Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 88
Lestrarhestur vikunnar Huginn Róbertsson Flóvenz
„Hvað skyldi þetta nú
vera,“ sagði Konráð og
tók upp pappírsblað
með tölustöfum og
dýramyndum sem
hann sá liggja á jörðinni.
„Mér sýnist þetta vera
stærðfræðiþraut,“
sagði Lísaloppa.
„En þessi þrjú dýr eru
ekki tölustafir, svo það
getur nú varla verið,“
sagði Konráð. „Það er nú
einmitt þrautin,“ sagði
Lísaloppa. „Að finna
út fyrir hvaða tölustafi
þessi þrjú dýr standa,
svo þessi fjögur dæmi
gangi upp,“ bætti hún
við. Kata horfði hugsi á
stærðfræðiþrautina og
sagði, „þvottabjörn, plús
mús, mínus fjórir, eru
sex?“ Konráð horfði líka
hugsi á þrautina. „Heyrðu
mig nú,“ bætti Kata við
önug. „Þvottabjörn,
mínus ugla, plús ...“
Hún stoppaði í miðri
setningu. „Þetta er
ómögulegt að reikna,
hvernig er hægt að draga
uglu frá þvottabirni?“
Lísaloppa kímdi. Svona
þraut var henni að skapi
ólíkt Kötu.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
418
Getur þú reiknað út fyrir hvaða tölustafi dýrin þrjú standa
?
?
?
7
6
6
6
6
1
1
4
3
Lausn á gátunni
Músin er 2, uglan er 5 og þvottabjörninn 8 ?
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar, Huginn?
Mér finnast ofurhetjubækur
skemmtilegastar en Spiderman
er uppáhalds ofurhetjan mín.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún?/Hvaða bók var
síðast lesin fyrir þig? Skúli
skelfir, í bókinni stalst hann til
að horfa á hryllingsmynd. Það
hef ég aldrei gert.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Ætli ég lesi ekki næst
þessa bók sem ég var að vinna.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Kannski myndi
ég skrifa sögu um skólann en ég
er byrjaður í 2. bekk.
Ef þú mættir velja þér persónu
úr bók til að ferðast um Ísland
með, hver væri hún? Ég myndi
velja að ferðast með ofurhetju,
en veit ekki alveg hvaða ofur-
hetju samt.
Hvernig munduð þið ferðast?
Við mundum ferðast í bíl.
Rama Mohamad, níu ára, og Raman
Mohamad, sjö ára, eru að koma úr
skólanum þegar ég hitti þau með
mömmu sinni. Þau eru í Háteigs-
skóla í Reykjavík og eru að ljúka
degi tvö á þessu hausti.
Finnst ykkur gaman í skólanum?
Rama: „Já, það er gaman,“ segir hún
strax og þarf ekki að hugsa sig um.
Bróðir hennar kinkar kolli til merk-
is um að hann sé sammála. „Ég er í
öðrum bekk,“ upplýsir hann.
Hvað voruð þið að gera?
Rama: „Ég var að leika úti með
vinum mínum og líka læra um nátt-
úru og á morgun verður enska. Í gær
vorum við úti að leika í skotbolta.
Frá hvaða landi komuð þið til
Íslands?
Rama: Við komum frá Írak til
Íslands árið 2016.
Munið þið eftir því þegar þið
áttuð heima í Írak?
Rama: Já, ég man eftir því og ég er
líka búin að fara þangað í heim-
sókn.
Eigið þið ömmur og afa úti í Írak?
Rama: Já, margar ömmur og marga
afa.
Skrifa þau ykkur stundum kort
eða bréf?
Rama: Nei, bara í símanum.
Þið eruð dugleg að læra íslensku,
er ekki talað annað tungumál
heima hjá ykkur?
Rama: Jú, við tölum ensku og arab-
ísku heima og pínulítið íslensku.
Eigið þið íslenska vini?
Rama: Já, ég á nokkra vini, það eru
Rósa og Tekla, Matthildur, Elísa-
bet, Soffía og Thia. Þær eru allar í
Háteigsskóla. Það er gaman að tala
við þær og leika.
Hvað heitir besti vinur þinn,
Raman?
Raman: Þeir eru tveir, Ísak og Máni.
Hvaða matur er í uppáhaldi hjá
ykkur?
Rama: Spagettí.
Raman: Minn besti matur heitir
dolma, það er arabískur matur,
grænmeti með hrísgrjónum, kjöti
og góðu kryddi.“
Hafið þið eitthvað ferðast um
Ísland í sumar?
Rama: Já, ég sá Vík og ég sá Selfoss,
líka Keflavík og svo Akureyri.
Raman: Mér finnst best að sofa í
bílnum. (Hann er líka augljóslega
orðinn þreyttur núna og langar að
fara að hvíla sig eftir skóladaginn).
Finnst best
að sofa í bílnum
Rama og Raman þykir gaman í skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Það er
bók um Skósveinana.
Ferðu oft á bókasafnið? Ég hef
komið hingað pínu oft.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Við pabbi förum oft í hjólatúra,
stundum mjög langt.
Í hvaða leikskóla/skóla ertu?
Laugarnesskóla.
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bókabeitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin
í bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók
að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR