Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 44
Nýjar leiðir - Nýjar áskoranir
Langar þig að finna nýjar
leiðir til að takast á við
nýjar áskoranir?
Við hjá Krabbameinsfélaginu lýsum
eftir hæfileikaríkum eldhuga til að stýra
og vinna að kynningarmálum félagsins
í öflugu teymi sérfræðinga við fræðslu,
fjáröflun og miðlun af öllu tagi.
Starfið er mjög spennandi og fjölbreytt
og hverfist í kringum markmið félagsins
og aðildarfélaga þess, sem eru að fækka
þeim sem fá krabbamein, draga úr
dauðsföllum af völdum krabbameina og
bæta lífsgæði þeirra sem fá sjúkdóminn
og aðstandenda þeirra.
Í starfinu eru gerðar ríkar kröfur um
frumkvæði og sjálfstæði í starfi, góða
samskiptafærni og vilja til að vinna í
teymi.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af
kynningarmálum, skrifum frétta, notk
un samfélagsmiðla, samskipt um við
fjölmiðla og kunna á algeng an hugbúnað
í tengslum við miðlun í víðu samhengi,
þar með talið hljóð og mynd. Gott vald á
íslensku máli er alger nauðsyn og góð
þekking á ensku og norðurlandamáli er
æskileg. Viðkomandi starfsmaður þarf
að vera skipulagður, skapandi, sveigjan-
legur og með mikinn faglegan metnað.
Umsóknir, ásamt náms- og starfs feril-
skrá, skal senda Höllu Þorvaldsdóttur,
framkvæmdastjóra Krabbameins-
félagsins, á netfangið halla@krabb.is,
í síðasta lagi 13. september nk. Halla
veitir einnig nánari upplýsingar.
Skólastjórastöður í nýjum skólum
Sveitarfélagið Árborg er ört stækkandi sveitarfélag þar sem
áhersla er lögð á öflugt skóla- og frístundastarf og góða vel-
ferðarþjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna
að því að styrkja heildstæða nærþjónustu við börn, foreldra
og skóla. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, góð tengsl
skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í
anda lærdómssamfélagsins.
Nú er komið að því að opna tvo nýja skóla á Selfossi. Annars
vegar leikskólann Goðheima sem áætlað er að opna í mars
2021 og hins vegar nýjan grunnskóla sem opnar haustið
2021. Þar er nafnasamkeppni í gangi. Við höfum þörf fyrir
öfluga stjórnendur og munum ráða bæði leikskólastjóra
og skólastjóra frá og með 1. janúar 2021. Þeir koma að allri
undirbúningsvinnu og faglegu samstarfi í tengslum við
opnun skólanna. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum
sem búa yfir leiðtogahæfni og mikilli reynslu og þekkingu á
skólastarfi.
Leikskólastjóri Goðheima
Meginverkefni
• Stýra og bera ábyrgð á undirbúningi á stofnun skólans,
m.a. ráðningu starfsfólks
• Veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og
rekstri skólans
• Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal
annars mið af menntastefnu sveitarfélagsins og
aðalnámskrá leikskóla
Menntun og hæfnikröfur
• Leikskólakennararéttindi áskilin
• Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða kennslu ungra barna
er mikill kostur
• Leiðtoga- og skipulagshæfileikar
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Áhugi og hæfni í starfi með börnum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Skólastjóri nýs grunnskóla á Selfossi
Meginverkefni
• Stýra og bera ábyrgð á undirbúningi á stofnun skólans,
m.a. ráðningu starfsfólks
• Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri
skólans
• Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal
annars mið af menntastefnu sveitarfélagsins, skýrslu
undirbúningshóps og aðalnámskrá grunnskóla
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla í grunn-
skóla er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslu-
fræði er mikill kostur
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Þekking á teymiskennslu og sveigjanlegu skólastarfi er
mikill kostur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um störfin
Umsóknarfrestur er til 13. september 2020. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og KÍ v/SÍ og FSL. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á
stefnu Árborgar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá
sveitarfélaginu.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri
fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is Sími 480-1900.
Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf og
rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og framtíðarsýn um-
sækjanda varðandi þróun skólastarfs. Umsókn ásamt fylgi-
gögnum skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins
http://starf.arborg.is/
Ert þú
raforku-
verkfræðingur
Við hjá Norconsult leitum að
rafmagnsverkfræðingum í
öfluga raforkuteymið okkar.
Helstu kostir:
• Þekking á sviði háspennukerfa, dreifikerfa og liðaverndar
• Reynsla af hönnun tengivirkja eða annarra flutningsmannvirkja
• Reynsla af kerfisathugunum og líkanagerð
• Reynsla af forritun og gagnagrunnum
• Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu, miðla henni og leysa
krefjandi verkefni víða um heim
• Gott vald á einu Norðurlandamáli er kostur
Norconsult ehf er í eigu norska ráðgjafafyrirtækisins Norconsult AS.
Hjá Norconsult starfa um 4.800 starfsmenn, þar af 400 á orkusviði.
Norconsult AS er með starfstöðvar víða um heim, frá Kirkenes í Norður-
Noregi til Auckland á Nýja Sjálandi. Fyrirtækið vinnur að úrlausn spennandi
verkefna á öllum spennustigum innanlands og erlendis í samvinnu við
viðskiptavini og félög innan samsteypunnar. Í boði eru fjölbreytt og
áhugaverð verkefni sem spanna allt frá hönnun raforkuflutningsmannvirkja
til hugbúnaðarþróunar.
Norconsult ehf á Íslandi er rótgróið fyrirtæki þar sem starfsmenn vinna
saman í sterkri liðsheild og því er þetta einstakt tækifæri fyrir réttan aðila
til að starfa hjá fyrirtæki á alþjóðlegum vettvangi.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Páll Hauksson: bjarni.hauksson@norconsult.com
eða í síma + 45 25 40 74 28.
Umsóknir sendist á Birnu Eggertsdóttur: birna.eggertsdottir@norconsult.com
Tekið verður á móti umsóknum til 14. september nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R