Fréttablaðið - 26.08.2020, Síða 24
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654
Intellecta er sjálfstætt þekk-ingarfyrirtæki sem stofnað var árið 2000 af Þórði S. Óskarssyni,
Ph.D. í vinnu- og skipulagssál-
fræði. Þórður er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og leiðir jafn-
framt ráðgjöf í mannauðsmálum.
„Í dag starfa þrettán reynslumiklir
ráðgjafar hjá Intellecta og eru
kynjahlutföllin nánast jöfn. Við
störfum á fjórum sviðum: ráð-
gjöf, ráðningum, rannsóknum og
fræðslu,“ skýrir Þórður frá.
„Ég hef starfað sem stjórn-
endaráðgjafi og sérfræðingur í
ráðningum hjá Intellecta í tæp
þrjú ár og hefur verið skemmtilegt
að fylgjast með þeim breytingum
sem hafa orðið hjá fyrirtækinu á
þessum tíma,“ segir Thelma. „Það
hefur orðið skemmtileg þróun
hjá fyrirtækinu t.d. með tilkomu
nýrra ráðgjafa sem hafa einbeitt
sér að ráðgjöf í stafrænni umbreyt-
ingu og stafrænni fræðslu. Það
hefur verið mikil eftirspurn eftir
slíkri ráðgjöf, enda hefur COVID
nánast neytt fyrirtæki og stofnanir
til þess að nýta stafrænar lausnir í
auknum mæli.“
Dýrmætt orðspor og reynsla
Þórður segir velgengni fyrirtækis-
ins stafa af verðmætu orðspori
og umfangsmikilli og fjölbreyttri
reynslu starfsfólks . „Fyrirtækið
hefur náð góðri fótfestu og byggir
starfsemina á góðu orðspori og
árangri af starfi með viðskipta-
vinum okkar. Okkar vinna hefur
skilað virðisauka fyrir fyrirtæki og
stofnanir,“ segir hann.
„Intellecta er ein af öflugustu
ráðningarstofum landsins og
er sá árangur ráðgjöfum okkar
að þakka, en þeir búa bæði yfir
faglegri þekkingu hvað varðar
ráðningar og mannauðsmál og
hafa einnig víðtæka reynslu sem
stjórnendur úr atvinnulífinu. Við
höfum sérhæft okkur í ráðningum
sérfræðinga og stjórnenda, en þó
tökum við að sjálfsögðu að okkur
allar ráðningar, t.d. skrifstofu- og
bókhaldsstörf og fleira.“
Þórður nefnir þá tengslanetið
sem hafi mikla þýðingu þegar
fyrirtæki leiti að einstaklingum
í stjórnunarstöður. „Ráðgjafar
okkar hafa öflugt tengslanet í
atvinnulífinu en slík tengsl nýtast
vel þegar við höfum verið fengin til
að annast beina leit (e. headhunt-
ing) að stjórnendum. Þessi aðferð
er meðal annars notuð af stjórnum
og æðstu stjórnendum fyrirtækja
sem eru að leita að lykilstjórn-
endum en hafa ekki hug á því að
auglýsa. Við erum líka í sambandi
við öfluga einstaklinga sem hafa
látið vita af sér án þess þó að vera
í beinni atvinnuleit,“ útskýrir
Þórður.
Vönduð og fagleg vinnubrögð
Thelma segir fagleg vinnubrögð
og áreiðanleika einkenna alla
starfsemi Intellecta. „Hjá Intell-
ecta er mikil uppsöfnuð reynsla
sem nýtist viðskiptavinum í öllum
málum sem snúa að ráðningum
og öðrum þáttum sem tengjast
mannauði fyrirtækja. Mikil
áhersla er lögð á faglegt hæfnis-
mat á einstaklingum. Við höfum
í auknum mæli verið að sjá um
ráðningarferlið í heild sinni fyrir
opinbera aðila, en þar eru málin
flóknari og mikilvægt að þekkja
vel til þeirra laga sem þarf að fylgja
svo að upplifun okkar viðskipta-
vina og umsækjenda sé sú að verið
sé að vinna faglega og á eins gagn-
sæjan hátt og kostur er.“
Þórður tekur í sama streng.
„Okkur er fyrir mestu að skapa
virðisauka fyrir viðskiptavini
okkar. Það er aukin og vaxandi
krafa um að fagmennska í valferli
sé tryggð og miðast allt okkar starf
við að uppfylla ströngustu kröfur
í þeim efnum. Við viljum tryggja
að þeir umsækjendur sem koma í
gegnum ráðningarferli okkar séu
það vel valdir að það muni um
þá í þeim starfsmannahópi sem
þeir koma til með að starfa í. Við
tryggjum það með eins góðum
hætti og mögulegt er með því að
vanda til verka í ráðningarferlinu
og styttum okkur aldrei leið.“
Thelma segir áríðandi að efla
tengsl við viðskiptavini ásamt
því að afla upplýsinga sem veiti
henni aukna innsýn í starfsemi
fyrirtækja. „Við höfum haft það
að leiðarljósi að kynnast vel þeim
stjórnendum sem við störfum
með, t.d. hvernig einstaklingar
og stjórnendur þeir eru, hvernig
menning einkennir vinnustaðinn,
hvernig samsetning starfsmanna
er og þess háttar. Þá höfum við lagt
okkur fram við að kynnast starf-
seminni vel. Með því að rækta gott
samband við viðskiptavini skapast
traust og við skiljum þarfir þeirra
betur. Ráðgjöf okkar er þeirra
ávinningur og mikilvægt að geta
verið heiðarlegur og sagt hlutina
eins og þeir eru.“
Áskoranir í nýju landslagi
Þá hafi ýmislegt breyst í kjöl-
far faraldursins. „Í upphafi árs
sáum við fram á miklar áskoranir
vegna COVID-faraldursins og
mikið atvinnuleysi varð til þess
að umsækjendum um hvert starf
fjölgaði töluvert. Samkeppnin
um störf er því meiri og mikil-
vægt að umsækjendur hafi það í
huga þegar þeir útbúa umsóknar-
gögnin sín. Mikilvægt er að
ferilskráin innihaldi upplýsingar
um menntun og reynslu og upplýsi
lesandann vel, þannig að hann sitji
ekki uppi með nein spurningar-
merki. Þá er kynningarbréfið einn-
ig lykilatriði. Við höfum ráðlagt
umsækjendum að skoða vel helstu
verkefni og hæfniskröfur þess
starfs sem þeir eru að sækja um og
máta sig inn í starfið með kynn-
ingarbréfinu,“ upplýsir Thelma.
Þórður segir mikið í húfi hvað
ráðningar snertir. „Hver einstök
ráðning er mikilvæg fjárfesting og
er það hagur viðkomandi fyrir-
tækis og einstaklings að vel takist
til. Flestir eru sammála um að
mannauðurinn sé ein mikilvæg-
asta auðlind fyrirtækja. Árangurs-
ríkar ráðningar byggjast á fag-
legum vinnubrögðum, skilningi
á mannlegri hegðun og notkun
viðurkenndra aðferða. Vinnu-
sparnaðurinn fyrir stjórnendur er
gífurlegur.“
Þórður S. Óskarsson og Thelma Kristín Kvaran hjá Intellecta segja fyrirtækið leggja áherslu á gott orðspor, vönduð vinnubrögð og árangur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Okkur er fyrir
mestu að skapa
virðisauka fyrir við-
skiptavini okkar. Það er
aukin og vaxandi krafa
um að fagmennska í
valferli sé tryggð og
miðast allt okkar starf
við að uppfylla ströng-
ustu kröfur í þeim
efnum.
Með því að rækta
gott samband við
viðskiptavini skapast
traust og við skiljum
þarfir þeirra betur.
Ráðgjöf okkar er þeirra
ávinningur og mikilvægt
að geta verið heiðarlegur
og sagt hlutina eins og
þeir eru.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RVINNUMIÐLUN