Fréttablaðið - 24.09.2020, Page 48
Það virðist vera
þverpólitísk sam-
staða um að fara í þessar
framkvæmdir á
þessum tíma-
punkti.
Hannes S. Jóns-
son, formaður KKÍ
AÐSTÖÐUMÁL Fram kemur í skýrslu
sem starfshópur um þjóðarleik-
vang fyrir inniíþróttir hefur skilað
að fyrsta val starfshópsins væri að
sá leikvangur sem fyrirhugað er að
byggja verði staðsettur í Laugar-
dalnum.
Enn fremur kemur fram í skýrsl-
unni að sú staðsetning sem starfs-
hópurinn hefur helst í huga sé
vestan við svæði Þróttar. Þar gæti
mannvirkið fallið inn í landslagið
auk þess sem aðgengi að húsi á þeim
stað væri mjög gott og bílastæði séu
fyrir hendi að hluta.
Þá má nefna lóð sem liggur sam-
hliða Suðurlandsbraut, bæði austan
við Laugardalshöll svo og lóð milli
Suðurlandsbrautar og Laugardals-
hallar. Rekstrarfélag Laugardals-
hallar hefur gert uppdrátt af húsi á
lóð sem liggur á milli Suðurlands-
brautar og Laugardalshallar sem
rekstrarfélag Laugardalshallar lét
gera. Samkvæmt þeim teikningum
myndi slíkt hús rúma 5.300 áhorf-
endur. Hús á þeim stað gæti einnig
samnýst Laugardalshöll sem sýn-
ingarhöll.
Kostir við framangreinda stað-
setningu eru að góð aðkoma er frá
Suðurlandsbraut og nálægð við
Laugardalshöll, sem getur verið
kostur ef samnýta þarf húsin í því
að byggja leikvanginn í Laugardaln-
um í kringum núverandi mannvirki
sem til staðar eru við Laugardals-
höllina.
Mennta- og menningarmálaráð-
herra skipaði starfshópinn til þess
að afla upplýsinga um kröfur sem
gerðar eru til mannvirkja sem hýsa
alþjóðlega leiki og mót, auk þess að
greina þarfir fyrir slíkt mannvirki
hérlendis. Í starfshópinn voru skip-
aðir aðilar úr ráðuneytinu, Reykja-
víkurborg, Íþrótta- og Ólympíu-
sambandi Íslands (ÍSÍ) auk fulltrúa
Handknattleikssambands Íslands
og Kör f u k nat t leik ssambands
Íslands.
Starfshópurinn af laði gagna
frá Íþrótta- og Ólympíusambandi
Íslands (ÍSÍ) og þeim sérsambönd-
um sem mestra hagsmuna eiga að
gæta við nýtingu þjóðarleikvangs.
Skoðaðar voru alþjóðlegar kröfur
sem eiga við um íþróttamannvirki
í handknattleik og körfuknattleik
og einnig skoðuð greining ÍSÍ og
sérsambanda um æfingaþörf lands-
liða Íslands í öllum aldursflokkum
helstu boltagreina auk fimleika.
Verkís verkfræðistofa var fengin til
þess að gera kostnaðarmat á bygg-
ingu mannvirkis ásamt því að leggja
mat á rekstrarkostnað, þar sem mið
var tekið af nýreistri íþróttahöll
í Þrándheimi í Noregi sem tekur
8.600 manns í sæti.
Verkís áætlar að byggingarkostn-
aður húss sem tekur 8.600 áhorf-
endur sé um það bil sjö milljarðar
króna að meðtöldum virðisauka-
skatti, en efri vikmörk eru 9,1 millj-
arður króna og neðri vikmörk 6,3
milljarðar króna. Til viðbótar bæt-
ist kostnaður við hönnun, ráðgjöf,
umsjón og eftirlit upp á 1,7 millj-
arða króna og er heildarkostnaður
því samtals 8,7 milljarðar króna.
Hús sem tekur 5.000 áhorfendur
myndi hins vegar kosta 6,3 millj-
arða króna að byggja að meðtöldum
virðisaukaskatti. Efri vikmörk eru
8,2 milljarðar króna og neðri vik-
mörk eru 5,7 milljarðar króna. Til
viðbótar bætist hönnun, ráðgjöf,
umsjón og eftirlit sem kostar 1.5
milljarða króna. Heildarkostnaður
er því samtals 7,9 milljarðar króna.
Hannes S. Jónsson, formaður
KKÍ, segir vinnu starfshópsins hafa
gengið vel og hann finni fyrir mikl-
um vilja ráðherra og borgarstjórnar
að fara í framkvæmdir eins fljótt og
auðið er.
„Það virðist vera þverpólitísk
samstaða um að fara í þessar fram-
kvæmdir og ég finn fyrir því að
mennta- og menningarmálaráð-
herra sem og fulltrúar stjórnar-
andstöðu eru á einu máli að það sé
góður tímapunktur núna til þess að
ráðast í að láta húsið rísa. Um þetta
ætti því að vera samstaða,“ segir
Hannes í samtali við Fréttablaðið.
„Við vinnu starfshópsins var það
haft að leiðarljósi að rekstrarkostn-
aður hússins væri sem minnstur,
auk þess sem nýtingarmöguleikar
þess væru sem mestir. Þannig gætu
allar inniíþróttir átt heimili þarna
og þá gætu íþróttir á borð við bar-
dagaíþróttir, dans og f leira fengið
aðstöðu í húsinu. Hægt verður einn-
ig að nýta höllina undir tónleika og
aðra menningarstarfsemi,“ segir
hann enn fremur.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, segir
í frétt inni á vef Stjórnarráðsins að
eftir að starfshópurinn hafi skilað
af sér fyrrgreindri skýrslu sé bolt-
inn nú hjá ríki og borg að tryggja
fjármögnun verkefnisins og hefja í
framhaldinu framkvæmdir.
„Við horfum til þess að efla mjög
innviðafjárfestingar og nú hafa
starfshópar skilað greiningu á ólík-
um sviðsmyndum fyrir bæði inni-
íþróttir og knattspyrnu. Stór hluti
undirbúningsvinnu er kominn
vel á veg og mikilvægt að huga að
næstu skrefum. Fram undan er að
tryggja fjármögnun og samvinnu
við okkar helstu samstarfsaðila,
ráðast í hönnun og grípa skófluna
og byggja framtíðarleikvanga fyrir
landslið Íslendinga, íþróttaunn-
endur og iðkendur á öllum aldri,“
segir Lilja um stöðu mála.
Starfshópurinn mun starfa áfram
og gera nákvæmari greiningu á
rekstri og tekjumöguleikum fyrir
þjóðarleikvang inniíþrótta.
hjorvaro@frettabladid.is
Ráðherra vill að skóflan fari á
loft í Laugardalnum sem fyrst
Góður gangur virðist vera í undirbúningsvinnu fyrir framkvæmdir vegna nýs þjóðarleikvangs fyrir
inniíþróttir. Starfshópur hefur skilað skýrslu um málið og ríkan framkvæmdahug má merkja á mennta-
og menningarmálaráðherra. Kostnaður við að reisa höllina er áætlaður um það bil átta til níu milljarðar.
Hugmyndir eru um að ný þjóðarhöll verði byggð sem tengibygging við Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
n Engin mannvirki á Íslandi upp-
fylla þær kröfur sem gerðar eru
til sérsambanda vegna alþjóð-
legra keppna eða landsleikja í
handknattleik og körfuknatt-
leik. Til að uppfylla alþjóðlegar
kröfur verður að byggja nýtt
mannvirki.
n Starfshópurinn var sammála
um Laugardal sem fyrsta val
fyrir staðsetningu Þjóðarleik-
vangs. Um staðsetningu innan
Laugardals og aðra möguleika
er fjallað í skýrslunni.
n Mikilvægast að mati starfs-
hópsins er að mannvirkið
nýtist fyrst og fremst sem
íþróttahús enda yrði það byggt
sem þjóðarleikvangur. Ef horft
er til möguleika á margþættri
notkun hússins mun það auka
tekjumöguleika við rekstur.
Þá mun slíkt mannvirki vera
hvatning til almennrar lýð-
heilsu og gefa öllum tækifæri
til að stunda hreyfingu. Þá er
horft til þess að mannvirkið
geti hýst stóra tónleika eða
aðra menningarviðburði.
ENSKI BOLTINN José Mourinho,
k nattspy r nustjór i Tottenham
Hotspur, kveðst sannfærður að Dele
Alli muni ekki yfirgefa herbúðir
félagsins í félagaskiptaglugganum
sem lokar í október næstkomandi.
Þessi 24 ára gamli leikmaður
hefur verið verið orðaður við brott-
för frá Tottenham en hann var utan
hóps hjá liðinu á móti Lokomotiv
Plovdiv í Evrópudeildinni og svo í
deildarleiknum gegn Southampton
um síðustu helgi.
Þessar sögusagnir fengu byr
undir báða vængi þegar Mourinho
sagði í heimildaþáttaröðinni All or
Nothing að Alli væri allt of latur á
æfingum liðsins. Alli er hins vegar
í leikmannahópnum hjá Tottenham
sem sækir Shkendija heim til Make-
dóníu í Evrópudeildinni í kvöld.
„Alli hefur átt hæðir og lægðir
síðan hann kom til Tottenham
Hotspur. Ég er sannfærður um að
við munum halda honum í okkar
röðum. Svo er það undir honum
komið að sanna það fyrir mér á
æfingum og í leikjum að hann eigi
skilið sæti í liðinu,“ segir Mourinho
um stöðu mála hjá Alli. – hó
Vill halda Alli
hjá Tottenham
Alli er í hóp hjá Tottenham í kvöld.
Hér má sjá hvernig höllin í Þrándheimi í Noregi lítur út í fullri notkun.
ÍSLENSKI BOLTINN Tvö efstu lið
Íslandsmótsins í knattspyrnu karla,
Valur og FH, leiða saman hesta sína í
Kaplakrika í dag. Fyrir þennan leik
er Valur á toppi deildarinnar með
37 stig eftir að hafa spilað 15 leiki
og FH í öðru sæti með 29 úr þeim 14
leikjum sem liðið hefur leikið.
Liðin eiga eftir að mætast á Vals-
vellinum síðar á mótinu og því gætu
FH-ingar hleypt spennu í mótið
með sigri í þessum leik. Vinni Valur
eru þeir komnir langleiðina að því
að tryggja sér Íslandsmeistaratitil-
inn í 23. skipti í sögu félagsins og í
þriðja skipti á síðustu fjórum árum.
Bæði lið koma með blússandi
sjálfstraust í þennan leik, en Valur
gjörsigraði Stjörnuna í síðustu
umferð á meðan FH vann sann-
færandi sigur í leik sínum við Fylki.
Valur hefur ekki beðið lægri hlut í
deild og bikar í síðustu 13 leikjum
sínum en liðið hefur í þeim leikjum
haft betur í 12 leikjum og gert eitt
jafntef li. Síðasti tapleikur Vals-
manna var þegar liðið laut í lægra
haldi fyrir ÍA í byrjun júlímánaðar.
Síðan Logi Ólafsson og Eiður
Smári Guðjohnsen tóku við stjórn-
artaumunum hjá FH-liðinu hefur
liðið borið sigur úr býtum í sjö
deildarleikjum, gert eitt jafntefli í
deildinni og látið einu sinni í minni
pokann. Þá hefur liðið sömuleiðis
borið sigurorð í tveimur bikarleikj-
um undir stjórn þeirra félaganna.
Vefsíðan 433.is greinir frá því að
FH-ingar þurfi að greiða Val fimm
milljónir króna, ætli þeir að láta
hann spila í leiknum í dag. Hjá Val
koma Haukur Páll Sigurðsson og
Kristinn Freyr Sigurðsson aftur inn
í hópinn eftir að hafa tekið út bann í
leiknum á móti Stjörnunni. – hó
Valur getur
sett níu fingur
á bikarinn
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT