Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 13
KYNNINGARBLAÐ
Framhald á síðu 2 ➛
Heilsa
M
IÐ
V
IK
U
D
A
G
U
R
2
6.
Á
G
Ú
ST
2
02
0
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI
HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
Ófeimin að opinbera
og ræða sína geðveiki
Myndskáldið Halla Birgisdóttir var á leið til Spánar þegar hún fékk geðrof og
fannst hún stödd mitt í eigin raunveruleikasjónvarpsþætti. Hún lauk nýlega
við að skrifa og myndskreyta sjálfsævisögulega bók um lífsreynslu sína.
Ég veiktist í byrjun árs 2011. Þá var ég á leið til Spánar með kærastanum mínum og
tveggja og hálfs árs dóttur. Við
þurftum að millilenda í London en
komumst ekki lengra á ferðalaginu
því þegar þangað var komið fannst
mér ég vera stödd í raunveru-
leikasjónvarpsþætti þar sem allt
sem ég sá, heyrði og upplifði hafði
mikilfenglega merkingu sem leiddi
mig áfram. Flugvélar flugu vegna
þess að ég gekk undir þeim, sem og
dúfurnar sem flugu yfir höfði mér
og voru sendar þangað af stjórn-
endum leiksins. Í raun hélt ég að
öll borgin snerist bara í kringum
mig,“ segir myndlistarkonan Halla
Birgisdóttir um reynslu sína af geð-
rofi sem náði hámarki á flugvelli í
Lundúnum.
„Kærastinn minn áttaði sig
engan veginn á því hvað væri að
gerast né að um geðrof væri að
ræða, ekki fyrr en ég var komin
það langt frá raunveruleikanum
að hann vissi að það væri eitt-
hvað mikið að og að það þyrfti að
hjálpa mér,“ segir Halla sem var
með skyndi lögð inn á geðdeild í
London þar sem hún var í nokkrar
vikur og fljótlega eftir að hún kom
heim til Íslands var hún aftur lögð
inn á geðdeild Landspítalans.
„Ég sjálf skynjaði ekki veikindin
því á meðan maður er í geðrofi er
allt sem maður upplifir manns
eigin sannleikur og raunveruleiki.
Ég var því heppin að vera ekki
ein þegar geðrofið helltist yfir
mig í London og það getur skipt
sköpum í svona aðstæðum. Lengi
vel vissi ég ekki hvernig ég ætti
að takast á við þetta en í dag er ég
ekki lengur hrædd. Ég hef fundið
minn rétta takt þó svo að maður
viti aldrei hvað getur komið upp á.
Að heiman kom líka til okkar fólk
til að vera hjá manninum mínum
og dóttur svo við vorum aldrei ein,“
segir Halla.
Léttir að vita ástæðuna
Veikindi Höllu höfðu byggst upp
smám saman þótt hún hafi ekki
gert sér grein fyrir því þá.
„Ég var 22 ára þegar ég lenti í geð-
rofi en hafði þá allt frá unglingsár-
unum upplifað vanlíðan, vott af
þunglyndi og kvíða. Eftir geðrofið,
og í framhaldi þegar að ég greindist
með geðhvörf, var því ákveðinn
Halla Birgisdóttir hefur nú opinberað lífsreynslu sína af geðrofi í bók og vonast til að bókin geti orðið öðrum til hjálpar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI