Samtökin '78 - Samtakafréttir - 15.08.2000, Side 28

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 15.08.2000, Side 28
rúarfíkn er það fyrirbæri þegar iðkun trúarlífs á vettvangi skipulagðra trúarbragða fær einkenni áráttu hegðunar sem hægt er að bera saman við hegðun virkra alkóhólista í neyslu. Helstu einkennin eru þau að trúin fær algeran forgang í lífi viðkomandi einstaklings, trúarfíkilsins, og verður mikilvægari en allt annað — einnig vinna eða fjölskylda. Boð og bönn trúarinnar verða að heilögum reglum, allt er svart eða hvítt, engir gráir tónar eru til í því litrófi, allt er annað hvort rétt eða rangt, syndugt eða heilagt. Til stuðnings þessu er vitnað í Biblíuna, hún verður óskeikul Sameiginlegir óvinir, eins og margir trúarfíklar telja samkyn hneigða vera, eða sameiginlegt fjand samlegt málefni, eins og fóstureyð ingar, verða mikilvægir þættir í lífi trúarfíkilsins. Hatrið sem trúar fíkillinn nærir til þess sem hann telur vera rangt eða syndugt verður drif- kraftur í lífi hans. Rétt eins og alkóhólismi er trúar fíknin fjölskyldusjúkdómur og þróast á líkan hátt. Það sem í byrjun er „hóf- drykkja"; messa á sunnudögum, reglulegur biblíulestur, verður að áráttuhegðun þar sem biblíulesturinn, messurnar og starfið í þágu safnaðarins öðlast algjöran forgang. Hegðun fjölskyldunnar er stýrt nákvæmlega, þar skal farið eftir þeim boðum sem viðkomandi telur vera rétt og rangt samkvæmt Biblíunni. Þarfir trúarinnar, safnaðarlífisins, koma á undan þörfum fjölskyldunnar. Kaþólski presturinn Leo Booth hefur lýst þessum sjúkdómi í bók sinni When God Becomes a Drug. Hann telur að hægt sé að beita meðferðarúrræðum við þessari fíkn á líkan hátt og öðrum fíknum. Booth segir sjálfur að hann sé óvirkur trúarfíkill sem geti með réttum meðferðarúrræðum haldið einkennum sjúkdómsins niðri, á líkan hátt og óvirkur alkólhólisti heldur alkóhólismanum niðri með því að drekka ekki áfengi. 28 SA ITAKAFRÉTTIR

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.