Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Page 32
Matseðill
Signýjar
Morgunmatur
Kaffi og ristað brauð finnst mér
besti morgunmaturinn.
Millimál
Vatn og kaffi…
Hádegisverður
Samloka, salat eða afgangur frá
kvöldinu áður.
Millimál
Stundum smá súkkulaði eða
ávöxtur.
Kvöldverður
Spagettí.
Risa bananamúffa
2 bollar hveiti
¾ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
3 vel þroskaðir bananar
¾ bolli brúnn sykur
6 msk. brætt smjör
2 egg, léttþeytt
¼ bolli hrein jógúrt
1 tsk. vanilludropar
1 bolli súkkulaðibitar
Forhitið ofninn í 180 gráður.
Smyrjið form.
Blandið hveiti, salti og matarsóda
saman í stóra skál.
Í aðra skál er eggjum, fingurvolgu
smjöri, jógúrt, stöppuðum banönum,
sykri og vanillu hrært saman.
Blandið varlega blautefnunum og
þurrefnunum saman.
Bætið súkkulaðinu við og hrærið
varlega. Setjið nokkra súkkulaði-
bita ofan á.
Bakið í 55 mínútur.
32 MATUR 13. NÓVEMBER 2020 DV
Matur innblástur í
ævintýraheimi Tulipop
Signý Kolbeinsdóttir vöruhönnuður og annar hugmyndasmiður Tulipop
er ekki aðeins ævintýragjörn með blað og penna heldur leikur flest í
eldhúsinu í höndunum á henni líka – en aðeins ef hún hefur tíma.
Signý hefur
gætt feita
sveppi lífi
svo að úr
varð farsælt
vörumerki.
MYNDIR/
AÐSENDAR
S igný, oftast kennd við ævintýraheim sinn Tulipop, hefur í nægu
að snúast. Nýlega kom út
ný bók frá Tulipop sem ber
nafnið Sætaspæta og fjallar
meðal annars um fugl sem
er svo sætur og ilmandi að
hann minnir helst á köku með
súkkulaðidropum. Það er því
ekki að undra að nýjasta æði
Signýjar sé dúnmjúk kaka
með súkkulaðidropum.
Sundið mikilvægt
Signý segist byrja flesta daga
klukkan 7.10 „Venjulegur
dagur hjá mér hefst klukkan
7.10, þá fer ég á fætur og gef
börnunum mínum að borða
og ég fæ mér svart kaffi og
stundum ristað brauð. Undan-
farnar vikur hef ég verið að
fara í sund þegar opið er, með
manninum mínum áður en við
höldum út í daginn sem er dá-
samleg byrjun á deginum. Ég
syndi smá og fer svo í heita
og kalda pottinn nokkrum
sinnum, svaka rútína. Eftir
sundið fer ég í vinnuna mína,
svara tölvupóstum og byrja að
teikna, hanna nýjar vörur eða
lesa yfir animation-handrit
sem við erum að skrifa núna.
Vinnudagurinn endar svo um
fimmleytið, hendist í Krónuna
og heim að elda fyrir fjölluna.
Smá sjónvarpsgláp kannski
pínu lestur og í háttinn um
11.30.“
Er einhver matur sem
kveikir á hugmyndum?
„Já algerlega, mér finnst
matur mjög inspírerandi! Til
dæmis er Sætaspætan eins
og súkk ulaðibitamúffa og
þess vegna finnst Fredda hún
svo girnileg. Já, svo má ekki
gleyma öllum sveppunum,
ég er hugfangin af sveppum.
Aðalpersónur Tulipop (Búi
og Gló) eru sveppir og svo er
merki Tulipop sveppur!“
Signý er fyrirtakskokkur
en aðeins ef hún hefur tíma.
Streitueldamennska er ekki
uppörvandi. „Ef ég hef engan
tíma finnst mér ekki skemmti-
legt að elda. En það er alltaf
hægt að henda í gott spagettí,“
segir Signý og deilir hér einni
af sínum uppáhalds uppskrift-
um að bananamúffuköku sem
er bökuð í tíma og ótíma til að
létta lund í COVID. n
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is