Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Side 32
Tandoori-kjúklingur með kúskússalati og límónusósu
Fyrir 5
kjúklingabringur (u.þ.b. 800 g)
½ tsk. salt og smá hvítur pipar
4 msk. tandoori-krydd
2 msk. góð grænmetisolía
Kúskússalatið góða
5 dl vatn
2 msk. ólífuolía
½ tsk. flögusalt
2 ½ dl kúskús
½ laukur
2 hvítlauksgeirar
1 rautt chili
½ gúrka
1 avókadó
1 msk. sítrónusafi
1 dl saxaður graslaukur (má setja
vorlauk)
1 dl kóríander, saxað
2 tsk. sesamolía
2 msk. ólífuolía
Límónusósa
1 sítróna, safi
1 límóna, safi
2 dl rjómaostur
Skerið kjúklingabringurnar í jafnstóra
bita. Stærðin skiptir ekki höfuð máli
en ef þeir eru jafn stórir eru þeir
gegnsteiktir á sama tíma og þá er
ekki hætta á að sumir bitar verði of-
steiktir og aðrir of lítið steiktir.
Setjið tandoori-krydd og salt og
pipar í djúpan disk og veltið kjúkl-
ingabitunum upp úr því. Hellið olíu
á pönnu og steikið bringurnar á
pönnunni við meðalhita þannig að
þær brúnist jafnt að utan.
Setjið u.þ.b. ½ dl af vatni á pönn-
una, setjið lokið á og lækkið hitann
og látið bringurnar eldast í gegn eða
þar hitamælir sýnir 65°C kjarnhita.
Þetta gæti tekið um það bil 20 mín-
útur. (Ef þú átt ekki kjarnhitamæli
getur þú prófað að skera einn bita
í sundur til að fullvissa þig um að
hann sé hvítur í gegn).
Setjið 5 dl vatn í pott ásamt 2 msk.
af ólífuolíu og 1 tsk. af salti og látið
suðuna koma upp.
Takið af hitanum, setjið kúskús út í,
blandið saman og setjið lokið yfir.
Látið standa í 5 mínútur. Saxið lauk
í þunnar ræmur, merjið hvítlaukinn
létt með hnífnum og saxið smátt.
Skerið chili í tvennt og skafið fræin
úr og saxið smátt. Flysjið gúrkuna
með kartöfluskrælara og skerið í
tvennt.
Skafið fræin inanan úr með teskeið
og skerið gúrkuna í litla teninga.
Blandið kúskúsgrjónunum og græn-
meti saman.
Skerið avókadó í bita, setjið þá út í
og kreistið smá sítrónusafa yfir ( það
kemur í veg fyrir að avókadóið verði
dökkt að lit í salatinu).
Saxið graslauk og kóríander og
hrærið létt saman við ásamt ólífu-
og sesamolíu.
Setjið allt sem á að fara í sósuna í
matvinnsluvél og maukið saman.
Leggið salatið á diska eða eitt stórt
fat. Raðið kjúklingabitunum ofan á
og berið fram með límónusósunni. Ef
tími vinnst til skelli ég í Naan brauð.
Matseðill
Heiðu Bjargar
Morgunmatur
Byrja daginn á kaffi og hafra-
jógúrt með múslí.
Hádegismatur
Ég borða yfirleitt í vinnunni og
þá það sem mér líst best á, hvort
sem það er spennandi salat eða
heitur heimilismatur, þar er alltaf
í boði grænmetisréttur.
Millimál
Kaffi. Mér finnst líka gott að
fá mér ávexti, möndlur, rúsínur
eða aðra þurrkaða ávexti ef mig
vantar orku. Ef ég er á fundi á ég
það nú til að fá mér kanelsnúð
eða kleinu.
Kvöldmatur
Elda heima, eitthvað sem helst
flestum finnst gott. Við eldum
nokkuð oft fiskrétti, vegan spag-
hetti bolognese, lasagna og ann-
að ítalskt, því Sólkatla mín elskar
það, meðan hin börnin eru meira
í þessu kryddaða og sterka.
Þannig að indverskur pottréttur
og hrísgrjón eða steiktar núðlur
með grænmeti eru líka of t á
borðum heima.
Eldaði indverska matreiðslu-
bók frá upphafi til enda
Heiða Björg Hilmisdóttir er borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar. Hún
er einnig menntuð í næringarfræði og hefur gefið út þó nokkrar matreiðslubækur.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
D agar Heiðu Bjargar eru fjölbreyttir og er dagskráin yfirleitt
frekar þétt. Henni finnst
mikilvægt að ná að borða
kvöldmat með fjölskyldunni
og er það sá tími dagsins sem
allir leggja frá sér símana og
setjast niður saman.
Áhugasöm um mataræði
Heiða Björg er menntuð í nær-
ingarfræði og þegar hún var
ung hafði hún mikinn áhuga
á ólíku mataræði og prófaði
ýmislegt í þeim efnum.
„Í dag er ég kannski einhvers
konar „flexitarian“, þó ég borði
í sjálfu sér allt nema svínakjöt
og þorramat þá borða ég mest
úr jurtaríkinu, enda er það
hollast og best fyrir okkur og
umhverfið,“ segir hún og bætir
við að góðir fiskréttir séu þó
það besta sem hún fær.
„Næringarfræðin kenndi
mér að boð og bönn eru ekki
endilega málið og að það
er mikilvægt að borða fjöl-
breyttan mat og ríkulega úr
jurtaríkinu og ég fylgi því og
finnst það bæði bragðbest og
mér líða best af því. Aðalat-
riðið er að njóta matarins og
ekki líta á það að borða neinn
mat sem synd, eða eitthvað
sem maður á að skammast sín
fyrir. Ef mig langar í köku þá
fæ ég mér hana og nýt hvers
einasta bita. Mér finnst mikil-
vægt að við horfum þannig á
mat almennt. Svo er ég smá
dellukelling og ég get dottið
inn í að kynna mér matar-
menningu einhvers lands til
hlítar og prófa þá alls konar.
Einu sinni eldaði ég indverska
matreiðslubók frá upphafi og
ferðaðist þannig um þetta
risastóra, fjölbreytta land og
það er með því skemmtileg-
asta sem ég hef gert. “
Eldhúsið griðastaður
Heiða Björg segir að henni
líði eiginlega alltaf best í eld-
húsum. „Enda alin upp í stórri
fjölskyldu þar sem eldhúsið
var miðpunktur tilverunnar,“
segir hún.
Hún var ung þegar hún
lærði að elda mat og stýrði
einu stærsta eldhúsi landsins
um árabil. Hún hefur einnig
skrifað tvær uppskriftabækur
og starfað sem matarblaða-
kona fyrir blöð og tímarit. n
Heiða Björg er þúsundþjalasmiður og snillingur í eldhúsinu. MYND/STEFÁN
MYND/AÐSEND
32 MATUR 6. NÓVEMBER 2020 DV