Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 26.08.2020, Qupperneq 30
 Við erum öll með kúlu á hausnum við að reyna að fóta okkur á þessum sérstöku óvissu- tímum og því er mikilvægt að sýna sér og öðrum mildi, vera vakandi, opin fyrir nýjungum og stunda upp- byggilegt sjálfstal. Helsta áskorunin núna er að vera skapandi jarðýta á nöglum, leyfa sér að gera mistök og vona að bóluefni verði aðgengilegt fyrir allan almenning sem fyrst – því okkur liggur lífið á í orðsins fyllstu merkingu! Já, hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt? Þetta segir Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Hver eru þín helstu áhugamál? Ég er virk manneskja í leik og starfi, finnst gaman að vinna en viðra útivistarfatnaðinn reglu- lega. Útivist, tónlist, myndlist, safnaheimsóknir og listasýningar og umhverfismál eru mitt helsta áhugamál. Ég næri mig á marga vegu, til dæmis með því að sortera í skúffum, en útivera og samvera með mínum nánustu gefur mér mest og íslensk náttúra og tónlist er mitt hleðslutæki. Hvernig er morgunrútínan þín? Morgunrútína er vafalítið mikil innspýting og steypustyrktar- járn fyrir daginn og gott undirlag fyrir lífið allt, en ég hef ekki þróað ákveðna morgunrútínu en finnst frábært þegar ég er komin fram úr. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Ég er farin að vaða ljóð upp að mitti og það er þvílíka hlaðborðið sem bíður mín því ég hef ekkert verið að lesa ljóð af neinu viti hing- að til. Knappur texti og húmor er í uppáhaldi. Hvers hlakkarðu mest til þessa dagana? Að halda áfram að styðja kven- leiðtoga í að sækja fram og sameina þær til aukins sýnileika og þátt- töku, fá tækifæri til að leysa enn frekari kraft úr læðingi hjá FKA og þjónusta atvinnulífið. Það er svaka- lega gaman að finna hve mikilvægt félagið er konum og upplifa þá vigt sem FKA hefur í samfélaginu. Það er mikið leitað á skrifstofu félags- Pössum að missa leikinn ekki úr lífinu „Konur eiga að vera duglegar að setja sig í forgang, taka tíma frá fyrir sig og njóta góðs af öflugu tengslaneti athafnakvenna,“ segir Andrea. MYND/AÐSEND Nám: MS-gráða frá viðskipta- og hag- fræðideild (Háskóli Íslands), MA-diplóma í jákvæðri sálfræði. BA-gráða í félags- og kynjafræði (Háskóli Íslands). Störf: Starfar sem framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. Áður starfaði hún sem fram- kvæmdastjóri, forstöðumaður og mannauðsstjóri RÚV. Fjölskylduhagir: Maki er Jón Þór Eyþórsson framkvæmdastjóri/verkefna- stjóri. Börn eru Dreki Jónsson (12 ára) og Jaki Jónsson (9 ára). Svipmynd Andrea Róbertsdóttir ins þegar þörf er á sérþekkingu á einhverju sviði, sem fer afskaplega vel saman við þann metnað sem ég hef fyrir hönd félagskvenna um land allt. Það er ekki til eitthvert eitt skapalón fyrir fjölbreyttan hóp félagskvenna FKA en það er raun- veruleiki þarna úti sem sameinar konur og öf lugar deildir, nefndir og ráð ásamt stjórn eru að leggja línurnar um hvernig má uppfylla þarfir á starfsárinu. Hugrekki er smitandi og það er nóg af því innan FKA, sem kemur sér vel á tímum þar sem við lifum frasann: „Life is What Happens to You While You're Busy Making Other Plans“. Hver eru helstu verkefni FKA? Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, er félag fyrir konur sem eru stjórnendur og leiðtogar í íslensku atvinnulífi og nú erum við að hefja nýtt starfsár sem felst í að 1.200 félagskonur eru að bretta upp ermar. Það hefur sýnt sig að þegar vel gengur er tilefni og gefandi að vera í FKA en ekki síður þegar á móti blæs. Þegar konum finnst þær hafa minnstan tíma til að setja sig á dagskrá í lífinu þá er einmitt mesta þörfin fyrir þær að fjárfesta í sér með því að vera í félaginu. Konur eiga að vera duglegar að setja sig í forgang, taka tíma frá fyrir sig og njóta góðs af öf lugu tengslaneti athafnakvenna úr öllum greinum atvinnulífsins sem hægt er að spegla sig í hjá FKA. Hverjar eru helstu áskoranir í starfi FKA? Margvísleg gögn og niðurstöður rannsókna staðfesta valdamis- ræmi kynjanna þannig að misréttið hefur ekki tekið sér frí, því miður, ekkert frekar en COVID-19. Það er óvissa sem einkennir allt lífið, núið er snúið og á sér enga hliðstæðu og það er því í takt við nýja tíma sem FKA heldur áfram að vinna með tengslanet, sýnileika og að vera alvöru hreyfiafl. Við erum öll með kúlu á hausnum við að reyna að fóta okkur á þessum sérstöku óvissutímum og því er mikilvægt að sýna sér og öðrum mildi, vera vakandi, opin fyrir nýjungum og stunda uppbyggilegt sjálfstal. Skrítnir tímar kalla fram oft ýkt, ofsafengin og furðuleg viðbrögð sem verður að anda inn í en á tímum sem þessum er mikilvægt að vera kvikur, vera spíttbátur en ekki olíu- skip, því eins og við sjáum þá er lífið annað í dag en fyrir tveimur vikum og svo verður einhver allt önnur sviðsmynd komin eftir næstu tvær vikur. Sumt er að fara að breytast varanlega, annað tímabundið og þörf er á að hugsa fjölmargt alveg upp á nýtt til að sýna ábyrgð og lágmarka hættu á smitum í sam- félaginu. Það er mikilvægt að hugsa stórt en á sama tíma sjá fegurðina í einfaldleikanum og passa að missa ekki leikinn úr lífinu. Helsta áskor- unin núna er því að vera skapandi jarðýta á nöglum, leyfa sér að gera mistök og vona að bóluefni verði aðgengilegt fyrir allan almenning sem fyrst – því okkur liggur lífið á í orðsins fyllstu merkingu! Já, hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt? Samstarf tveggja íslenskra fyrir-tækja um framleiðslu á ilmandi handspritti hefur nú getið af sér sókn á erlenda markaði. Um er að ræða heilsuvörufyrirtækið Mulier Fortis og áfengisframleiðandann Foss Distillery. Mulier Fortis (sem útleggst „sterk kona“ á íslensku) hefur hingað til selt heilsuvörur á borð við vítamínblöndur, ilm- kjarnaolíur og krem unnið úr haf- þyrnisolíu sem ætlað er að vinna bug á óeðlilegum þurrki í leg- göngum. Foss Distillery hefur fram- leitt ýmsar tegundir sterks áfengis sem einkum hafa höfðað til ferða- manna, svo sem líkjörana Björk og Birki, auk brennivíns og vodka undir vörumerkinu Helvíti. Eftir að áfengiskaup ferðamanna drógust verulega saman seint í vetur stóð Foss uppi með töluvert magn etanóls, eða vínanda, sem ekki þótti hyggilegt að nýta til áfengisfram- leiðslu á þeim tímapunkti. Kom þá til sögunnar áðurnefnd hafþyrnis- olía sem er blandað út í vínandann, auk glýseríns og vatns. Foss nýtir þannig framleiðslulínu sína þessa dagana til að framleiða handspritt með 75 prósenta styrkleika. „Einn af okkar erlendu sam- starfsaðilum í Bretlandi hefur keypt nokkuð magn af handsprittinu af okkur og ætlar að selja undir eigin vörumerki,“ segir Íris Gunnars- dóttir, annar stofnenda og eigenda Mulier Fortis. „Þetta byrjar auðvit- að smátt en við erum nú þegar að sjá töluverðan áhuga frá einni af stóru dagvöruverslunarkeðjunum í Bret- landi líka. Þetta hefur svo spurst út og við erum núna í viðræðum við kaupendur í Hollandi og á Spáni,“ bætir hún við. Talið er að eftirspurn eftir hand- spritti hafi sjöfaldast á heimsvísu á árinu 2020 eftir að COVID-19- heimsfaraldurinn hóf yf irreið sína. Heilbrigðisyfirvöld um allan heim hafa bent á að regluleg sótt- hreinsun á höndum sé skilvirk leið til að hamla útbreiðslu faraldursins, enda eyðir etanól (og önnur alkó- hólsambönd) próteinhjúp COVID- 19-veirunnar sem gerir henni kleift að taka sér bólfestu í öndunarvegi fólks og þannig dreifa sér. Mikil vöruþróun um allan heim hefur átt sér stað á skömmum tíma í handsprittframleiðslu, en ekki eru allar nýframkomnar vörur af sömu gæðum. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur þannig varað neytendur við alls 115 vöru- tegundum handspritts, en við- komandi vörur voru ekki taldar innihalda nægilegt magn alkóhól- sambanda. Talið er að handspritt þurfi að vera af að minnsta kosti 60 prósenta styrkleika til að virka sem skyldi. – thg Íslenskt handspritt hefur innreið sína á erlenda markaði Handsprittið er samstarfsverkefni Mulier Fortis og Foss Distillery. Þetta byrjar auð- vitað smátt en við erum nú þegar að sjá tölu- verðan áhuga frá einni af stóru dagvöruverslunarkeðj- unum í Bretlandi. Íris Gunnarsdóttir, annar stofnenda og eigenda Mulier Fortis 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.