Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 67
Við leggjum
mikið upp úr
því að byggja
upp langtíma-
samband við
viðskiptavini
og tryggja sam-
fellu í þekkingu
á verkefnum
sem við vinnum
þannig að
viðskiptavinir
geti leitað til
okkar aftur
þegar kemur
að viðhaldi og
frekari þróun á
eldri kerfum,“
segir Erling
Brynjólfsson,
framkvæmda-
stjóri Kvikna
Consulting.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Hugbúnaðarfyrirtækið Kvikna er tólf ára gamalt og sérhæfir sig í tækni-
legum hugbúnaði. Fyrir tveimur
árum var Kvikna skipt upp í
tvö fyrirtæki: Kvikna Medical
og Kvikna Consulting, þar sem
starfsemi fyrirtækisins var í raun
tvíþætt, segir Erling Brynjólfs-
son, framkvæmdastjóri Kvikna
Consulting. „Kvikna Medical
vinnur að þróun og sölu á skýja-
lausn fyrir heilaritsupptökukerfi.
Kerfið gerir sjúklingum kleift að
vera heima hjá sér meðan heilarit
er tekið upp, á meðan læknar fá
aðgang að öllum gögnum með
skýjalausninni. Kvikna Consulting
einbeitir sér hins vegar að þróun
hugbúnaðar fyrir önnur fyrirtæki,
þá helst norsk tæknifyrirtæki sem
eru tengd olíuiðnaðinum, en einn-
ig fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum.“
Þær lausnir sem hann og aðrir
starfsmenn Kvikna Consulting eru
að vinna að, eru oft og tíðum að
meðhöndla stóra gagnastrauma,
til dæmis af myndböndum og
sónarmyndum. Þá þarf að beita
sérhæfðum aðferðum við geymslu
og greiningu gagnanna segir hann.
„Aðkoma okkar hefur verið að
þróa hugbúnað sem notaður er
til samskipta við tæki og gagna-
söfnunar frá þeim. Dæmi um
vörur sem við höfum komið að, er
búnaður til myndunar á olíubor-
holum að innan, neðansjávarsónar
og upplýsingakerfi til að ná tökum
á olíuleka á sjó. Einnig má nefna
að við erum í nánu samstarfi við
norskt fyrirtæki, Norbit, sem
þróar og framleiðir rafeindatækni,
en vörur á þeirra vegum eru t.d.
neðansjávarfjölgeislasónar og
vegatollamerki fyrir bíla.“
Árangursríkt samstarf
Hann segir að þeir geirar sem
fyrirtækið starfi í leggi mikið upp
úr áreiðanleika og gæðum og til
að mynda hafi verið byggt upp
gæðakerfi í fyrirtækjunum, til
að uppfylla staðla um þróun og
framleiðslu á lækningatækjum.
„Við leggjum mikið upp úr því að
byggja upp langtímasamband við
viðskiptavini og tryggja samfellu
í þekkingu á verkefnum sem við
vinnum að, þannig að viðskipta-
vinir geti leitað til okkar aftur
þegar kemur að viðhaldi og frekari
þróun á eldri kerfum.“
Fyrir ári síðan hófst samstarf
Kvikna Consulting og Trefja í
Hafnarfirði. „Samstarfið hefur
verið mjög árangursríkt og er gott
dæmi um það þegar tvö fyrirtæki
úr ólíkum geirum leggja saman
reynslu sína. Afraksturinn er
heitapottsstýring fyrir snjalltæki
sem kemur á markað bráðlega,
en einnig stærra þróunarverkefni
fyrir sjálfvirkan andveltitank fyrir
báta en saman fengu fyrirtækin
úthlutað styrk frá Tækniþróunar-
sjóði í vor vegna þess verkefnis.“
Mörg tækifæri ónýtt
Erling segist sjá fram á fjölgun
íslenskra viðskiptavina á næstu
árum, með því að vinna með
þeim hugbúnaðarlausnir sem
krefjast tækniþekkingar á háu
stigi. Um er að ræða verkefni
sem krefjast gæðahugbúnaðar,
skilnings á líkönum og reikni-
ritum, sem og sérhæfðri rafeinda-
tækni. „Tækniframfarir hafa átt
sér stað á síðustu árum, ekki bara
sem auðvelda skýjalausnir hvers
konar, heldur einnig á sviði raf-
eindatækni. Nú er unnt að búa til
stýringar og gagnasöfnunartæki
sem hafa miklu meira reikniafl en
áður, eru mun minni og þurfa mun
minni orku. Með því að samþætta
þessa nýju tækni er hægt að gera
hluti sem voru aðeins draumur
fyrir bara fimm árum síðan.
Mjög mörg tækifæri eru ónýtt á
þessu sviði og við munum virkja
þá reynslu og sérþekkingu sem
safnast hefur hjá starfsmönnum
fyrirtækisins til þróunar á nýjum
vörum og tækni. Hjá okkur starfar
vel menntað fólk og með mikla
reynslu af hugbúnaðargerð,
líkanagerð, gagnagreiningu og
gervigreind, auk þess að vera með
bakgrunn í verkfræði, eðlisfræði
og stærðfræði.“
Áskoranir fram undan
Erling segir mörg íslensk fyrirtæki
eiga eftir að laga sig að breyttum
heimi samfara fjórðu iðnbylting-
unni. „Í heimi sem er samtengdur
er möguleiki á að safna miklu
magni gagna víða að á einn stað,
til dæmis um framleiðsluferli
eða rekstur. Gögnunum er síðan
breytt í upplýsingar með nýjustu
gagnagreiningaraðferðum og
skýrri framsetningu, til að bæta
ferla og auka hagkvæmni. Þetta
verður áskorun fyrir atvinnulífið
og hugbúnaðargeirann hér á landi
á næstu misserum.“
Margt vel gert
Erling er nokkuð ánægður með
starfsumhverfi nýsköpunarfyrir-
tækja á Íslandi. „Þar má nefna
framboð af vel menntuðu starfs-
fólki, aukin framlög í styrkjasjóði
Rannís og það nýjasta, hækkað
endurgreiðsluhlutfall af þróunar-
kostnaði í gegnum skattkerfið,
sem munar mikið um. Það sem er
verst í starfsumhverfinu er óstöð-
ugur gjaldmiðill. Tæknifyrirtæki
hafa flest stærstan hluta tekna
sinna erlendis frá, á meðan kostn-
aðurinn er í íslenskum krónum,
sem skapar óvissu í rekstrinum og
mikinn kostnað sem kemur ekki
síst fram í glötuðum tækifærum
og minni samkeppnishæfni.“
Mörg ónýtt tækifæri bíða úrlausnar
Um tólf ára skeið hefur hugbúnaðarfyrirtækið Kvikna sérhæft sig í tæknilegum hugbúnaði. Mörg
spennandi verkefni bíða úrlausnar á innlendum og erlendum mörkuðum.
Kvikna hannar sérhæfð rafeindatæki til stýringar og gagnaöflunar. Hugbúnaður sem safnar og greinir mikið magn af sónarmyndum.
KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 NÝSKÖPUN Á ÍSLANDI