Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 82
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Við fáum alltaf einhverja smala
sem ekki eru búsettir á svæðinu
og í ár hefur verið mælst til þess
að það fólk gæti sín afar vel og
fari helst í sjálfskipaða sóttkví
fyrir safn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Þökkum kærlega vinarhug, stuðning
og samúð vegna andláts okkar
ástkæra
Árna Björns Jónassonar
verkfræðings,
Skjólbraut 18, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fá björgunarsveitir
á Norðurlandi, Hjálparsveit skáta Reykjadal og
Landhelgisgæsla Íslands.
Fjölskylda Árna Björns
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Svana Jörgensdóttir
er látin. Dánardægur var 23. ágúst og
hefur fjölskyldan þegar kvatt hana með
athöfn í kyrrþey.
Gunnar Torfason
Laufey Gunnarsdóttir Jóhann Heiðar Jóhannsson
Anna Úrsúla Gunnarsdóttir
Nanna Dís og Jóhanna
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Inga G. Magnúsdóttir
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Höfða, Akranesi,
lést miðvikudaginn 26. ágúst.
Fríða Sigurðardóttir Þórður Þ. Þórðarson
Kristinn Jakob Reimarsson
Guðrún Kristín Reimarsdóttir Aðalsteinn Víglundsson
Inga Snæfells Reimarsdóttir
Linda Reimarsdóttir Sveinn Ómar Grétarsson
Pétur Reimarsson Hera Sigurðardóttir
Gréta R. Snæfells
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Mér líst bara vel á þessar reglur. Svo þurfum við bara að laga okkar aðstæður sem best má vera að þeim. Það er gott að
fá eitthvað til að miða við,“ segir Heiða
Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi á Ljótarstöð-
um í Skaftártungu, um minnisblað sem
Samband sveitarfélaga hefur sent út um
sóttvarnir í göngum og réttum hausts-
ins. „Við fáum alltaf einhverja smala sem
ekki eru búsettir á svæðinu og í ár hefur
verið mælst til þess að það fólk gæti sín
afar vel og fari helst í sjálfskipaða sóttkví
fyrir safn,“ bætir hún við.
Smalar þurfa jafnan að gista í skálum.
Skyldi ekki vera legið þétt þar og þröngt
setinn bekkurinn, eða hvað? „Á Skaftár-
tunguafrétti erum við svo heppin að
vera með stórt gangnamannahús á
tveimur hæðum,“ lýsir Heiða. „Áður
var hesthús á neðri hæðinni en þar sem
húsið er notað sem gistihús yfir sumar-
tímann var neðri hæðinni fyrir nokkru
breytt í gistiaðstöðu með eldhúskrók og
langborði, áþekkt því sem er á efri hæð-
inni. Við munum því geta dreift okkur
á tvær hæðir og getum bæði sofið og
matast án þess að vera í mikilli nálægð
við hvert annað.“
Ekki mega fleiri en 100 manns mæta í
hverja rétt, samkvæmt nýju reglunum.
Heiða segir fólksfjöldann í Grafarrétt í
Skaftártungu fara langt fram yfir það í
venjulegu ári – en undir þann leka hafi
verið sett. „Fjallskilanefnd hefur gefið út
reglur um að ekki mæti fleiri í réttina en
fimm fullorðnar manneskjur frá hverju
lögbýli í sveitinni og þannig mun fjöld-
inn verða undir 100 þetta árið,“ útskýrir
hún.
Heiða segir féð búið að vera sex til níu
vikur á fjalli núna um mánaðamótin.
„Upprekstrarleyfi á Skaftártunguafrétt
og heiðarnar komu frá Landgræðslunni
rétt fyrir mánaðamót júní, júlí og þá
fóru bændur að tína féð í rólegheitum til
fjalla. Miðað er við að það taki um tvær
vikur svo kindurnar dreifi sér sem best
og ekki skapist álag á landið á sleppi-
svæðunum.“
Þegar kemur fram í ágúst segir Heiða
alltaf einhverjar kindur fara að tínast
heim aftur. „Í dag, 28. ágúst, fórum við
nokkur og smöluðum saman því fé sem
var komið hér heim undir efstu bæi. Það
er nú komið til síns heima, vænt og vel
fram gengið eftir þetta einstaklega góða
og hagfellda sumar sem við höfum notið
hér á þessu landsvæði.“
Fyrstu smalar halda til fjalla á föstu-
daginn eftir viku, 4. september, að
sögn Heiðu, og allur hópurinn verður
kominn inn í afrétt mánudaginn 7. „Til
byggða komum við svo, ef ekki verða
tafir vegna veðurs, föstudaginn 11. og
réttum þann dag og laugardaginn 12.,“
segir hún.
En óttast Heiða að COVID-19 muni
spilla gleðinni í göngum haustsins?
„Ánægjan sem fylgir skemmtilegri
samvinnu fólks í erfiðri en skemmti-
legri vinnu í stórkostlegu umhverfi
verður söm og vanalega og eins gleðin
yfir því að hitta aftur kindurnar sínar,“
svarar hún. „En það verður auðvitað
skrýtið að fá ekki á svæðið allt það fólk
og þann gleðskap sem alltaf fylgir þess-
ari hátíð, réttarhelginni. Það verður
auðvitað miklu færra fólk í lögréttinni
og ekki hægt að láta ganga vasapela eða
neftóbakshorn. Svo verður ekkert rétt-
arball, sem er nú vanalega ein aðalsam-
koma ársins. Það er auðvitað hábölvað,
en við verðum þá bara að syngja hærra
og dansa meira á næsta ári!“
gun@frettabladid.is
Ekkert réttarball í ár
Sérstakar sóttvarnareglur hafa verið gefnar út í sambandi við göngur og réttir. Bændur
þurfa að kynna sér þær og það hefur Heiða fjalldalabóndi á Ljótarstöðum gert.
„Við verðum bara að dansa meira og syngja hærra á næsta ári,“ segir Heiða Guðný sem heldur í hundinn Fífil. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Merkisatburðir
1945 Hafin er bygging húss fyrir Þjóðminjasafn við Hring-
braut – „morgungjöf lýðveldisins til þjóðarinnar“.
1948 Baldur Möller er skákmeistari Norðurlanda, fyrstur
Íslendinga.
1971 Kirkjan á Breiðabólstað á Skógarströnd verður eldi
að bráð og á sama tíma kviknar í bíl sóknarprestsins.
1992 Kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu
Jóhannesdóttur er frumsýnd. Hún fjallar um strand
franska rannsóknaskipsins Pourquoi pas?
1993 Listasafnið á Akureyri tekur til starfa.
2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT