Fréttablaðið - 26.08.2020, Side 39

Fréttablaðið - 26.08.2020, Side 39
MAÐUR VERÐUR AÐ VITA HVENÆR MAÐUR Á AÐ HÆTTA OG ÞAÐ GETUR VERIÐ MJÖG ERFITT ÞVÍ ÞAÐ ER ALLTAF HÆGT AÐ BÆTA AÐEINS VIÐ. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Hverri Everley og Oakley heilsudýnu fylgir vandað Aspen fjallahjól að verðmæti 59.000 kr.* OAKLEY heilsudýnan frá Primo er með vönduð u poka gormakerfi sem veitir mikinn og góðan stuðning. Yfirdýnan er gerð úr mismunandi svamp lögum sem og visco lagi sem aðlagast að líkama þínum og heldur honum í réttri stellingu út nóttina. Oakley heilsudýnan er með kantstyrkingum sem eykur svefnsvæði hennar og end ingu. Oakley er millistíf/ stíf og hentar því breiðum hópi. Ótrúlegt ... en satt! Ti lv al in fe rm in ga rg jö f Oakley og Everley heilsu dýnur (með Aspen fjalla hjóli). Fáanlegar 120, 140, 160 og 180 x 200 cm. Verðdæmi: OAKLEY (30 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 139.900 kr. Verð m/ Classic botni 175.900 kr. Verðdæmi: EVERLEY (35 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 149.900 kr. Verð m/ Classic botni 185.900 kr. EVERLEY heilsudýnan frá Primo er gerð úr 13 gr. pokagormum sem veita hinn fullkomna stuðning. Stífir kantar auka svefnsvæði dýnunnar. Yfirdýnan er þykk og þægileg og gerð úr nokkrum mismunandi svamplögum. Viscolag gefur líkamanum þann stuðn ing sem hann þarf. Dýnan er mýkri á axlar- og mjaðmasvæði til að líkami þinn fái eins náttúru lega sveigju og mögulegt er. Everley er millistíf/ mjúk og ein vinsælasta dýna Primo. 59.000 kr. fylgir með Oakley & Everley heilsu- dýnum ASPEN fjallahjól að verðmæti * á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála. ASPEN 26" FJALLAHJÓL • 26" • 21 gír • demparar á framöxli • diskabremsur að framan og aftan • standari • glitaugu www.dorma.is SENDUM FRÍTT Davíð Örn Halldórs­son sýnir verk á sýningunni Ókei, Au pair sem nú stendur yfir í Hverfisgalleríi. Davíð Örn útskrif­ aðist af myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2002 og hefur síðan þá mestmegnis unnið við málverk. Hann hefur haldið fjölda einkasýn­ inga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis. Hann hlaut árið 2014 Carnegie Art Award styrk í f lokki ungra listamanna. Eins konar heilagleiki Davíð Örn hefur unnið með óhefð­ bundnar málunaraðferðir; málað og spreyjað með mismunandi máln­ ingu á fundna hluti, eins og viðar­ plötur, póstkort og húsgögn. Um verkin á þessari sýningu segir hann: „Við gerð þeirra notaði ég iðnaðarlakk og spreymálningu sem ég málaði á viðarplötur sem ég fann úti á víðavangi. Ég hef verið að prófa nýtt efni, f ljótandi plastefni sem ég kynntist í Þýskalandi. Með notkun á því get ég breytt þessum grófu fundnu hlutum í eitthvað aðeins fínna. Það skapast eins konar heilagleiki þegar búið er að hjúpa grófar hilluviðareiningar gegn­ særri kvoðu. Allt svo fallegt þegar það glansar og gljáir.“ Litir og tækni Verkin eru af mismunandi stærðum og afar litrík. „Það hefur alltaf verið viss litagleði í verkum mínum. Á þessari sýningu er ég að vissu leyti að flagga minni fagurfræði. Ég er að prófa mig áfram með liti og tækni sem ég hef þróað í gegnum árin. Litirnir eiga að sýna að í verkunum eru margar hugmyndir í gangi í einu og ótal aðgerðir. Það er ákveðin hætta á að ofvinna myndirnar. Maður verður að vita hvenær maður á að hætta og það getur verið mjög erfitt því það er alltaf hægt að bæta aðeins við. Þrí­ hyrningur er einfaldasta formið sem heldur jafnvægi. Þess vegna birtast oft þríhyrnd form í nýjustu verkunum eins og til að minna mig á jafnvægið í verkunum og hvenær sé best að ganga frá þeim.“ Davíð Örn hefur búið í Stuttgart í tvö og hálft ár. „Ég var mjög hepp­ inn. Ég er í samfloti með öðru lista­ fólki sem deilir með mér gamalli lögreglustöð sem við breyttum í vinnustofu. Þetta er fólk á mis­ munandi aldri og í gegnum það er ég að kynnast listalífinu í Stuttgart. Eftir þessa sýningu ætla ég að setja meira púður í að setja mig inn í lista­ lífið þar og gerast þátttakandi í því.“ Margar hugmyndir og ótal aðgerðir í gangi í einu Davíð Örn Halldórsson sýnir verk sín í Hverfisgalleríi. Notar iðnaðarlakk og spreymálningu á viðarplötur. Litagleði ein- kennir verkin. Segist vera að flagga fagurfræði sinni. Ég er að prófa mig áfram með liti og tækni, segir Davíð Örn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Þann 29. og 30. ágúst næst­komandi mun hið alþjóðlega leikfélag Reykjavik Ensemble sýna nýja samsköpunarverkið Ég kem alltaf aftur. Viðburðurinn er leikhúsgjörningur tileinkaður minn­ ingu og leikhúsarfleifð pólska leik­ húshöfundarins Tadeusz Kantor, en hann var gestur Listahátíðar fyrir 30 árum með framúrstefnuleikhópi sínum Cricot2, þar sem þau sýndu Ég kem aldrei aftur. Verkefnið er samsköpunarverk í vinnslu eftir Pálínu Jónsdóttur leikstjóra í samvinnu við pólska listamenn á Íslandi. Efniviður­ inn er unninn upp úr rannsókn á áfallasögu pólskra einstaklinga og pólsku þjóðarinnar undir yfir­ skriftinni: Að heiman í annan (íslenskan) heim. Gjör ning ur inn mun leika á mærum leikhúss, gjörninga, mynd­ listar og tónlistar sem eru sömu leikhúslögmál er einkenndu verk Kantors. Ég kem alltaf aftur Pálína Jónsdóttir leikstjóri. Ég kem alltaf aftur Leikhúsgjörningurinn fer fram í Klúbbi Listahátíðar í Reykjavík (Iðnó): Lau. 29. ágúst kl. 16.00 Lau. 29. ágúst kl. 18.00 Sun. 30. ágúst kl. 16.00 Sun. 30. ágúst kl. 18.00 Aðgangur er ókeypis Fimmtudaginn 27. ágúst verða fluttar óperuaríur úr óperum Verdis á hádegistónleikum í Fríkirkjunní Reykjavík. Flytjendur eru Guðbjörg Tryggvadóttir sópran og Antonia Hevesí píanóleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Ekki er tekið við greiðslukortum. Verdi í Fríkirkjunni FIMMTUDAGINN 27. ÁGÚST VERÐA FLUTTAR ÓPERUARÍUR ÚR ÓPERUM VERDIS. Giuseppe Verdi. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.