Fréttablaðið - 26.08.2020, Page 29
Ef ég hefði beðið
eftir að safna í sjóð
sem stendur undir laun-
unum mínum væri ég enn að
bíða. Þannig vil ég ekki haga
lífi mínu heldur byggja upp
fyrirtæki og fjárfesta í
frumkvöðlum.
Að mínu mati eru
þeir frumkvöðlar
sem vilja selja fyrirtæki sín
hratt, að byggja upp léleg
fyrirtæki.
„ Frumkvöðlar, sem vilja selja fyrirtæki sín fljótt, eru að byggja upp léleg fyrirtæki. Það byggir enginn framúrskarandi fyrirtæki og er með hugann við að selja það,“ segir Bala Kamallakharan. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
að mæta, hvað notendur vilja upp-
lifa og hvernig við getum farið fram
úr væntingum þeirra. Með hjálp víð-
feðms tengslanets kem ég einnig að
því að ráða starfsfólk og aðstoða við
að fyrirtækið stígi rétt skref fram á
við.“
Byrjar á 3–7 milljónum
Hvað fjárfestir Iceland Venture
Studio venjulega fyrir mikið í hverju
fyrirtæki?
„Okkar leið er ólík flestum öðrum
fjárfestum í nýsköpun. Við byrjum á
að fjárfesta fyrir lága fjárhæð, 25–50
þúsund dollara, jafnvirði 3–7 millj-
óna króna, og leggjum fyrirtækj-
unum svo til meira fé ef vel gengur.
Við höfum til dæmis fjárfest fyrir
hálfa milljón dollara í RetinaRisk.“
Hvað ertu reiðubúinn að fjárfesta
fyrir mikið í einu fyrirtæki?
„Það er ekki fjallað um það í
samþykktum félagsins. Miðað er
við að leggja ekki meira en 20 pró-
sent af fjárfestingarfé okkar í hvert
fyrirtæki til að áhættan verði ekki
of mikil af einu fyrirtæki í eignasafn-
inu. Það væri kannski ekki stórmál
ef umfang eins yrði meira, en við
viljum stýra áhættunni.“
Hvað heldurðu að mörg fyrirtæki
í eignasafninu muni slá í gegn og hve
mörg ganga ekki upp?
„Iceland Venture Studio hefur
fjárfest í sex fyrirtækjum og þeim
vegnar öllum vel. Ég nálgast fjár-
festingarnar ekki með þessu hugar-
fari. Ég bý að því að hafa starfað með
öguðum hætti í viðskiptalífinu og
trúi því ekki á líkur hvað þetta varð-
ar. Ef heimurinn þarfnast tiltekinnar
þjónustu er hægt að leita uppi fólk
sem þarf á henni að halda, og rukka
notendur um meira en sem nemur
kostnaði fyrirtækisins.
Það að fjárfesta í nýsköpun er
ekki eins og að leggja undir í spila-
víti. Frumkvöðull sem ég hef trú á,
leggur allt sitt í sprotafyrirtækið,
hvers vegna ætti ég að halda að það
muni ekki ganga upp hjá honum?
Ég stend með frumkvöðlunum. Mín
hugmyndafræði er að það njóti allir
góðs af því ef frumkvöðlinum tekst
ætlunarverkið. Með þeim hætti
byggi ég upp Iceland Venture Studio.
Margir vinir mínir sem fjárfesta í
nýsköpun gera gys að mér og segja
að ég sé of áhættufælinn. Ég segi að
það sé af og frá, ég vil bara ekki fjár-
festa í sprotafyrirtæki sem mun ekki
ganga upp.
Ég hef hagað mér með þessum
hætti í meira en áratug og ekki
tapað eyri á að fjárfesta í sprota-
fyrirtækjum.“
Ekki tapað á sprotum
Það getur ekki verið, þú hlýtur að
hafa tapað á einhverju?
„Hingað til hef ég ekki tapað á að
fjárfesta í sprotafyrirtækjum, sem
ég hef unnið með, og vona að það
breytist ekki.“
Hvað hefurðu fjárfest í mörgum?
„Ég hef fjárfest í kringum 30
fyrirtækjum. Mörg þeirra voru sem
„engill“ þar sem ég var ekki í beinum
samskiptum við teymin og um var
að ræða mjög lágar upphæðir.
Teymi sem ég hef unnið beint með
og tekið virkan þátt í viðganginum
hafa gert mjög góða hluti. Fyrst fjár-
festi ég í Clara, því næst Greenqloud,
þriðja var Buuteeq og fjórða var
Guide to Iceland.“
Fyrstu þrjú fyrirtækin voru keypt
af fyrirtækjum sem skráð eru á Nas-
daq-hlutabréfamarkaðinn í Banda-
ríkjunum.
Hvað reiknarðu með að eiga fyrir-
tækin í eignasafninu lengi?
„Við getum ekki ráðið því hvað
það tekur langan tíma að selja fyrir-
tækin. En við getum stýrt því hvað
það tekur langan tíma að rekstur
þeirra verði sjálfbær, í því skyni að
þau brenni ekki peningum.
Í Kísildalnum er hugmynda-
fræðin sú að fyrirtækin brenni eins
miklu af peningum og þeim er unnt
svo þau geti aflað eins margra not-
enda og kostur er. Uber er dæmi um
það. Að mínu mati er það hræðileg
hugmynd. Rekstur fyrirtækja þarf
að standa undir sér.“
Hversu erfitt verður að selja fyrir-
tækin í eignasafninu eftir einhver ár?
„Stofnendur fyrirtækjanna ráða
þeirri vegferð. Ég segi þeim ekki
hvað þeir eigi að gera hvað það varð-
ar. Alla jafna eigum við lítinn hlut í
fyrirtækjunum en höfum vissulega
áhrif.
Að mínu mati eru þeir frum-
kvöðlar, sem vilja selja fyrirtæki sín
fljótt, að byggja upp léleg fyrirtæki.
Það byggir enginn framúrskarandi
fyrirtæki og er með hugann við að
selja það. Mark Zuckerberg hefði
getað selt Facebook eftir þrjú ár og
efnast vel en þá hefði hann ekki
byggt upp stórveldið sem það er í
dag.“
Vanþroskað sprotaumhverfi
Bala segir að vandinn við sprotaum-
hverfið hérlendis sé hve vanþroskað
það er. „Við erum ekki með frum-
kvöðla sem geta fjárfest ríkulega í
sprotafyrirtækjum eftir að hafa selt
nýsköpunarfyrirtækið sitt, eins og
tíðkast til dæmis í Kísildalnum. Það
mun taka tíma, en þegar landslagið
verður með þeim hætti mun okkur
vegna betur.
Að mínu mati er ekki fjárfest nóg
í sprotafyrirtækjum á Íslandi. Í stað
þess að fjárfesta fyrir eina milljón
dala í einu fyrirtæki ætti að fjárfesta
í tíu fyrirtækjum fyrir 100 þúsund
dali. Það væri betri hvati fyrir frum-
kvöðla. Það er nefnilega erfitt að fá
fyrstu fjárfestana til liðs við sig, það
er mun auðveldara að fá eina millj-
ón dala í fjármögnun en hundruð
þúsund því í þeim tilvikum er búið
að eyða miklu af áhættunni, sem er
þegar frumkvöðlar stíga sín fyrstu
skref. Þegar fyrirtækin geta safnað
hærri fjárhæðum eru þau oft búin að
sanna gildi sitt og nota fjármagnið
til að vaxa.“
Hann segir að 100 þúsund dalir
nýtist nú mun betur en fyrir áratug.
COVID-19 hafi sýnt það að fyrir-
tækin séu ekki bundin af því að ráða
íslenska hugbúnaðarverkfræðinga
heldur geti leitað hvar sem er. Skýja-
þjónusta geri það sömuleiðis að
verkum að rekstur fyrirtækjanna
sé ódýrari en áður.
Forritarar eru ódýrari víða erlend-
is.
„Þetta snýst ekki einvörðungu
um kostnað heldur líka að þeir séu
á lausu. Flestir góðu hugbúnaðar-
verkfræðingarnir á Íslandi eru nú
þegar í vinnu. Fólkið sem er á lausu
er ekki með starfsreynslu. Það getur
verið byrði fyrir fyrirtæki á klak-
stigi að ráða óreyndan starfsmann
því það þarf að kenna honum allt og
það getur verið erfitt að byggja upp
fyrirtæki við þær aðstæður.
Á klakstigi er því gott að geta
ráðið starfsfólk hvaðanæva að úr
heiminum sem kemur inn með
mikla reynslu og þekkingu og getur
aðstoðað fyrirtækið við að byggja
upp tækni sína fljótt og örugglega.
En ég segi alltaf að staðsetning
skipti ekki máli í rekstri hugbún-
aðarfyrirtækja. Fólk frá yfir 100
löndum hefur sótt hugbúnað frá
íslenska fyrirtækinu RetinaRisk.“
Bala bendir einnig á að það þurfi
að hafa yfir að ráða vissri kunnáttu
þegar ráða á hugbúnaðarverkfræð-
inga, því þeir séu misfærir.
Hann segir að sama skapi að við
á Íslandi verðum að þora að hugsa
stærra. „Við getum leyst vandamál
á heimsvísu. Stórfyrirtæki voru ekki
stór þegar þeim var ýtt úr vör heldur
voru þau lítil fyrirtæki að leysa stórt
vandamál,“ segir Bala.
Warren Buffett er fyrirmynd
Áttu þér fyrirmynd í rekstri Iceland
Venture Studio?
„Ég er fjárfestir og horfi til þess
hvernig Warren Buffett hefur byggt
upp Berkshire Hathaway. Við viljum
byggja upp stöndug, verðmæt fyrir-
tæki sem við fáum greiddan arð frá,
fara á markað eða sameinast öðrum
fyrirtækjum.“
- Er Iceland Venture Studio nógu
stór til að standa straum af launum
og fleiru í þá veru?
„Ég hugsa ekki um mín laun fyrst
heldur hvaða vanda ég get tekið þátt
í að leysa. Ef það gengur upp hjá
okkur mun ávöxtunin standa undir
launum mínum og miklu meira en
það. Ég fæ lítils háttar þóknun fyrir
mína vinnu í dag, en hún er ekki há
miðað við fólk með minn bakgrunn
og mína reynslu,“ segir hann. Bala er
með þrjár meistaragráður og hefur
unnið sem stjórnunarráðgjafi og í
banka.
„Ef ég hefði beðið eftir að safna í
sjóð sem stendur undir laununum
mínum væri ég enn að bíða. Þann-
ig vil ég ekki haga lífi mínu heldur
byggja upp fyrirtæki og fjárfesta í
frumkvöðlum. Það mun borga sig
til lengri tíma litið.“
Innflytjendur leggja
meira á sig
Innflytjendur þurfa að leggja
harðar að sér til að ná langt
í nýju landi, segir Bala. „Ég er
alltaf reiðubúinn að fjárfesta
í öðrum innflytjendum og hef
gert það tvisvar, hluti stofnenda
Guide to Iceland er af erlendu
bergi brotinn og Breti er á meðal
stofnenda Greenvolt.“
Lykillinn
margborgar
sig á Kvikk
stöðvunum*
Þú nálgast lykilinn
í verslunum Kvikk
eða á Orkan.is
Pylsupartí
Pylsa + ½ lítri af gosi að
eigin vali frá Ölgerðinni
499 kr.
Red Bull
Orkudrykkir
199 kr.
Frítt á könnunni
Ókeypis kaffi og kakó
Sbarro tilboð á
Vesturlandsvegi
Sneið + drykkur
690 kr.
OPIÐ
24/7
Kvikk: Dalvegi, Suðurfelli,
Vesturlandsvegi og Fitjum
*G
ild
ir
e
in
g
ö
ng
u
g
eg
n
fr
am
ví
su
n
O
rk
ul
yk
ils
/-
ko
rt
s.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
til
3
1.
á
g
ús
t 2
02
0.
MARKAÐURINN 11M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0