Fréttablaðið - 26.08.2020, Síða 27

Fréttablaðið - 26.08.2020, Síða 27
Við erum búin að fækka starfsfólki mikið og verðum í einhvers konar híði í vetur. Daníel Jakobsson, framkvæmda- stjóri Hótel Ísafjarðar Frá árinu 2010 hafa erlendir ferðamenn skilað um 25-30 prósentum af tekjunum. Jakob Einar Jakobsson, fram- kvæmdastjóri Jómfrúarinnar Heimild: Samtök ferðaþjónustunnar, byggt á gögnum frá Hagstofunni 25% 30% 35% 40% Fjöldi launþega í veitingasölu 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 ✿ Laun í hlutfalli af tekjum Laun og launatengd gjöld í veitingasölu sem hlutfall af tekjum Íslendingar flykkjast á veitingastaði í miðbænum í blíðskaparveðri. Veitingamaður segir að hver dagur þurfi að vera óþægilegur ef reksturinn eigi að ganga upp. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Launahækkanir veitingastaða „allt of brattar“ Veitingamaður segir að það muni koma sér „verulega á óvart“ ef lífskjarasamningarnir verði ekki „aðalmálið í haust.“ Laun hækk- uðu í maí og munu hækka aftur ári síðar. „Hvernig á að hækka laun þegar risastór atvinnugrein hefur nánast engar tekjur?“ Eyþór Mar Halldórsson, sem á meðal annars Public House, segir að laun í veitingageiranum hafi hækkað mikið frá árinu 2015. „Langt umfram laun í öðrum geirum,“ segir hann og spyr sig hve há laun atvinnugreinin beri. Mögulega muni launahækkanir leiða til þess að sjálfsafgreiðslu- lausnir verði nýttar í meira mæli, fólk panti og greiði fyrir mat með snjallsíma. Daníel Jakobsson, sem er með rekstur á Ísafirði, segir að launahækkanir hafi verið „allt of brattar“. Starfsfólk hans sem starfi eftir kjarasamningum og sé á lágum launum, hafi fengið mestar hækkanir. „Laun sem hlutfall af veltu hafa á nokkrum árum farið úr 40 prósentum í 50 prósent. Til viðbótar hafi mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði hækkað og virðis- aukaskattur á gistingu hækkaði úr sjö prósentum í ellefu prósent. „Veitinga- og hótelrekstur er ekki fasteignir heldur þjónustan sem við erum að selja og til að veita hana þarf starfsfólk. Hótel á landsbyggðinni stóðu ekki undir þessum launahækkunum. Það er alveg klárt,“ segir hann. Þráinn Lárusson, sem er með rekstur á Austurlandi, segir að veitingarekstur hafi „breyst gríðarlega“ síðustu fjögur ár. „Það er nánast ekkert orðið eftir,“ segir Þráinn. Laun hafi hækkað mikið en verð veitinga lítið. „Í dag er ekkert spennandi að vera í veit- ingarekstri. Hótelin hafa haldið manni gangandi. Það á þó ekki við um sumarið í ár því verðin voru mjög lág.“ Hann segir að verðið hafi getað verið svo lágt vegna þess að lán voru fryst. Íris Ann Sigurðardóttir, sem rekur The Coocoo‘s Nest, segir að hún finni meira fyrir trygg- ingagjaldinu og öðrum sköttum í sínum rekstri en samnings- bundnum launahækkunum í kjarasamningum. Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri Jómfrúar- innar, vitnar í ummæli góðs vinar úr faginu. „Þetta er orðið þannig í þessum bransa að vegna hás rekstrarkostnaðar þá þarf hver dagur að vera smá „óþægilegur“ ef þú ætlar að vera í þessum rekstri. Þetta þarf að vera hlaup og allir á milljón og engin yfir- bygging, þá hefst þetta,“ segir hann. Í dag er ekkert spenn- andi að vera í veitinga- rekstri. Þráinn Lárusson, atvinnurekandi á Austurlandi Leggjast í híði „Flestir veitingamenn í kringum mig eru að fara að loka og leggjast í híði,“ segir hann. Þarsíðustu helgi varð hann segja upp „óhemjumiklu af starfsfólki,“ segir hann. Saman- lagt næstum 60 manns sem störf- uðu við hótelin og veitingastaðina. Alla jafna hefðu f lestir þeirra haft atvinnu fram í október. „Reksturinn í september verður eins og venju- lega í nóvember og desember.“ Þráinn segir að í venjulegu árferði væru um 56 manns með vinnu út árið en í október verði 18-19 starfs- menn hjá samstæðunni. Þráinn segir að framlengja þurfi hlutabótaleiðina. „Það er fólk hjá okkur sem sér ekki fram á annað en atvinnuleysi. Ef það héldi ráðn- ingarsambandinu myndi það halda í vonina,“ segir hann. Að hans mati eigi ekki að líta á hlutabótaleiðina sem ríkisstyrk. Í stað þess að starfsmaður sé á fullum atvinnuleysisbótum sé hann á 25 prósenta launum frá atvinnulífinu. „Viðkomandi hefði ella lent á fullum atvinnuleysisbótum og fyrir vikið væri lægri atvinnusköpun.“ Daníel, sem rekur Hótel Ísafjörð og veitingastaðinn Við Pollinn, segir að rekstur sinn sé alla jafna árstíðabundinn og að september og október hafi almennt verið góðir. Það verði ekki í ár eftir að skrúfað var fyrir komu ferðamanna til landsins. Um 95 prósent viðskipta- vina veitingastaðarins séu erlendir ferðamenn. Hann reki einnig mötu- neyti fyrir vinnustaði í bænum en telji það ekki til hefðbundins veit- ingahúsarekstrar. Fyrirtækin hafi ekki náð að safna í sjóði í sumar fyrir veturinn, eins og venja sé, og því þurfi að fá aðstoð frá lánveitanda. „Við erum búin að fækka starfsfólki mikið og verðum í einhvers konar híði í vetur,“ segir hann. Það hafi unnið 16 starfsmenn á ársgrundvelli á veitingastaðnum en þeir verði átta í september. „Við þurfum að lifa með heimamönnum sem er miklu minni markaður.“ Venjulega á sumrin starfi um 50-60 manns hjá fyrirtækjunum en í sumar höfðu þau um 20 manns í vinnu. Jakob Einar, framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar, segir að miklum fjármunum hafi verið varið í að markaðssetja og byggja upp Ísland sem áfangastað árið um kring. Það hafi tekist vel, nú séu góðir veitinga- staðir og kaffihús víða um land. Nú megi hins vegar gera ráð fyrir því að í nánustu framtíð verði ferðamanna- tímabilið einungis þrír til fjórir mánuðir líkt og fyrir áratug eða meira. „Það er sorglegt ef öll upp- bygging undangenginna ára verður að engu. Það á ekki tala niður þetta mikla uppbyggingarstarf eins og sumir hafa gert,“ segir hann. Að hans mati þurfi ríkisstjórnin að blása til aðgerða til að aðstoða ferðaþjónustuna. „Það er verið að gera lítið úr heilli atvinnugrein, fjár- festingunni, þekkingunni og upp- byggingunni, ef einungis er horft til þess sem sumir segja, að lágar aðgangshindranir séu til staðar og því þurfi ekki að rétta henni hjálp- arhönd, hún muni bara spretta upp af sjálfu sér á ný.“ Lítil áhrif á Jómfrúna Jakob Einar segir þó að lokun lands- ins hafi lítil áhrif á rekstur Jóm- frúarinnar. Lokunin geri það að verkum að íslenskir viðskiptavinir muni ekki fara í helgarferðir í haust og því muni Íslendingar vega upp tekjutapið af færri ferðamönnum. „Frá árinu 2010 hafa erlendir ferðamenn skilað um 25-30 pró- sentum af tekjunum. Hlutfallið er hærra um hásumartímann því Íslendingar bóka nær öll borðin í tengslum við jólahald í nóvember og desember. Í sumar, fram að sam- komutakmörkunum í ágúst, hafa Íslendingar vegið upp tekjutapið af erlendum ferðamönnum. Ég get því ekki kvartað yfir stöðunni í mínum rekstri,“ segir hann. Jakob Einar telur að hann hafi orðið af um 15 milljónum í tekjur í ágúst því samkomutakmarkanir hafi gert það að verkum að Menn- ingarnótt og Reykjavík pride var slegið af og Jómfrúin gat ekki staðið fyrir árlegri sumardjasshátíð. „Það munar um minna. Ágúst er þriðji stærsti mánuðurinn í okkar rekstri. Sumar og jól eru bestu mánuðirnir sem vega upp á móti tapi sem er alltaf fyrstu þrjá mánuði ársins,“ segir hann. Margir íslenskir viðskiptavinir Eyþór Mar Halldórsson, sem á þrjá veitingastaði í miðborginni, gerir ráð fyrir því að veitingastaðirnir verði reknir með hagnaði í vetur, þótt afkoman verði lakari en áður. „Við reynum að komast í gegnum þetta. Viðskiptavinir eru mikið til Íslendingar. Á meðan þeir koma verður þetta ekki stórmál.“ Hann segir að búið hafi verið að gera ýmsar ráðstafanir áður en upplýst var um hertar sóttvarna- aðgerðir í mánuðinum, eins og að breyta opnunartíma á Public House og Brewdog. Lokað sé í hádeginu á Public House nema föstudaga til sunnudaga þegar boðið sé upp á botnlausan dögurð (e. bottom- less brunch). Brewdog sé opið frá hádegi, nema mánudaga og þriðju- daga. Að sögn Eyþórs Mar er lítið upp úr því að hafa að selja hádegismat. Fólk hafi lítinn tíma og vilji ekki eyða of miklu. Hann tekur undir það að verðið sé oft lágt í hádeginu, enda bjóði margir veitingastaðir upp á tveir fyrir einn tilboð. Eyþór Mar er hluthafi í veitinga- staðnum Duck & Rose sem býður upp á hádegismat. „Það er öðruvísi staður en Public House og Brewdog. Hann er mun stærri og hádegislegri, þar er hægt að fá sér pítsu eða fisk dagsins.“ Færra starfsfólk Aðspurður hvort breyttur opnunar- tími hafi kallað á færra starfsfólk segir hann að starfsfólki hafi fækk- að frá mars með því að ráða ekki nýja starfsmenn þegar einhverjir hafi hætt. Starfsmannafjöldinn nú sé 60-70 prósent af því sem hann var í ágúst fyrir ári. Eyþór Mar segir að ef það rigni á mánudegi í september sé líklegt að fáir Íslendingar fari út að borða. Í venjulegu árferði hefðu erlendir ferðamenn komið til skjalanna við þær aðstæður og vegið upp á móti því þeir verði að fara út að borða nánast öll kvöld. Hann hefur orð á því að aðgerðir til að stemma stigu við COVID- 19 séu ófyrirsjáanlegar. Hann sýnir því ríkan skilning enda séu aðstæður með þeim hætti að óviss- an í baráttunni við veiruna sé mikil. Aðspurður með hvaða hætti hann myndi haga veitingarekstrinum öðruvísi ef aðgerðirnar væru fyrir- sjáanlegri nefnir hann að ef vitað væri að tveggja metra reglan ætti að gilda lengi, væri ráð að fjárfesta í því að stúka niður veitingastaði. Aftur á móti ef reglan muni vara stutt, væri óskynsamlegt að leggja háar fjár- hæðir í slíkar framkvæmdir. Koma sjaldnar en áður Íris Ann Sigurðardóttir, sem á og rekur The Coocoo‘s Nest ásamt eig- inmanni sínum, segir að viðskipta- vinir þeirra séu einkum fastagestir „sem haldi með okkur. Við höfum aldrei stólað mikið á ferðamenn.“ Hún segir um 90 prósent viðskipta- vina búa á Íslandi. Þau finni þó fyrir því að viðskiptavinir séu að passa sig á COVID-19 og komi því ekki eins oft og áður. Aðspurð hvaða áhrif tveggja metra reglan hafi á reksturinn segir hún að það hafi orðið „veru- legt tekjutap“ við það að missa borð. Rekstur fyrirtækisins njóti góðs af því að hafa stækkað fyrir skemmstu með opnun Luna Flórens í sama húsi. „Við höfum líka hvatt viðskipta- vini til að taka mat með heim og höfum notið góðs af því að hægt hefur verið að sitja úti,“ segir hún. Þráinn segir að „fótunum hafi verið kippt undan okkur“ með tveggja metra reglunni. Salan hafi hrunið um 30 prósent á veitinga- stöðunum. „Það er erfitt að reka veitingastaði með tveggja metra reglunni. Fyrir suma er það nánast útilokað,“ segir hann. Jakob Einar segir að tveggja metra reglan geri það að verkum að veit- ingastaðurinn er að hámarki í 70 prósenta af köstum. „Við getum tekið inn 50-70 manns, eftir því hvernig raðast á borðin, í stað 100 manns,“ segir hann og nefnir að góðviðrisdagar geri það að verkum að fólk vilji sitja úti. „Þannig náum við f lottum dögum inn á milli, veltulega séð.“ Þráinn segir að mikill meirihluti veitingastaða muni skaðast af færri ferðamönnum. „Það gefur auga leið,“ segir hann. Að hans sögn munu þó sum veitingahús, sem þjóni einkum Íslendingum, njóta góðs af ferða- takmörkunum ef þær leiði af sér að tveggja metra reglan verði afnumin því þá muni vera hægt að reka þau með eðlilegum fjölda borða. Næsti Eyjafjallajökull Daníel segir að þó það „svíði til skamms tíma“ að hafa lokað land- inu fyrir ferðamönnum séu tæki- færi í því til langs tíma að halda vel á málum varðandi COVID-19. „Við vorum að fá nýja hópa í sumar sem komu vegna þess hve vel við stóð- um okkur gagnvart veirunni. Við værum að fórna minni hagsmun- um fyrir meiri með því að klúðra COVID. Þetta gæti orðið verðmæt umfjöllun eins og þegar Eyjafjalla- jökull gaus,“ segir hann. Til að komast í gegnum skaflinn, að hans mati, þurfi allir að standa saman: ríkið leggi sitt af mörkum, fyrirtækjaeigendur sömuleiðis, sem og stéttarfélögin og bankarnir. „Ef allir gera eitthvað smá eigum við að geta komist í gegnum þetta,“ segir Daníel. MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.