Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 39
INFORMATION ASSISTANT
(NEW MEDIA)
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu Information
Assistant (New Media) lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2020.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment
Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Information Assistant (New Media).
The closing date for this postion is September 6, 2020.
Application instructions and further information can be
found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through Electronic
Recruitment Application (ERA)
Vélstjórar-Rafvirkjar-
Vélvirkjar
Við leitum að öflugum
liðsmanni í þjónustudeild
Kælitækni í framtíðarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt starf í
viðhaldi og uppsetningu tækja
tengdum kæli- og frystibúnaði.
Leitum eftir laghentum,
duglegum og sveigjanlegum
starfsmanni, með góða færni í
mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Vilhjálmur Vagn í síma
777-1901 eða á
villi@kaelitaekni.is
Fyllsta trúnaðar heitið.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Leitað er eftir leiðtoga með kraft og metnað til að vinna að markmiðum stofnunarinnar. Náttúrufræðistofnun Íslands stundar
m.a. undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og annast skipulega heimildasöfnun um náttúru
Íslands. Stofnunin hefur víðtækt vöktunar- og fræðsluhlutverk.
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til fimm ára í senn. Forstjóri stýrir stofnuninni,
mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á rekstri hennar. Hjá stofnuninni starfa um 55 starfsmenn.
Helstu verkefni stofnunarinnar eru:
• Stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Íslands
• Varðveita náttúrugripi og vísindaleg heimildasöfn
• Skrá kerfisbundið einstaka þætti íslenskrar náttúru
• Vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru
• Öflun og miðlun upplýsinga og þekkingar sem varða
íslenska náttúru
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun með meistaragráðu sem nýtist í starfi
• Þekking á verksviði stofnunarinnar
• Reynsla af stjórnun- og rekstri
• Reynsla af vinnu við stefnumótun og áætlanagerð
• Leiðtogahæfileikar og hæfni til að leiða fólk til samvinnu
og árangurs
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Gott vald á íslensku og góð kunnátta í ensku
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur
sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættið. Þriggja manna valnefnd skipuð af umhverfis-
og auðlindaráðherra metur hæfni og hæfi umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið uar@uar.is.
Nánari upplýsingar um starfið eru á Starfatorgi – starfatorg.is.
Upplýsingar um embættið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri
í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (sigridur.arnardottir@uar.is).
Forstjóri
Náttúrufræðistofnunar Íslands
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára