Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 40
6. nóvember 2020 | 44. tbl. | 111. árg.
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
MYND/ANTON BRINK
LOKI
Ástar-
pungur!
Svanhildur
á stefnumóti
Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir, fyrrverandi stjórnar-
formaður VÍS og fyrrverandi
hluthafi í Skeljungi, og Grím-
ur Garðarsson, einn eigenda
fjárfestingarfélagsins Vörðu
Capital, hafa sést hönd í hönd.
Grímur var áður í sambandi
með Önnu Lilju Johansen
en upp úr því slitnaði fyrr á
árinu. Svanhildur Nanna er
fyrrverandi fimleikastjarna
og hefur verið umsvifamikil
í íslensku viðskiptalífi til
lengri tíma.
Pungvax með
piparkökulykt
Bræður í Borgarnesi opn-
uðu nýverið vefverslunina
herrahellirinn.is sem hefur
vakið kátínu margra fyrir
nýstárlegar vörur. Sérleg
jólavara flýgur hátt á sam-
félagsmiðlum sem stendur
en það er sérlegt pungvax
með piparkökuilmi. Vaxið er
auðvitað vegan og náttúru-
legt og fylgir piparkökuvara-
salvi með. Uppskriftin ku
vera leynileg. Annar eigandi
verslunarinnar, Sigurður
Árni Júlíusson, segir pung-
vaxið svínvirka. „Þetta er í
raun svitalyktareyðir fyrir
nára og eistu á karlmönnum.
Ég á klassísku útgáfuna en
á eftir að prófa með jólailm-
inum,“ segir Stefán, sem
segir söluna fara mjög vel af
stað. Á vefsíðunni er einnig
hægt að kaupa snákaolíu og
geirvörtukrem. n
Verð aðeins
7.700.-
HÖNNUÐUR: SANNE LUND TRABERG
Jólaóróinn í ár
Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is
Verð aðeins
7.700.-
HÖNNUÐUR: SANNE LUND TRABERG
Jólaóróinn í ár
Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is
MYND/AÐSEND