Fréttablaðið - 24.09.2020, Qupperneq 62
ÞAÐ VILL LÍKA OFT
VERA GJÖFULL TÍMI
HUGMYNDALEGA SÉÐ ÞEGAR
MAÐUR LIGGUR EINN Á HÓTEL-
HERBERGI Í SJANGHÆ.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
Dagskráin
á Hringbraut
LÍFIÐ ER LAG
Hefur göngu sína á ný!
Ný þáttaröð af hinum geysivinsælu
þáttum Lífið er lag hefst á Hringbraut
þriðjudaginn 29. september kl. 20.30.
Fjallað er um stöðu, hagsmuni og
framtíðarsýn eldri borgara.
Umsjónarmaður er
Sigurður K. Kolbeinsson Þetta er smá blanda af öllu sem ég hef verið að gera, segir Hallgrímur Helgason, höfundur ljóðabókarinnar Við skjótum Títuprjónum,
sem kemur út í dag. Bókin er eitt
samfellt ljóð í tuttugu og tveimur
köf lum sem tekur glettilega á
vandamálum heimsins.
Heimsmyndin á hótelinu
Ljóðið kviknaði til lífsins í jóla-
ferð Hallgríms og eiginkonu hans
til Porto árið 2016. „Þetta var
búið að vera þungt ár – Brexit,
Trump, Erdogan, Panama-skjölin
og sprungnar ríkisstjórnir,“ segir
Hallgrímur. „Maður var orðinn ansi
hvekktur á heiminum. Svo sáum
við að vinkona okkar var að vinna
í hræðilegum aðstæðum í f lótta-
mannabúðunum á Lesbos, á sama
tíma og við vorum að velja okkur
veitingastaði á kvöldin. Manni
fannst þetta hálfómerkilegt líf. Af
hverju var maður ekki að berjast
fyrir betri heimi? Mér fannst eins og
ég væri að skjóta títuprjónum þegar
ég skellti í einhver læk á Facebook.“
Í upphafi ætlaði Hallgrímur sér
aðeins að skrifa eitt ljóð, en þegar
í ljós kom að ástandið vatt aðeins
upp á sig, hélt hann áfram. Ljóðið
segir Hallgrímur að sé að mestu
leyti ort á hótelum og f lugvöllum.
„Þar birtist manni ástand heimsins
hvað skýrast, auk þess sem ég var
kannski með samviskubit yfir að
fljúga svona mikið. Það vill líka oft
vera gjöfull tími hugmyndalega séð
þegar maður liggur einn á hótelher-
bergi í Sjanghæ.“
Bókin er nú orðin að hálfgerðum
sögulegum kveðskap, því hún
fjallar að mestu um heimsmyndina
fyrir kófið. „Ég var búinn með bók-
ina áður en ástandið skall á, en fann
samt að ég þyrfti að minnast aðeins
á það. Lendingin varð að allra síð-
asta ljóðið fjallar um kófið sem gæti
verið efni í allt aðra bók.“
Undirliggjandi taktur
Samhliða útgáf u bókar innar
verður ljóðlistarmyndband tengt
henni frumsýnt í dag. „Ljóðið er
ansi frjálslegt í formi og mjög upp-
lestrarvænt. Eftir því sem á leið fór
ég að heyra einhvern trommutakt í
því og fannst ég þurfa að gera eitt-
hvað við hann,“ segir Hallgrímur,
sem fékk trommuséníið Þorvald Þór
Þorvaldsson til liðs við sig. „Ég var
alveg grænn þegar kom að tónlistar-
bransanum og vissi ekkert hvern ég
ætti að tala við. Ég spurðist fyrir og
fékk svör um að Þorvaldur væri eini
maðurinn í djobbið.“
Listamaðurinn Kristinn Arnar
Sigurðsson, betur þekktur sem
Krassasig, heimsótti þá félaga á
einni slíkri æfingu og fékk strax
hugmynd um að það yrði að gera
myndband við f lutninginn. „Það
var gaman fyrir mig að fá að vinna
með svona ungum töppum,“ segir
Hallgrímur.
Gert og græjað á Grandanum
Eðlilega hefur verið lítið fararsnið
á Hallgrími nýlega, sem hefur í
nógu að snúast á vinnustofu sinni á
Grandanum. „Ég er núna að vinna
í framhaldinu af Sextíu kíló af sól-
skini. Bókin er langt komin en það
er líka heilmikil vinna eftir. Svo var
samið við erlent fyrirtæki um að
vinna sjónvarpsseríu eftir bókinni
Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og
byrja að vaska upp. Ég kem aðeins
að handritinu, hvort sem það verð-
ur að veruleika eða ekki. Þar fyrir
utan reyni ég svo að sinna mynd-
listinni, ég leyfi mér að gera alltaf
mynd í hverri hádegispásu.“
Útgáfuhóf bókarinnar fer fram í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu milli klukkan 17 og 19 í kvöld.
Myndbandið verður síðan til sýnis
alla helgina, út sunnudaginn, á opn-
unartíma safnsins og er aðgangur
að því ókeypis. Opið er til 22 í kvöld
en 10-17 aðra daga.
arnartomas@frettabladid.is
Taktföst heimsádeila
Við skjótum títuprjónum, ný ljóðabók Hallgríms Helgasonar,
kemur út í dag, en þar er á ferðinni samfellt heimsádeiluljóð.
Ljóðið, sem er í tuttugu og tveimur köflum, kviknaði í kjölfar válegra tíðinda ársins 2016. MYND/SIGTRYGGUR ARI
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð