Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 41
Skólastjóri Auðarskóla
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is)
Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn-
og tónlistarskóli með um 100 nemendur.
Við skólann starfa um 35 manns.
Gildi skólans eru:
Ábyrgð - Ánægja - Árangur
Í Dalabyggð búa um 650 manns, þar af
um 40% í Búðardal. Sveitarfélagið nær
frá Álftafirði á Snæfellsnesi til Gilsfjarðar
á mörkum Vestfjarða og býr yfir mikilli
náttúrufegurð.
Dalabyggð er friðsælt og rótgróið
samfélag, hlaðið sögu og menningu.
Nánari upplýsingar um þjónustu
sveitarfélagsins er að finna á: www.dalir.is
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum
áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Gert er ráð fyrir að skólastjóri verði búsettur í Dalabyggð.
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis-
og kennslufræða er æskileg
• Farsæl stjórnunar- og kennslureynsla og reynsla af
leik- og/eða grunnskólastarfi
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á þróun og
nýjungum í skólastarfi
• Lipurð í samstarfi, sveiganleiki og framúrskarandi
hæfni í mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og
lausnamiðun í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stýrir og ber faglega ábyrgð á starfsemi skólans í
samræmi við gildandi stefnu
• Ábyrgð á daglegum rekstri og yfirumsjón með
fjármálum og rekstrarlegum skuldbindingum skólans
• Forysta í mótun og eftirfylgni með stefnu skólans í
samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá
grunnskóla og lög um grunnskóla
• Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og
vinnutilhögun
• Stuðlar að góðum skólabrag og samstarfi skóla og
samfélags
• Dagleg umsjón og umráð skólamannvirkja
• Leiðir og hvetur starfsfólk með það að markmiði að
tryggja sem best samskipti og gagnkvæmt traust
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Laust er til umsóknar embætti skólastjóra Auðarskóla í sveitarfélaginu Dalabyggð. Skólastjóri ber faglega
ábyrgð á starfsemi skólans og hefur forystu um að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að og eflir áhuga
nemenda á námi og að þeir nái sem bestum árangri á öllum sviðum skólastarfsins.
Stefnt er að ráðningu í stöðuna frá og með 1. nóvember næstkomandi eða eftir samkomulagi.
Viltu skapa verðmæti?
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Matís leggur áherslu á hagnýtar
rannsóknir sem auka verðmæti íslenskrar
matvælaframleiðslu, stuðla að öryggi og
heilnæmi afurða og sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda.
Hjá Matís starfar kraftmikill hópur sem
brennur fyrir því að finna nýjar leiðir til að
hámarka nýtingu hráefnis, auka sjálfbærni
og efla lýðheilsu.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.matis.is
Um er að ræða nýja stöðu í miðlunarteymi Matís og því tækifæri til mótunar á starfinu.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
• Reynsla af gerð og framsetningu efnis á mismunandi
miðlum
• Menntun sem nýtist í starfi kostur
• Góð hæfni í textagerð á íslensku og ensku
• Samskiptahæfni og áhugi á fólki
• Sjálfstæði, hugmyndaauðgi og drifkraftur
Menntunar- og hæfniskröfur:Starfssvið:
Matís ohf. leitar að framúrskarandi textasmið sem getur sett flóknar upplýsingar fram á skýran og lifandi
hátt. Um er að ræða fullt starf á starfsstöð Matís á Akureyri.
Matís stundar rannsóknir og veitir þjónustu sem skapar
verðmæti, eykur matvælaöryggi og lýðheilsu í þágu
iðnaðar og almennings.
Til þess að auka áhrif af starfi Matís leitum við að
einstaklingi sem getur miðlað flóknum upplýsingum
á skýran hátt með þeim miðlum sem eru best til
þess fallnir, t.d. sem frétt á heimasíðu, innlegg á
samfélagsmiðlum, myndbönd eða eftir öðrum leiðum.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0