Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 9
Það má með sanni segja að umhverfi blómaverslana sé undarlegt. Hvorki innlendir birgjar né ríkisvaldið virðist hafa áhuga á að þær séu starfandi. Sennilegast eru fáir sem heim-sækja blómaverslanir daglega en þeim virðist þó hafa fjölgað sem kaupa blóm og plöntur í því skyni að fegra heimilið eða gleðja aðra. Ég leyfi mér að halda því fram að minningar manna um ferðir í blómaverslanir snúi fyrst og fremst að ferðum í litlar og huggulegar blómaverslanir sem eru reknar af fólki sem er annt um blóm og plöntur og hefur mikla þekkingu á hvernig ber að setja þær fram og annast þær. Flestar blómaversl- anir eru litlar, oft einstaklings- eða fjölskyldufyrirtæki. Blóm gleðja og starfsfólk blómaverslana eyðir starfsorkunni í að gera einmitt það að verkum, að við gleðjumst. Grunnrekstur blómaverslunar er ekki margbrotinn. Viðskiptavinir sækja þangað blóm og plöntur og e.t.v. gjafavörur og tækifæriskort. Það er tilvistarforsenda blómaversl- ana að meginsöluvörurnar séu til staðar. Söluvörurnar eru í eðli sínu ferskvörur og eðlilega hafa blóma- verslanir sóst eftir því að bjóða upp á vörur sem eru framleiddar á Íslandi. Hvaðan koma blómin og plönturnar? Eitt sinn gátu blómaverslanir keypt vörur beint frá bónda en það er ekki lengur hægt. Vilji blómaverslanir hafa íslenskar vörur á boðstólum þurfa þær að kaupa þær í tveimur blómaheildverslunum. Hjá þeim mæta blómaverslanir oft afgangi. Fyrir stóra viðskiptadaga eins og konudaginn hefur þeim jafnvel aðeins staðið til boða fyrirfram- ákveðinn og mjög smár skammtur af söluvörum. Auðvitað gerist það reglulega í viðskiptum að viðskiptavilji dvínar og við því bregðast menn oft með því að beina viðskiptunum annað. Vegna stöðunnar geta blómaversl- anir aðeins snúið sér til erlendra birgja. En í innflutningnum er enn eina hindrunina að finna, þau blóm og plöntur sem blómaverslanir þurfa á að halda bera afar háa skatta. Hlutur ríkisins í gleðinni Ég held að fæstir geri sér grein fyrir því að þegar þeir kaupa eina rós í blómaverslun þá hefur verslunin e.t.v. þegar greitt nálega 150 kr. í tolla og virðisaukaskatt af blómi sem kostaði 80 kr. í innkaupum. Enn ýktari dæmi mætti taka, sum blóm kosta 25 kr. í innkaupum en hið opinbera hefur fengið nálega 130 kr. þegar varan er boðin til sölu. Svona hefur þetta að megin- stefnu verið í tuttugu og fimm ár hið minnsta. Ríkisvaldið ákvað að innlendir blóma- og plöntufram- leiðendur skyldu njóta verndar fyrir samkeppni erlendis frá. Verndin er í formi svo hárra tolla að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi. Á þessum tíma hefur hins vegar margt breyst. Neytendur vilja allt önnur blóm og plöntur, innlendum framleiðendum hefur fækkað veru- lega, blómaverslunum hefur fækkað, aðrar verslanir en blómaverslanir eru með blóm á boðstólum, blóma- verslanir geta ekki lengur keypt beint af bónda og heildsölurnar ráða ferðinni. Tvær kylfur og engin gulrót Ekki hafa orðið teljandi breytingar á tollum af blómum og plöntum. Þegar gerðir hafa verið fríverslunar- samningar virðist þess jafnan hafa verið gætt að blómaverslanir og við- skiptavinir þeirra njóti ekki góðs af þeim. Þegar alþjóðasamfélagið felldi niður tolla af vörum sem koma frá fátækustu ríkjum heims var gengið sérstaklega úr skugga um íbúar þeirra kæmust ekki upp með að selja blómaverslunum afskorin blóm á hagstæðu verði. Það má með sanni segja að umhverfi blómaverslana sé undar- legt. Hvorki innlendir birgjar né ríkisvaldið virðist hafa áhuga á að þær séu starfandi. Viðskiptavilji getur verið sveiflukenndur enda eru menn stundum dyntóttir. Afstaða ríkisvaldsins hefur hins vegar verið óbreytanleg og ósanngjörn. Af blómaverslunum, dyntóttum mönnum og óbreytanlegum ríkisvilja Benedikt S. Benediktsson lögfræð- ingur Samtaka verslunar og þjónustu Sérstætt er, en ekki óviðbúið, að heimsfaraldurinn hefur kallað fram siðfræði- og heim- spekiumræður óvenju margra um flestar hliðar mjög mikilvægs hug- taks. Það er raunar svo margþætt, umdeilt og víðfeðmt að menn hafa glímt við það öldum saman. Auð- vitað á ég við frelsið; einn horn- stein samfélagsins og lýðræðisins sem við höfum þróað. Við skil- greinum það í samræmi við sjálf- mótaðar lífsskoðanir, eigið upp- eldi, og reynslu og/eða kenningar og hugmyndafræði sem okkur hugnast. Höfum skilgreint hugtök eins og tjáningarfrelsi, félagafrelsi, atvinnufrelsi og ferðafrelsi. Mátað þau við raunveruleikann, óskir okkar eða væntingar. Samið lög og reglur sem ýmist auka frelsi eða takmarka það, enda starfa samfélög þjóða á þann hátt og hafa lengi gert. Þannig tengjast stjórnmál frelsinu. Náttúran, einkum ótemjanlegir ferlar hennar, fylgir ekki umræð- unni um frelsi. Hana varðar, jafn laus og hún er við vitund sem mót- unaraf l á jörðinni, ekki nokkurn skapaðan hlut um frelsi mannsins. Náttúruvá, sem við verðum að bregðast við, er hluti af bæði líf- rænni og ólífrænni náttúru, allt frá óveðri og eldgosi til engisprettu-, veiru- eða bakteríufaraldurs. Oft tekst að verjast vánni, reyndar misvel, en stundum aðeins unnt að beygja sig og bíða átekta. COVID-19 faraldurinn fellur í fyrri f lokkinn og er illviðráðan- legur í bili og hættulegur. Þar með verður til áhætta: hætta á að hann taki að geisa lítt heftur, hætta á að margir tugir eða enn f leiri látist og hætta á að samfélagsstarfsemi stöðvist umfram það sem við þolum. Áhættuna meta greiðast og réttast þeir sem hana þekkja best. Hún er vegin á móti frelsinu, efnahagsstöðunni, velferðinni og heilbrigði hópa sem standa frammi fyrir mismunandi mikilli hættu af veirunni. Til þessa hefur stjórn- völdum í meginatriðum heppnast að taka ákvarðanir eftir ráðlegg- ingar sérfræðinga og komist bil beggja af ábyrgð. Allir vita að frelsi raungerist ekki án ábyrgðar. Ég tel að meirihluti landsmanna samþykki það, umgangist frelsið frammi fyrir veirunni af ábyrgð, taki á sig efnahagslegar byrðar og sýni af sér samstöðu sem er lykilatriði. Gagnrýni er þörf en þar blasir við að þungu orðin um ónægt frelsi, vega miklu minna en samstaða landsmanna. Þess vegna næst ágætur árangur, eins þótt við gætum þurft að lifa með veirunni næstu misseri. Áhættan, ábyrgðin og frelsið Ari Trausti Guðmundsson þingmaður Vinstri grænna 105 KOFFÍNVATN 330 ML 149 KR/STK 452 KR/L NÓA EITT SETT 30 G 149 KR/STK 4967 KR/KG SNICKERS CLASSIC 80 G 99 KR/STK 1980 KR/KG TOPPUR DÓS - 330 ML 129 KR/STK 391 KR/L KLAKI BLÁR/GRÆNN 500 ML 149 KR/STK 298 KR/L STJÖRNU POPP/OSTAPOPP 90/100 G 249 KR/STK 2490/2767 KR/KG Náttúran, einkum ótemjan- legir ferlar hennar, fylgir ekki umræðunni um frelsi. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.