Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 22
Það kemur hvert höggið á fætur öðru. Þráinn Lárusson, stjórnarformaður 701 hotels sem meðal annars á Hótel Hallormsstað Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Margir veitinga-menn á lands-b y g g ð i n n i munu „leggjast í híði“ í vetur eftir að ríkis- stjórnin ákvað að skrúfa fyrir komu ferðamanna til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 hérlendis. Á sama tíma og tekjur dragast saman glíma veitingamenn við það að laun hafa hækkað „langt umfram laun í öðrum geirum“ frá árinu 2015, eins og einn kemst að orði. Aðgerðin, sem kynnt var 14. ágúst, felst í því að öllum sem ferðast til landsins er gert að sæta fimm til sex daga sóttkví og fara í tvöfalda skimun fyrir veirunni. Það stendur einnig til boða að sleppa skimun og vera í fjórtán daga sóttkví. Daníel Jakobsson, sem rekur hótel og veitingastað á Ísafirði, segir að fyrirtækið muni ekki lifa vetur- inn af án aðstoðar. Hann horfir til þess að hlutabótaleiðinni verði aftur komið á og hann hyggst ræða við lánardrottna sína um stuðning. Byggja á ferðamönnum Jakob Einar Jakobsson, stjórnar- maður í Samtökum ferðaþjónust- unnar og eigandi Jómfrúarinnar, segir að Ísland sé hluti af alþjóða- samfélaginu. „Mörg fyrirtæki, eins og veitingastaðir, byggja tilveru sína á að hingað komi erlendir ferða- menn. Það eru erfiðir tímar í vænd- um í veitingageiranum. Sérstaklega á landsbyggðinni,“ segir hann. Þráinn Lárusson, sem rekur fimm veitingastaði á Austurlandi og tvö hótel, segir að áður en ferðatak- markanirnar tóku gildi nýverið hafi hann átt von á að viðskiptin yrðu með ágætum í september. Hann hafi hins vegar ekki verið bjartsýnn á að reksturinn í október yrði góður, því að ferðamennirnir sem sóttu landið heim í sumar hafi einkum komið frá Skandinavíu og Þýskalandi. Þeir venji alla jafna ekki komur sínar langt út á land eftir september. Anda með nefinu „Ríkisstjórnin hefði mátt anda með nefinu og bíða í tvær til þrjár vikur, því mögulega hefði þá fjarað undan eftirspurninni,“ segir hann. Þráinn rekur Hótel Hallormsstað og Hótel Valaskjálf. Veitingastað- irnir sem um ræðir á Egilsstöðum eru Salt Café Bistró, Skálinn Diner og Glóð. Jafnframt starfrækir hann einnig Kol og Lauf á Hallormsstað. Hann horfir til þess að reka tvo veit- ingastaði í vetur. Að hans sögn eru íslenskir ferða- menn að fara frá svæðinu um þessar mundir og þá hafi bókanir gefið til kynna að erlendir ferðamenn myndu taka við kef linu fram að október. Aðgerðir ríkisstjórnar- innar hafi komið í veg fyrir að það gerist. „Við sem erum á landsbyggðinni, sérstaklega það sem kalla mætti landsbyggðin fjær, eins og Aust- firðir, höfum almennt verið í við- varandi taprekstri frá nóvember til og með febrúar. Verra en í mars Þráinn segir að höggið nú fyrir sinn rekstur sé verra en í fyrri bylgju COVID-19 í mars. Þá hafi fáir erlendir ferðamenn verið á ferli á hans athafnasvæði. Hann hafi því í mars einungis haft minna hótel sitt opið. Nú hins vegar hafi hann verið með stærra hótelið opið og bókanir „þurrkuðust út“ þegar sóttvarnar- reglum var breytt nýverið. „Það kemur hvert höggið á fætur öðru,“ segir hann og nefnir að rétt fyrir verslunarmannahelgi hafi tveggja metra reglunni verið komið á aftur. Það hafi stefnt í frábært veður á Austurlandi og því mátti búast við fjölda ferðamanna á svæð- inu. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafi því stórskaðað fyrirtækið. Ferðamenn héldu uppi mörgum veitingastöðum á landsbyggðinni Margir veitingastaðir treysta á erlenda ferðamenn. Erfiðir tímar eru fram undan sérstaklega hjá veitingastöðum á landsbyggðinni. Ýmsir munu bregða á það ráð að fara í híði. Tekjur veitingastaða lækkuðu verulega við tveggja metra regluna. Veitingamenn í mið- borginni bera sig vel. Laun í veitingageiranum hafa hækkað skarpt frá árinu 2015 en nú munu tekjur veitingahúsa dragast saman. Íslendingar flykkjast á veitingastaði í miðbænum í blíðskaparveðri. Veitingamaður segir að hver dagur þurfi að vera óþægilegur ef reksturinn eigi að ganga upp. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.