
við lestur raf bóka séu fjölmargir.
Óttarr segist upplifa það að nem-
endur séu opnari fyrir því að nýta
rafbækur í námi sínu og að þróunin
sé í takt við það sem þekkist í lönd-
unum í kringum okkur. „Við sjáum
hægt og sígandi aukningu en þó eru
raf bækur enn þá aðeins lítill hluti
af seldum bókum. Flestir nemendur
virðast kjósa bækur á prentuðu
formi og enn þá er mesta úrvalið af
fáanlegum útgáfum á pappír,“ segir
hann.
Óttarr segir enn fleiri nemendur
og kennara opna fyrir þeirri tækni
sem felst í notkun raf bóka við
kennslu. „Það er mikil aukning í því
að stórar námsbækur á háskólastigi
séu tengdar gagnabönkum með við-
bótarupplýsingum, æfingaprófum
og þvíumlíku,“ segir hann.
„Við sjáum að f leiri kennarar og
nemendur eru að nýta sér slíkt. Þá
er gjarnan boðið upp á hvort sem er
pappírs- eða rafræna útgáfu af bók-
inni auk aðgangs að sérstöku gagna-
svæði.“ birnadrofn@frettabladid.is
Rafbækur að verða
vinsælli í háskólum
Nám í háskólum er að hefjast þrátt fyrir fjölda- og fjarlægðartakmarkanir.
Sala á námsbókum fer vel af stað og vinsældir rafbóka aukast við nám í há-
skólum. Verkefnastjóri hjá Heimkaupum segir sprengingu í sölu slíkra bóka.
Óttarr Proppé segir vinsældir rafbóka vera að aukast. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Franska snekkjan séð frá Frakkastíg
Lúxussnekkjan Le Bellot séð frá Frakkastígnum. Snekkjunni er siglt í kringum landið en að ferðunum standa GB ferðir og franska skipafélagið
Ponant. Le Bellot tekur 184 farþega og 112 áhafnarmeðlimi en vikudvöl um borð kostar um það bil 650 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
REYK JAVÍK Enn er óráðið í 76
grunnstöðugildi í 63 leikskólum
borgarinnar og um fjörutíu stöðu-
gildi í 36 grunnskólum. Helgi
Grímsson, sviðsstjóri Skóla- og frí-
stundasviðs, segir stöðu ráðninga
á leikskólum vonbrigði.
„Við héldum að það myndi ganga
betur að ráða inn í leikskólana
miðað við atvinnuástandið,“ segir
Helgi og bætir við að staðan sé ólík
á milli skóla. „Sumir leikskólanna
eru fullmannaðir á meðan aðrir eru
í töluverðum vandræðum.“
Þá segir hann að ráðist verði í
auglýsingar og kynningar til að
fylla í laus stöðugildi. „Þetta er
staða sem við höfum þekkt árum
saman en við vorum einlæglega að
vona að þetta myndi ganga betur
núna. Ef við náum ekki að ráða inn
í tiltekna leikskóla getur það hægt
á innritun í þá skóla, því miður,“
segir Helgi.
Þá segir hann að betur haf i
gengið að ráða í störf á frístunda-
heimilum og sértækum félags-
miðstöðvum í ár en í fyrra. Búið
er að ráða í 80 prósent stöðugilda
miðað við 78 prósent á sama tíma í
fyrra. „Unga fólkið er margt enn að
bíða eftir stundatöf lum úr háskól-
unum en það gengur gríðarlega
vel að manna og það hrúgast inn
umsóknir,“ segir Helgi.
Hann segir að enn streymi inn
beiðnir um veru á frístundaheim-
ilum borgarinnar svo ekki sé ljóst
hversu mörg stöðugildi þurfi að
fylla. „Við erum bjartsýn í frístund-
inni og gerum ráð fyrir því að við
náum að manna að langmestu eða
fullu leyti á leikskólunum þó að
það geti orðið einhver töf á.“ – bdj
Illa gengur að
manna leikskóla
Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs
Reykjavíkur-
borgar
FLUG Rekstrarkostnaður Airbus
H225 þyrlu eins og Landhelgis-
gæslan notar er tæpar 500 þúsund
krónur á hverja f lugstund sam-
kvæmt reiknivélinni ACC. Þá er
ótalin þyrluleigan en nýir samn-
ingar árið 2019 hljóðuðu upp á 340
þúsund krónur á f lugstund.
Þyrluferðir dómsmálaráðherra
með Landhelgisgæslunni hafa verið
gagnrýndar sem bruðl en Georg
Lárusson, forstjóri, hefur sagt engan
aukakostnað fylgja. Erfitt hefur
reynst að fá tölur um hvað ferð-
irnar kostuðu. Miðað við skýrslu
ráðuneytisins frá árinu 2016 um
þyrlukaup var heildarkostnaður-
inn við flotann árið 2014 tæpur 1,7
milljarður og flugtímarnir 830. Eða
rúmlega 2 milljónir króna á hverja
flugstund. – khg
Þyrluflugið dýrt
Nýir leigusamningar
árið 2019 hljóðuðu upp á
340 þúsund krónur á
flugstund.
2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð