Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Síða 30
F oreldrar mínir eru á áttræðisaldri , búa saman í sinni eigin
íbúð og eru mjög hraust og
sjálfstæð. Síðan COVID skall
á hafa þau verið meira og
minna í sjálfskipaðri sóttkví.
Þau eru bæði skíthrædd við
veiruna en hafa afar mis-
jafna sýn á hvaða aðgerðir
eru nauðsynlegar til þess að
forðast hana. Þetta er farið
að valda mikilli togstreitu
á milli þeirra og mamma
er eiginlega orðin hrædd
við pabba því henni finnst
hann ekki passa sig á „rétt-
an“ hátt. Pabbi upplifir að
mamma haldi sér í gíslingu,
og sé að reyna að pakkað
þeim inn í bómull. Ég stend á
milli þeirra, reyni að malda
í móinn en ég á mjög erfitt
með að taka afstöðu eða
stilla til friðar. Hvað myndir
þú gera í svipaðri aðstöðu?
Gott að ræða stöðuna
Sæl. Takk fyrir góða spurn-
ingu sem er í góðum takti
við þessa undarlegu tíma.
Þú spyrð hvernig ég myndi
bregðast við og ég hlæ nú
bara að því. Mín viðbrögð
eru aldeilis ekki alltaf besta
lausnin enda þekki ég ekki
foreldra þína og kann þar af
leiðandi ekki vel á þau. Þú
aftur á móti ert sérfræðingur
í þeim og þau bjargráð sem
þú hefur verið að vinna með
eru pottþétt að skila einhverj-
um árangri. Flest gerum
við það sem er bærilegast í
óbærilegum aðstæðum svo
þú mátt alveg klappa þér á
bakið fyrir vel unnin störf til
þessa.
Samtal er þó yfirleitt alltaf
af hinu góða. Hefur þú rætt
við foreldra þína um líðan
þína í þessu öllu saman? Að
þú upplifir þig á milli þeirra
og að þú hafir áhyggjur af
þeim og togstreitunni á milli
þeirra vegna COVID? Mögu-
lega eru þau að upplifa stöð-
una öðruvísi og þá er áhuga-
vert að heyra þeirra sýn.
Fá utanaðkomandi aðstoð
Fjölskyldur eru samsettar úr
mörgum kerfum. Foreldrar
þínir eru kerfi, þú og mamma
þín eruð mæðgnakerfi, þú og
pabbi þinn eigið feðginakerfi.
Mögulega áttu systkini og þá
tilheyrið þið systkinakerfinu
og þar fram eftir götunum.
Mörkin milli þessara kerfa
þurfa að vera skýr og það
fyrsta sem ég hnýt um út frá
spurningu þinni er að mögu-
lega er þetta mál sem þarf að
leysast án þinnar aðstoðar í
foreldrakerfinu. Við erum
alltaf börn foreldra okkar þó
við séum orðin fullorðin og
erfitt að breyta því í hlutverk
uppalanda eða ráðgjafa. Í
tengslum við COVID-hræðslu
foreldra þinna ert þú komin í
annað hlutverk, það er hlut-
verk sáttasemjara, nokkuð
sem getur jafnvel bara flækt
málin.
Mér dettur í hug hvort það
gæti reynst ykkur öllum vel
að fá utan að komandi aðstoð,
ttil dæmis hjúkrunarfræðing
frá heilsugæslunni, sem get-
ur farið í gegnum sóttvarnir
foreldra þinna með þeim. Þau
virðist greina á um hvernig
forðast skuli veiruna og þá
gæti sérfræðingur á því sviði
komið að betri notum en þú.
Óvissa skapar kvíða
Nú, annað sem gæti verið
hjálplegt og það er að meta
muninn á kvíðahegðun og
sóttvörnum. Einnig gæti
verið ráð að skoða hvort þau
þurfi jafnvel aðstoð við kvíða
fremur en sóttvarnir? Óvissa
skapar kvíða hjá fólki og ef
það er eitthvað sem COVID
framkallar þá er það einmitt
óvissa. Aðstæður foreldra
þinna hljóma þannig að móðir
þín sé að reyna að hafa stjórn
á aðstæðum og skapa þannig
fyrirsjáanleika sem dregur
úr kvíða. Pabbi þinn upplifir
þessa sömu stjórnun móður
þinnar sem gíslingu. Það
getur reynst vel að hjálpa for-
eldrum þínum að skilja hvað
liggur að baki upplifun þeirra.
Ef pabbi skilur að mamma er
kvíðin og mamma skilur að
pabbi er með innilokunar-
kennd þá gæti kannski skap-
ast meira og gagnkvæmara
umburðarlyndi.
Við getum verið sammála
um að þetta eru undarlegir
tímar og þeir kalla á undar-
lega hegðun og undarlega tog-
streitu milli fólks. Mikið vona
ég að þetta fari að líða hjá en
á meðan við bíðum þá er afar
skiljanlegt að eldri hjón séu
áhyggjufull. Við leysum það
ekki með einföldum hætti en
hlustun, stuðningur og skiln-
ingur getur þó gert krafta-
verk fram að bóluefni. Mikið
eru foreldrar þínir heppnir að
eiga þig að þangað til. Gangi
ykkur sem allra best. n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda hefur
áhyggjur af velferð foreldra sinna.
ELDRI HJÓN ÓSAMMÁLA UM
AÐGERÐIR GEGN COVID-19
Við leysum það
ekki með ein-
földum hætti en
hlustun, stuðn-
ingur og skiln-
ingur getur þó
gert kraftaverk
fram að bóluefni.
Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
30 FÓKUS 13. NÓVEMBER 2020 DV