Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Page 40
13. nóvember 2020 | 45. tbl. | 111. árg.
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
MYND/VALLI
LOKI
Minnka
við sig?
Óværa á nesinu
Göngugarpar sem gengu úti
við Gróttu á Seltjarnarnesi
ráku upp stór augu í gær þeg
ar minkur sást hlaupa þar
yfir götu og stefna á Bygg
garða. Minkar hafa mætt
ofsóknum á Norðurlöndum
eftir að upp komst um stökk
breytta kórónaveiru í þeim
í Danmörku en í kjölfarið
fyrirskipaði forsætisráð
herra Dana að öllum minkum
þar í landi yrði lógað. Fyrir
skipunin stóðst þó ekki lög
og er málið í pattstöðu en ótti
er við að stökkbreytta veiran
geti borist í menn og þar með
gert bóluefnið sem von er á
óvirkt.
Ekki er grunur um kóróna
veirusmit í minkabúum
hérlendis en mögulegt er að
strokuminkurinn hafi heyrt
af ofsóknunum og stungið af.
Níu minkabú eru á Íslandi
og öll úti á landi svo undar
legt þykir að sjá mink úti
á Seltjarnarnesi en þó ekki
óþekkt. Síðasta vetur höfðu
nokkrir minkar hreiðrað um
sig í grjótinu við Reykja
víkurhöfn.
Stjarna á föstu
Sjónvarpsstjarnan og hand
ritshöfundurinn Björg
Magnúsdóttir er komin í
samband með Tryggva Þór
Hilmarssyni auglýsinga
hönnuði hjá Aton JL. Björg
hefur gert garðinn frægan í
sjónvarpsþáttunum Kapps
máli, í útvarpinu á laugar
dagsmorgnum með Gísla
Marteini og sem einn af
handritshöfundum Ráðherr
ans. Björg er því án efa einn
mesti kvenkostur landsins,
harðdugleg, hugguleg og
hrikalega skemmtileg. Pipar
sveinar landsins gráta án efa
í koddann í kvöld. n
Verð aðeins
7.700.-
HÖNNUÐUR: SANNE LUND TRABERG
Jólaóróinn í ár
Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is
Verð aðeins
7.700.-
HÖNNUÐUR: SANNE LUND TRABERG
Jólaóróinn í ár
Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is