Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Page 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Kosningar í Bandaríkjunum
Bandaríkjamenn gengu til kosninga í vikunni til að annað-
hvort tryggja núverandi forseta, Donald Trump, áframhald-
andi setu eða til að steypa honum af stóli og koma Demókrat-
anum Joe Biden að. Kosningarnar voru æsispennandi og líkur
á að lokaniðurstöður verði ekki kunngjörðar fyrr en að nokkru
liðnu enda hefur Trump tilkynnt að hann ætli að reyna að fá
atkvæðum hnekkt fyrir dómi vegna gruns um að kosninga-
svindl hafi átt sér stað. Þær grunsemdir hans hafa þó ekki
verið studdar neinum rökum þegar þetta er skrifað en útlit er
fyrir að Biden hafi haft betur gegn sitjandi forseta.
Samstaða meðal veitingahúsa
Veitingahús á höfuðborgarsvæðinu tóku höndum saman og
skoruðu á Íslendinga að nýta sér þjónustu veitingastaða til að
styðja við þau á tímum COVID-19. Fóru þau þá nýstárlegu leið
að mæla með því að fólk beindi viðskiptum til samkeppnisaðila
til að sýna samstöðu í verki. Samhliða þessu átaki hefur fjöldi
staða bætt fjölbreyttum möguleikum í svonefnda heimtöku-
seðla sína og geta Íslendingar nú keypt sér margrétta máltíðir
til að njóta heima.
Víðir varð vondur
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum,
var harðorður á upplýsingafundi almannavarna á mánudag
þar sem hann ræddi um framkomu nokkurra viðskiptavina
verslana við starfsfólk. Nú er verslunum gert skylt að fram-
fylgja grímuskyldu og hafa einstaklingar í nokkrum undan-
tekningartilvikum brugðist ókvæða við og tekið út reiði sína
á starfsmönnum sem hafa sér þó ekkert til saka unnið. Víðir
sagði slíka framkomu með ólíkindum. Allir séu að vinna í sam-
einingu að sama markmiði núna og starfsfólk sem sé gjarnan
fólk í yngri kantinum eigi slíka framkomu ekki skilið.
Nakin hjá Nova
Fjarskiptafyrirtækið Nova vakti athygli fyrir nýja auglýsingu
þar sem fyrirtækið auglýsir nýja þjónustu sína við eigendur
snjallúra. Í auglýsingunni var allt látið flakka og mannslíkam-
inn fékk að njóta sín í allri sinni dýrð, kviknakinn. Með aug-
lýsingunni og nýja úrræðinu vill fyrirtækið hvetja til minni
símanotkunar sem og vitundarvakningar um geðheilbrigði og
jákvæða líkamsímynd. Auglýsingin hefur vakið mikla athygli
og þrátt fyrir að fáir auglýsendur hafi farið þessa leið þá þykir
framtakið vel heppnað og smekklegt.
Brutu sóttvarnareglur
Valsmenn fögnuðu Íslandsmeistaratitli með pompi og prakt
síðastliðinn föstudag og brutu með athæfinu sóttvarnareglur,
en fleiri en tíu einstaklingar voru þar samankomnir og gættu
ekki að tveggja metra reglu. Fögnuðurinn var harðlega gagn-
rýndur opinberlega og hefur knattspyrnuliðið sent frá sér
opinbera afsökunarbeiðni.
Eldri borgarar í COVID
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
formaður Landssambands
eldri borgara, mætti á upp-
lýsingafund almannavarna á
miðvikudag og brýndi fyrir
eldri borgurum og aðstand-
endum að huga vel að nær-
ingu og hreyfingu í COVID-19
faraldri. Eins eru eldri borg-
arar hvattir til að nýta sér
tæknina til að verja tíma með
fjölskyldu með myndsímtölum
og eins var óskað eftir fleiri sjálfboðavinum sem eru tilbúnir
að vera Símavinir eða Heimsóknarvinir.
1 Sjáðu myndbandið – Vildi ekki setja á sig grímu í Bónus
– „Þessi grímuskylda er að taka
súrefni af fólki“ Íslenskur karl-
maður birti myndband á Facebook
þar sem hann skammaðist í starfs-
manni Krónunnar fyrir að framfylgja
grímuskyldu.
2 Heiðrún útskýrir skjalamálið og hjólar í Gísla Martein –
„Hann hlýtur að stíga fljótt fram og
biðjast afsökunar“ Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, var
ósátt við Gísla Martein Baldursson,
þáttarstjórnanda Vikunnar á RÚV.
3 Erlend kona segist ráð-þrota á götunni: Íslenski
eiginmaðurinn hafi trompast þegar
framhjáhald við nágrannann kom í
ljós – „Hann hótaði að drepa okkur“
Kona frá Marokkó segir íslenskan
eiginmann sinn hafa hótað sér og
elskhuga sínum lífláti og hent henni
út á götuna.
4 Manstu eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún
út 9 árum seinna Thylane Lena-
Rose Blondeau fór að sitja fyrir fimm
ára og var kölluð „fallegasta stúlka
veraldar“. Hún er í dag 19 ára gömul
og starfar sem fyrirsæta.
5 Stefán í Dimmu segir illa farið með vin sinn – „Manni verður
óglatt, þetta er svo ógeðslegt“
Stefán Jakobsson tók í vikunni upp
hanskann fyrir ónafngreindan vin
sem skuldar meðlag þrátt fyrir munn-
legt samkomulag við barnsmóður um
að meðlag skyldi ekki innheimt.
6 Elísabetu Guðmunds-dóttur lýtaskurðlækni sagt
upp störfum Lýtaskurðlækninum
Elísabetu Guðmundsdóttir var sagt
upp störfum á Landspítalanum. Telur
hún uppsögnina eiga rætur að rekja
til viðhorfs hennar til COVID-19.
7 Sængurgjafaveisla frá helvíti – Sannaði að eiginkonan væri
ólétt eftir annan karlmann Karl-
maður sýndi gestum sængurgjafa-
veislu myndskeið af eiginkonu sinni
og elskhuga koma saman úr sturtu.
Í þessari áhugaverðu, óvenjulegu og
fallegu bók fjallar Gísli Pálsson um geir-
fuglinn, fuglinn ófleyga sem varð eins
konar tákn tegunda í útrýmingarhættu.
„... allt í senn spennandi frásögn um
áhugavert fólk og tíma, kennslustund
í sögu og hrollvekja.“
ÁRNI SNÆVARR, BLAÐAMAÐUR
DULARFYLLSTI
FUGL ÍSLANDS?
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16
4 FRÉTTIR 6. NÓVEMBER 2020 DV